„Gríðarleg dómínóáhrif af einu smiti“

Aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn segir að ef fólk treysti sér ekki til þess að vera í ákveðnum aðstæðum þá sé best að það komi sér út úr þeim. Það eigi ekki að bjóða sér upp á aðstæður þar sem tveggja metra reglan sé ekki virt.

Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Rögn­valdur Ólafsson, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn. Mynd: Lögreglan

„Eins og alltaf er verið að hamra á mik­il­vægi þess að hver og einn sinni per­sónu­legri smit­gát þá er aldrei of oft komið inn á það og ekki gleyma því að þeir sem hafa verið að veikj­ast er fólk sem hefur talið sig vera í öruggum aðstæðum – og það hefur ekk­ert verið í umhverf­inu sem gefur til kynna að COVID sé á næsta leiti eða kór­ónu­veiran.“

Þetta sagði Rögn­valdur Ólafsson aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Hann benti enn fremur á að sjá mætti gríð­ar­leg dómínóá­hrif af einu smiti, bæði í því hversu margir væru að smit­ast og færu í sótt­kví.

Sex ný kór­ónu­veirusmit greindust inn­an­lands í gær, öll hjá sýkla- og veiru­fræði­deild sem greindi alls 291 sýni. Hlut­fall jákvæðra sýna var því rétt rúm­lega tvö pró­sent. Fimm af þeim sem greindust með kór­ónu­veiruna í gær voru í sótt­kví. Í ein­angrun eru nú 117 en voru 115 í gær. Fjöldi ein­stak­linga í sótt­kví er nú 919 en í gær voru 850 í sótt­kví. Einn ein­stak­lingur liggur á sjúkra­húsi líkt og í gær, þó ekki á gjör­gæslu.

„Lög­reglan er að sinna eft­ir­liti með þessu á opin­berum stöðum og það er verið að passa upp á að fólk sinni smit­gát­inni og að tveir metr­arnir séu í boði. En þegar öllu er á botn­inn hvolft þá eru það alltaf við sjálf sem höfum ákveð­inn atkvæð­is­rétt í þessu með því að láta ekki bjóða okkur upp á að vera í aðstæðum sem okkur eru ekki tryggðir þessir tveir metrar og þetta pláss sem við teljum okkur þurfa að hafa,“ sagði Rögn­valdur á fund­inum.

Þá væri best að fara úr aðstæð­unum ef fólk treystir sér ekki til þess að vera í þeim. Hann árétt­aði að veiran væri alls staðar á sveimi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár