Eigandi Arctic Fish setti tekjumet en kvartar yfir aukinni skattlagningu

Stærsti hlut­hafi ísfirska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Fish stærir sig af tekjum sínum upp á 195 millj­arða. Fyr­ir­tækið ætlar að fara í mál við norska ríkið vegna auk­innar skatt­lagn­ingar á sjó­kvía­eldið í land­inu.

Leita réttar síns gegn ríkinu
Leita réttar síns gegn rík­inu For­stjóri Mowi, Ivan Vindheim, hefur gefið það út að fyr­ir­tækið ætli að leita réttar síns gegn norska rík­inu út af auk­inni skatt­lagn­ingu á lax­eldið.

Stærsti eig­andi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Fish á Ísafirði hefur aldrei verið með hærri tekjur en á öðrum árs­fjórð­ungi þessa árs. Þrátt fyrir þetta kvartar fyr­ir­tækið yfir auk­inni skatt­lagn­ingu sem norsk yfir­völd ætla að leggja á lax­eldi í land­inu og seg­ist ætla að höfða mál­inu gegn rík­inu. Þetta kemur fram í árs­hluta­upp­gjöri norska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins, Mowi, sem á meiri­hluta í Arctic Fish. Upp­gjörið var kynnt í vik­unni. Mowi er jafn­framt stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki í heimi. Norskir fjöl­miðlar hafa fjallað um málið út frá þessum vinkli í vik­unni. 

Á heima­síðu Mowi er upp­gjörið kynnt með þeim hætti að met hafi verið slegið. „Annar met­fjórð­ungur hjá Mowi“ segir þar. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins á þessum tíma námu 1.365 millj­ónum evra eða tæp­lega 195 millj­örðum íslenskra króna. 

Með auk­inni skatt­lagn­ingu á sjó­kvía­eldið í Noregi hækkar auð­linda­skattur á fyr­ir­tækin úr 22 pró­sentum …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár