Óli Halldórsson hættur við að leiða lista VG í Norðausturkjördæmi

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mun leiða lista Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Óli Hall­dórs­son fær­ist niður í þriðja sætið en hann stígur til hliðar úr odd­vita­sæt­inu vegna veik­inda í fjöl­skyld­unni.

Óli varð efstur í forvali VG í Norðausturkjördæmi en Bjarkey Olsen í öðru.
Óli varð efstur í for­vali VG í Norð­aust­ur­kjör­dæmi en Bjarkey Olsen í öðru.

Óli Hall­dórs­son hefur af per­sónu­legum ástæðum ákveðið að víkja frá áformum sínum um að leiða fram­boð Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum. Óli greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni. Hann tók þessa ákvörðun vegna alvar­legra veik­inda eig­in­konu sinnar.

„Alvarleg veik­indi hafa komið upp hjá eig­in­konu minni, sem haft hafa í för með sér ófyr­ir­séðar áskor­anir. Í for­ystu­hlut­verk í póli­tík lands­mála fer maður ekki til smárra verka eða af hálfum hug. Ég tek því umboði sem mér var veitt í for­vali VG af mik­illi auð­mýkt og virð­ingu en óska vin­sam­leg­ast eftir því að mínum aðstæðum verði sýndur skiln­ingur. Með bjart­sýni á batn­andi heilsu og jafn­vægi fjöl­skyldu minnar með tím­anum mun ég von­andi hafa aðstæður til vax­andi þátt­töku fyrir VG á ný,“ skrifar Óli á Facebook síðu sinni. [adspot]

Stjórn kjör­dæm­is­ráðs hefur gert til­lögu að breyt­ingu á röðun á lista flokks­ins í kjör­dæm­inu. Hún gerir ráð fyrir að Óli muni skipa þriðja sæti list­ans. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir og Jódís Skúla­dóttir myndu því fær­ast upp um eitt sæti. Bjarkey myndi því leiða list­ann og Jódís yrði í öðru sæti hans. Bjarkey Olsen hefur setið á þingi fyrir flokk­inn síðan árið 2013 og er þing­flokks­for­maður hans. Jódís er sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi í Múla­þingi og per­sónu­vernd­ar­full­trúi hjá Aust­ur­brú.

Breyt­ing­ar­til­lagan verður lögð fyrir fund í kjör­dæm­is­ráði fyrir helgi, segir í til­kynn­ingu frá flokknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár