Búið að skrá sig fyrir öllu sem er til sölu í útboði á hlutum í Arion banka

Allt að 40 pró­sent hlutur í Arion banka er til sölu í útboði sem lýkur í dag. Fjár­festar hafa skráð sig fyrir öllum þeim hlut. Að mestu er um erlenda sjóði að ræða.

Fjár­festar hafa skráð sig fyrir öllum þeim hlutum sem eru til sölu í útboði á bréfum Arion banka og þeirri stækk­un­ar­heim­ild sem er til staðar. Samkvæmt skil­málum útboðs­ins var að minnsta kosti 25 pró­sent hlutur í bank­anum til sölu en í mesta lagi 40 pró­sent.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar vegna þessa er tekið fram að ekki sé búið að taka til­boðum né er búið að taka ákvörðun um útboðs­verð, enda lýkur almennu útboði á Íslandi og í Svíþjóð ekki fyrr en klukkan 15 í dag. Til­kynn­ingin var send út vegna ábend­ingar frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu.

[links]Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hafa erlendir vog­unar- og fjár­fest­ing­ar­sjóðir skráð sig fyrir stærstum hluta þeirra bréfa sem eru í boði. Þegar hafa tveir erlendir fjár­fest­ing­ar­sjóðir, Milton Asset Mana­gement Limited og Landsdowne Partners hafa skuld­bundið sig til að kaupa hluta­bréf í Arion banka fyrir sam­tals 60,5 millj­ónir dali, tæp­lega 6,4 millj­arða króna. Þeir verða svo­kall­aðir horn­steina­fjár­festar en þurfa ekki að und­ir­gang­ast neinar sölu­hömlur vegna kaupa sinna. Búast má við því að þeir eign­ist á bil­inu 4,4, til 5,2 pró­sent hlut í bank­an­um.

Sölu­verð hluta í Arion banka í yfir­stand­andi útboði hans er er umtals­vert undir bók­færðu eigin fé bank­ans. Það er, sam­kvæmt síð­asta birta upp­gjöri, 204 millj­arðar króna. Miðað við gengið sem verður í útboð­inu verður hlutafé í bank­anum til sölu á bil­inu 0,6 til 0,7 krónur fyrir hverja krónu af eigin fé. Miðað við það er Arion banki met­inn á 123 til 143 millj­arða króna. Bank­inn verður næst­verð­mætasta félag sem skráð verður á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði á eftir Mar­el, en virði þess er 263 millj­arðar króna. Bréf Arion banka verða tekin til við­skipta í kaup­höllum á Íslandi og Svíþjóð á föstu­dag, 15.júní.

Greinendur segja bankann metinn of lágt

Mark­að­ur­inn, fylgi­rit Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, greinir frá því í dag að grein­endur meti virði bréfa í Arion banka á 18 til 56 pró­sent yfir útboðs­gengi. Þannig verð­leggja sér­fræð­ingar Capacent til að mynda bréf í bank­anum á 0,94 krónur á hlut, sem myndi þýða að heild­ar­virði Arion banka væri 192,4 millj­arðar króna, eða 49,4 til 69,4 millj­örðum króna hærra en útboðs­gengið.

Kaup­þing, stærsti eig­andi Arion banka, á sem stendur 55,57 pró­sent hlut í bank­an­um. Auk þess á Arion banki 9,5 pró­sent í sjálfum sér. Einn núver­andi eig­enda Arion banka, Attestor Capital, mun einnig selja hluta af eign sinni í útboð­inu fái hann ásætt­an­legt verð fyr­ir.

Íslenska ríkið ákvað í aðdrag­anda útboðs­ins að for­kaups­réttur rík­is­ins muni ekki gilda við skrán­ing­una á mark­að. For­­kaups­­rétt­ur­inn var tryggður í stöð­ug­­leika­­samn­ingi við kröf­u­hafa Arion banka. Sam­­kvæmt honum virkj­­ast réttur rík­­is­ins til að ganga inn í við­­skipti með hluti í Arion banka ef verðið í þeim við­­skiptum fer niður fyrir 0,8 krónur á hverja krónu af bók­­færðu eigin fé Arion banka. Nú er ljóst að verðið í útboð­inu verður tölu­vert undir þeim mörk­um. En gangi spár grein­ing­ar­að­ila eftir er raun­virði hlut­ana í Arion umtals­vert hærra.

Ætla með arðsemi í tveggja stafa tölu

Síð­asta upp­gjör Arion banka þótti ekki mjög gott. Hagn­aður sam­­stæðu bank­ans á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2018 nam 1,9 millj­­örðum króna sam­an­­borið við 3,4 millj­­arða króna á sama tíma­bili 2017. Arð­­semi eigin fjár var aðeins 3,6 pró­sent sam­an­­borið við 6,3 pró­sent fyrir sama tíma­bil árið 2017, en þetta telst lágt í alþjóð­­legum sam­an­­burð­i.

Í skrán­ing­ar­lýs­ing­u bank­ans segir að Arion banki meti sem svo að rekstur hans hafi þró­ast með jákvæðum hætti frá því í lok mars 2018. „Hreinar vaxta­tekjur juk­ust í apr­íl, að hluta til vegna auk­innar verð­bólgu, sem hefur jákvæð áhrif á vaxta­mun bank­ans þar sem hann á meiri verð­tryggðar eignir en skuld­ir. Hreinar vaxta­tekjur juk­ust einnig vegna end­ur­greiðslu á skulda­bréfi á fyrsta árs­fjórð­ungi 2018 sem bar til­tölu­lega háa vexti, sem dró úr vaxta­kostn­aði. Lána­safn bank­ans hefur stækkað í sam­ræmi við vöxt­inn á fyrsta árs­fjórð­ungi með áfram­hald­andi vexti í hús­næð­is­lán­um, lánum til lít­illa og með­al­stórra félaga og útlánum til fyr­ir­tækja. Trygg­inga­starf­semi bank­ans hefur batnað eftir erf­iðan fyrsta árs­fjórð­ung. Kostn­að­ar­grunnur hefur fylgt sam­bæri­legri þróun og fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2018 og virð­is­rýrnun útlána hefur verið að mestu óbreytt frá lokum fyrsta árs­fjórð­ungs. Verk­efna­staða á útlána­sviðum og í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf eru í góðum far­veg­i.“

Í til­kynn­ingu sem birt var um miðjan maí, þar sem útboðið var boð­að, sagði að mark­mið Arion banka sé að vera með arð­semi eigin fjár sem sé yfir tíu pró­sent. Til að ná því er lík­legt að breyta þurfi fjár­mögnun bank­ans mjög með því að greiða út eigin fé og sækja víkj­andi lán (sett mark­mið er að minnka eig­in­fjár­hlut­fall úr 23,6 pró­sent í 17 pró­sent), minnka rekstr­ar­kostnað umtals­vert (kostn­að­ar­hlut­fall er nú 70,8 pró­sent en sett mark­mið er að ná því undir 50 pró­sent) t.d. með því að fækka starfs­fólki og ná hóf­legum vexti í útlánum sem sé í takti við vöxt í þjóð­ar­fram­leiðslu á Íslandi í nán­ustu fram­tíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár