Stór hlutur í Arion banka seldur langt undir bókfærðu eigin fé

Gengi bréfa í Arion banka í hluta­fjár­út­boði sem hefst í dag verður 0,6 til 0,7 krónur fyrir hverja krónu af bók­færðu eigin fé. Miðað við þetta er bank­inn met­inn á 123-143 millj­arða króna. Tveir erlendir sjóðir hafa skuld­bundið sig til að kaupa.

Söluverð hluta í Arion banka í fyr­ir­hug­uðu útboði hans er er umtals­vert undir bók­færðu eigin fé hans. Það er, sam­kvæmt síð­asta birta upp­gjöri, 204 millj­arðar króna. Miðað við gengið sem verður í útboð­inu verður hlutafé í bank­anum til sölu á bil­inu 0,6 til 0,7 krónur fyrir hverja krónu af eigin fé. Miðað við það er Arion banki met­inn á 123 til 143 millj­arða króna. Bankinn verður næst­verð­mætasta félag sem skráð verður á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði á eftir Marel, en virði þess er 264 millj­arðar króna.

Útboðið á bréfum Arion banka hefst í dag og end­an­legt útboðs­gengi verður til­kynnt 15. júní. Þann sama dag er áætlað að við­skipti með bréf Arion banka hefj­ist í kaup­höll­inni hér á landi og í Stokk­hólmi. Til stendur að selja að minnsta kosti 25 pró­sent hlut.

Tveir erlendir fjár­fest­inga­sjóðir, Milton Asset Mana­gement Limited og Landsdowne Partners hafa skuld­bundið sig til að kaupa hluta­bréf í Arion banka fyrir sam­tals 60,5 millj­ónir dali,

tæp­lega 6,4 millj­arða króna. Þeir verða svo­kall­aðir horn­steina­fjár­festar en þurfa ekki að und­ir­gang­ast neinar sölu­hömlur vegna kaupa sinna. Búast má við því að þeir eign­ist á bil­inu 4,4, til 5,2 pró­sent hlut í bank­anum.

Þetta kemur fram í skrán­ing­ar­lýs­ingu Arion banka sem birt var í dag.

Ýmsir áhættuþættir taldir til

Í henni eru taldir til þeir áhættu­þættir sem geti haft áhrif á virði og gengi Arion banka. Af inn­lendum þáttum eru geng­is­breyt­ingar á krón­unni efst á blaði. Þar á eftir kemur inn­lend verð­bólga og loks skortur á erlendri fjár­fest­ingu á Íslandi. Þá eru taldir til aðrir þættir eins og hátt skulda­hlut­fall fyr­ir­tækja og heim­ila, van­traust almenn­ings á banka­kerfið (20 pró­sent lands­manna treysta því), þess að enn eru fjár­mála­höft í gildi að hluta og mögu­leg end­ur­skipu­lagn­ing fjár­mála­kerf­is­ins.

Þá sé Ísland við­kvæmt fyrir ýmsum ytri þáttum eins og þróun efna­hags­mála alþjóð­lega og sér­stak­lega í Evrópu. Þar er sér­stak­lega minnst á mögu­legan óstöð­ug­leika sem gæti skap­ast á alþjóð­legum fjár­mála­mörk­uðum vegna fyr­ir­hug­aðrar útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. Leiði slíkur órói til sam­dráttar gæti það leitt til þess að eft­ir­spurn eftir helstu útflutn­ings­af­urðum Íslands; ferða­þjón­ustu, sjáv­ar­fangi og áli, myndi drag­ast saman.

Ríkið féll frá forkaupsrétti

Kaupþing, stærsti eig­andi Arion banka, á sem stendur 55,57 pró­sent hlut í bank­anum. Auk þess á Arion banki 9,5 pró­sent í sjálfum sér. Einn núver­andi eig­enda Arion banka, Attestor Capital, mun einnig selja hluta af eign sinni í útboð­inu fái hann ásætt­an­legt verð fyrir.

Íslenska ríkið ákvað í aðdrag­anda útboðs­ins að for­kaups­réttur rík­is­ins muni ekki gilda við skrán­ing­una á markað. For­kaups­rétt­ur­inn var tryggður í stöð­ug­leika­samn­ingi við kröfu­hafa Arion banka. Sam­kvæmt honum virkj­ast réttur rík­is­ins til að ganga inn í við­skipti með hluti í Arion banka ef verðið í þeim við­skiptum fer niður fyrir 0,8 krónur á hverja krónu af bók­færðu eigin fé Arion banka. Nú er ljóst að verðið í útboð­inu verður tölu­vert undir þeim mörkum.

Mikil hreyfing á eignarhaldi

Töluverð við­skipti hafa átt sér stað með hluti í Arion banka frá því að stöð­ug­leika­samn­ing­arnir voru und­ir­rit­aðir í lok árs 2015. Í fyrra keyptu fjórir af stærstu eig­endum Kaup­þings, Taconic Capital, Och-ZiffCapital Mana­gement Group, sjóðir í stýr­ingu Attestor Capital og Goldman Sachs, sam­tals 29,6 pró­sent hlut í Arion banka af sjálfum sér í fyrra. Tveir þeirra, Attestor og Goldman Sachs, bættu við sig 2,8 pró­sent hlut 13. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þá keyptu rúm­lega 20 sjóðir í stýr­ingu fjög­urra af stærstu sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum Íslands: Stefnis, Íslands­sjóða, Lands­bréfa og Júpíter, sam­tals 2,54 pró­sent hlut. Sam­an­lagt kaup­verð var um 9,5 millj­arðar króna.

Sama dag var kaup­réttur Kaup­þings á 13 pró­sent hlut rík­is­ins í Arion banka virkj­aður. Sá kaup­réttur var form­gerður í samn­ingi frá árinu 2009, var for­taks­laus og ein­hliða. Ríkið mátti því ekki hafna til­boð­inu án þess að ger­ast brot­legt við gerða samn­inga.

Gengið var form­lega frá sölu hlut­ar­ins 26. febr­úar síð­ast­lið­inn. Kaup­verðið var 23,4 millj­arðar króna og ekk­ert opið né gagn­sætt sölu­ferli fór fram. Um eina stærstu eigna­sölu rík­is­ins frá upp­hafi er að ræða.

Í dag er eign­ar­hald Arion banka því þannig að Kaupþing á 55,57 pró­sent hlut, Attestor Capital á 12,44 pró­sent, Taconic Capital á 9,99 pró­sent, Och-Ziff Capital á 6,58 pró­sent og Goldman Sachs á 3,37 pró­sent. Arion banki á auk þess 9,5 pró­sent hlut í sjálfum sér.

Lélegt uppgjör í upphafi árs en háleit markmið

Síðasta upp­gjör Arion banka þótti ekki mjög gott. Hagn­aður sam­stæðu bank­ans á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2018 nam 1,9 millj­örðum króna sam­an­borið við 3,4 millj­arða króna á sama tíma­bili 2017. Arð­semi eigin fjár var aðeins 3,6 pró­sent sam­an­borið við 6,3 pró­sent fyrir sama tíma­bil árið 2017, en þetta telst lágt í alþjóð­legum sam­an­burð­i.

Í skrán­ing­ar­lýs­ing­unni segir að Arion banki meti sem svo að rekstur hans hafi þró­ast með jákvæðum hætti frá því í lok mars 2018. „Hreinar vaxta­tekjur juk­ust í apríl, að hluta til vegna auk­innar verð­bólgu, sem hefur jákvæð áhrif á vaxta­mun bank­ans þar sem hann á meiri verð­tryggðar eignir en skuldir. Hreinar vaxta­tekjur juk­ust einnig vegna end­ur­greiðslu á skulda­bréfi á fyrsta árs­fjórð­ungi 2018 sem bar til­tölu­lega háa vexti, sem dró úr vaxta­kostn­aði. Lánasafn bank­ans hefur stækkað í sam­ræmi við vöxt­inn á fyrsta árs­fjórð­ungi með áfram­hald­andi vexti í hús­næð­is­lánum, lánum til lít­illa og með­al­stórra félaga og útlánum til fyr­ir­tækja. Trygg­inga­starf­semi bank­ans hefur batnað eftir erf­iðan fyrsta árs­fjórð­ung. Kostn­að­ar­grunnur hefur fylgt sam­bæri­legri þróun og fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2018 og virð­is­rýrnun útlána hefur verið að mestu óbreytt frá lokum fyrsta árs­fjórð­ungs. Verk­efna­staða á útlána­sviðum og í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf eru í góðum far­vegi.“

Í til­kynn­ingu sem birt var um miðjan maí, þar sem útboðið var boðað, sagði að mark­mið Arion banka sé að vera með arð­semi eigin fjár sem sé yfir tíu pró­sent. Til að ná því er lík­legt að breyta þurfi fjár­mögnun bank­ans mjög með því að greiða út eigin fé og sækja víkj­andi lán (sett mark­mið er að minnka eig­in­fjár­hlut­fall úr 23,6 pró­sent í 17 pró­sent), minnka rekstr­ar­kostnað umtals­vert (kostn­að­ar­hlut­fall er nú 70,8 pró­sent en sett mark­mið er að ná því undir 50 pró­sent) t.d. með því að fækka starfs­fólki og ná hóf­legum vexti í útlánum sem sé í takti við vöxt í þjóð­ar­fram­leiðslu á Íslandi í nán­ustu fram­tíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár