Forkaupsréttur ríkisins gildir ekki við frumskráningu Arion á markað

Íslenska ríkið hefur samið um að for­kaups­réttur þess muni ekki gilda við frum­skrán­ingu Arion banka á markað. Það verður því hægt að kaupa hluti í Arion banka á verði sem er undir 0,8 krónur af bók­færðu virði bank­ans.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið og Kaupþing hafa náð saman um að for­kaups­réttur rík­is­ins á hlutum í bank­anum verði „aðlag­aður“ á þann hátt að hann muni ekki gilda við frum­skrán­ingu Arion banka á skipu­legan verð­bréfa­markað og sölu á hlutum Kaup­þings/Kaup­skila sem fyr­ir­huguð er í tengslum við skrán­ing­una.

[links]For­kaups­rétt­ur­inn muni hins vegar að öðru leyti standa óhagg­aður eftir það. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá íslenska rík­inu.

For­kaups­réttur íslenska rík­is­ins var tryggður í stöð­ug­leika­samn­ingi við kröfu­hafa Arion banka. Samkvæmt honum virkj­ast réttur rík­is­ins til að ganga inn í við­skipti með hluti í Arion banka ef verðið í þeim við­skiptum fer niður fyrir 0,8 krónur á hverja krónu af bók­færðu eigin fé Arion banka.

Aðlög­unin felur því í sér að hægt verði að selja hluti í Arion banka á lægra verði en því í útboð­inu sem greint var frá í morgun að muni fara fram fyrir júní­lok.

Í frétta­til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að áskilið sé að núver­andi hlut­hafar í Arion banka, sem einnig eru hlut­hafar í Kaup­þingi, stærsta eig­anda Arion banka, muni ekki auka við hlut sinn við frum­skrán­ing­una.

Sölu­and­virði þeirra hluta­bréfa sem seld verða í tengslum við skrán­ing­una munu renna inn á skulda­bréf sem Kaupþing gaf út í tengslum við gerð stöð­ug­leika­samn­ing­anna. Eft­ir­stöðvar þess eru nú 29 millj­arðar króna.

Í til­kynn­ing­unni segir: „Ríkið mun fylgj­ast grannt með skrán­ingar- og sölu­ferl­inu og mun til­nefna eft­ir­lits­að­ila sem mun fylgj­ast með og hafa aðgang að öllum upp­lýs­ingum og gögnum sem varða ferlið.“

Kjarninn mun fjalla ítar­lega um málið í frétta­skýr­ingu síðar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár