Arion banki hyggur á skráningu á Íslandi og í Svíþjóð

Arion banki hefur unnið að skrán­ingu bank­ans á markað und­an­farin miss­eri.

Arion banki til­kynnti í morgun um að hann hyggð­ist efna til frumút­boðs á hluta­bréfum í bank­anum. Jafn­framt er ætl­unin að skrá hluta­bréf í bank­anum í kaup­höll á Íslandi og í Svíþjóð.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu bank­ans til Kaup­hallar.

Stefnt er að því að skrán­ing hluta­bréfa í bank­anum hjá Nasdaq á Íslandi og skrán­ing hluta­bréfa í formi svo­kall­aðra SDR (e. Swedish Depository Receipts) hjá Nasdaq í Stokk­hólmi fari fram á fyrri hluta árs­ins að því gefnu að laga­skil­yrði séu upp­fyllt og mark­aðs­að­stæður leyfi, að því er segir í til­kynn­ingu.

Unnið hefur verið að und­ir­bún­ingi skrán­ingar bank­ans und­an­farin miss­eri, en ríkið átti 13 pró­sent í bank­anum þar til fyrir skömmu, að það seldi hann fyrir 23,4 millj­arða króna.

Hagn­aður sam­stæðu Arion banka á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins nam 1,9 millj­örðum króna sam­an­borið við 3,4 millj­arða króna á sama tíma­bili 2017, eins og greint var frá á vef Kjarnans 2. maí. Arð­semi eigin fjár var aðeins 3,6% sam­an­borið við 6,3% fyrir sama tíma­bil árið 2017, en þetta telst lágt í alþjóð­legum sam­an­burð­i.

Þá var kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans hátt, eða 70,8 pró­sent, en til sam­an­burður hefur Lands­bank­inn, stærsti banki lands­ins, sett sér það mark­mið að ná kostn­að­ar­hlut­falli niður í 45 pró­sent.

Heild­ar­eignir námu 1.131,8 millj­örðum króna í lok mars 2018 sam­an­borið við 1.147,8 millj­arða króna í árs­lok 2017 og eigið fé hlut­hafa bank­ans nam 204,1 millj­örðum króna, sam­an­borið við 225,6 millj­arða króna í árs­lok 2017.

Stærsti eig­andi bank­ans, með 55,6 pró­sent hlut, er Kaupþing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár