Uppgjör Arion banka undir væntingum

Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans var yfir 70 pró­sent á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins og arð­semi eig­in­fjár undir fjórum pró­sentum, sem telst mjög lágt í banka­rekstri.

Hagnaður sam­stæðu Arion banka á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2018 nam 1,9 millj­örðum króna sam­an­borið við 3,4 millj­arða króna á sama tíma­bili 2017. Arðsemi eigin fjár var aðeins 3,6% sam­an­borið við 6,3% fyrir sama tíma­bil árið 2017, en þetta telst lágt í alþjóð­legum sam­an­burði.

Þá var kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans hátt, eða 70,8 pró­sent, en til sam­an­burður hefur Lands­bank­inn, stærsti banki lands­ins, sett sér það mark­mið að ná kostn­að­ar­hlut­falli niður í 45 pró­sent.

Heild­ar­eignir námu 1.131,8 millj­örðum króna í lok mars 2018 sam­an­borið við 1.147,8 millj­arða króna í árs­lok 2017 og eigið fé hlut­hafa bank­ans nam 204,1 millj­örðum króna, sam­an­borið við 225,6 millj­arða króna í árs­lok 2017.

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans var 23,6% í lok mars en var 24,0% í árs­lok 2017.

Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, segir í til­kynn­ingu að afkoman sé aðeins undir undir vænt­ingum. „Afkoma fyrsta árs­fjórð­ungs 2018 er aðeins undir vænt­ingum. Þókn­ana­tekjur og fjár­muna­tekjur þró­ast með jákvæðum hætti en vaxta­munur hefur lækkað, m.a. vegna sterkrar lausa­fjár­stöðu bank­ans og mik­illar sam­keppni á lána­mark­aði sem hefur þrýst á vaxta­kjör,“ segir Hösk­uldur.

Þá segir hann að sam­dráttur hafi verið í trygg­inga­tekjum frá dótt­ur­fé­lagi bank­ans, Verði. Hann skýrist meðal ann­ars af öku­tækjatjónum í vetur. „Tekjur dótt­ur­fé­lags­ins Valitor halda áfram að vaxa með áfram­hald­andi sókn á erlenda mark­aði en þeirri sókn fylgir jafn­framt umtals­verður kostn­aður og eru áhrif Valitor á afkom­una nei­kvæð. Áfram verður lögð áhersla á vöxt Valitor erlendis. Það eru spenn­andi tæki­færi á þeim mörk­uðum sem fyr­ir­tækið starfar á og frek­ari vöxtur getur haft veru­leg áhrif á hugs­an­legt mark­aðsvirði félags­ins á kom­andi miss­erum,“ segir Hösk­uldur.

Til stendur að skrá bank­ann á markað, en stærsti eig­andi bank­ans, með 55,6 pró­sent hlut, er Kaupþing. Það félag mun að lík­indum selja í kringum 30 pró­sent hlut í útboð­inu, sam­kvæmt umfjöllun Mark­að­ar­ins í morgun. Virði hluta Kaup­þings miðað við bók­fært eigið fé, er um 125 millj­arðar króna.

Hösk­uldur segir, að Arion banki hafi mikil sókn­ar­færi í upp­bygg­ingu staf­rænnar þjón­ustu og að hann hafi til þessa verið í leið­andi hlut­verki á því sviði. „Arion banki hefur markað sér nokkra sér­stöðu á íslenskum fjár­mála­mark­aði með því að kynna til leiks fjöl­breyttar og spenn­andi staf­rænar nýj­ungar á sviði fjár­mála­þjón­ustu. Markmið okkar er að gera þjón­ustu okkar eins ein­falda og þægi­lega fyrir okkar við­skipta­vini og við frekast getum. Við kynntum á fyrsta árs­fjórð­ungi m.a. ný staf­ræn lána­ferli fyrir skamm­tíma­lán og bíla­lán. Einnig þægi­legar leiðir til að dreifa greiðslum á kredit­kort og stofna sparn­að­ar­reikn­inga. Við sjáum að með þægi­legri banka­þjón­ustu eykst ánægja okkar við­skipta­vina á sama tíma og við upp­skerum aukna skil­virkni í okkar starf­semi. Nú er það svo að 96% snert­inga okkar við við­skipta­vini fara fram í gegnum staf­rænar leiðir. Það sýnir vel hve mikið fjár­mála­þjón­usta er að breyt­ast og höfum við því boðað breyt­ingar á úti­búa­neti okkar sem end­ur­spegla það. Mark­miðið með breyt­ing­unum er ann­ars vegar að efla okkar kjarna­útibú þar sem fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar geta sótt alla hefð­bundna fjár­mála­þjón­ustu og hins vegar að þróa minni úti­búin í takt við úti­búið okkar í Kringl­unni þar sem höf­uð­á­hersla er á staf­rænar lausnir,“ segir Hösk­uldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár