„Við ætlum ekki að vera rödd sundrungar – heldur rödd samstillts samfélags“

Formaður Við­reisnar telur að kosn­ing­arnar muni snú­ast að miklu leyti um það hvort Íslend­ingar fái rík­is­stjórn sem þori að fara í mik­il­vægar kerf­is­breyt­ingar sem tryggi eign­ar­hald þjóð­ar­innar á sjáv­ar­auð­lind­inni.

Þorgerður Katrín hélt ávarp sitt á landsfundi Viðreisnar í dag.
Þor­gerður Katrín hélt ávarp sitt á lands­fundi Við­reisnar í dag. Mynd: Aðsend mynd

„Í okkar huga snýst þetta ekk­ert endi­lega um vinstri eða hægri. Miklu frekar um sann­girni og tæki­færi. Við ætlum ekki að vera rödd sundr­ungar, heldur rödd sam­stillts sam­fé­lags. Því við trúum því, af fullri ein­lægni að saman gerum við sam­fé­lagið okkar betra.“

Þetta sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar á lands­þingi flokks­ins í dag. Fór hún yfir þau mál sem flokk­ur­inn náði í gegn á kjör­tíma­bil­inu og fram­tíð­ar­sýn hans.

Einangrunarsinnarnir pakka í vörn

Þor­gerður Katrín fjall­aði meðal ann­ars um Evr­ópu­mál í ávarpi sínu. „Ég velti því stundum fyrir mér þegar rætt er um Evr­ópu­málin hér á Íslandi og mögu­lega aðild að Evr­ópu­sam­band­inu hvernig standi á því að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hrökkva alltaf í bak­lás og fari með mön­tr­una um að málið sé ekki á dag­skrá.

Nú er það ekki svo að lykla­völd að ráðu­neytum geri menn að dag­skrár­stjórum í sam­fé­lags­um­ræð­unni, það er auð­vitað hugs­ana­villa í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. En það er einmitt þessi hugs­ana­villa sem er svo hættu­leg. Að vilja ekki ræða erfið mál og útkljá með lýð­ræð­is­legum hætti. Hvernig klára sið­aðar þjóðir sín deilu­mál? Jú, með samn­ingum eða kosn­ingu. Og hvernig leggjum við til að þetta deilu­efni sé leyst? Að það hefj­ist með þjóð­ar­at­kvæði, síðan er samið í vönd­uðu, skil­greindu ferli og svo er önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um samn­ing­inn. Þjóðin kýs tvisvar í þessu ferli. Slík lýð­ræð­is­veisla er stjórn­ar­flokk­unum hins vegar ekki að skapi.“

[adspot]

Þor­gerður Katrín sagði að í stað þess að hefja þessa veg­ferð og leyfa almenn­ingi að ráða för pökk­uðu ein­angr­un­ar­sinn­arnir í vörn og þyldu dóms­dags­spá um spænska tog­ara og enda­lok full­veld­is­ins, sem margoft væri búið að hrekja, sjálfir með krón­una eins og myllu­stein um háls­inn.

„Og ég skal vera alveg skýr, ef svo ólík­lega vildi til að samn­ing­ur­inn við ESB yrði fjand­sam­legur íslenskum hags­munum og auð­lindir okkar í hættu, þá yrði Viðreisn fyrsti flokk­ur­inn til að hafna slíkum samn­ingi. Við viljum nefni­lega ekki semja samn­ings­ins vegna, heldur til að bæta lífs­kjör á Íslandi.“

„Ekkert múður hér“

Þor­gerður Katrín telur að kosn­ing­arnar muni snú­ast að miklu leyti um það hvort Íslend­ingar fái rík­is­stjórn sem þori að fara í mik­il­vægar kerf­is­breyt­ingar sem tryggi eign­ar­hald þjóð­ar­innar á sjáv­ar­auð­lind­inni með tíma­bundnum samn­ingum og fyr­ir­sjá­an­leika fyrir útgerð­ina – og sann­gjarn­ari skipt­ingu af tekjum sjáv­ar­auð­lind­ar­innar.

„Það gerum við best með því að treysta mark­aðnum til að ákveða verð­mæti auð­lind­ar­innar. Ekkert múður hér. Mér sýn­ist reyndar að þjóðin sé okkur sam­mála þótt þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi nú tekið að sér starf blaða­full­trúa útgerð­anna,“ sagði hún.

Til þess að tryggja Viðreisn braut­ar­gengi þyrftu þau að láta rödd sína heyr­ast hátt og „yfir­gnæfa klið­inn í fugla­bjarg­inu og koma í veg fyrir að rán­fuglar valdi þar usla og óör­yggi. Við vitum að lífs­bar­áttan í sam­fé­lag­inu snýst ekki bara um lífs­af­komu og öryggi, heldur líka um stefnu og fram­tíð­ar­sýn í grund­vall­ar­málum,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár