Flestir ráðherrar í tvær skimanir og smitgát eftir kvöldverð á Suðurlandi

Ákveðið hefur verið að ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni fari í tvær skimanir og við­hafi smit­gát á milli, vegna hópsmits sem kom upp á Hótel Rangá, þar sem flestir ráð­herrar borð­uðu kvöld­mat síð­asta þriðju­dag.

Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar nema heilbrigðisráðherra og félags- og barnamálaráðherra þurfa fara í tvær skimanir og viðhafa smitgát á milli.
Allir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar nema heil­brigð­is­ráð­herra og félags- og barna­mála­ráð­herra þurfa fara í tvær skimanir og við­hafa smit­gát á milli. Mynd: Bára Huld Beck

Ákveðið hefur verið að nær allir ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands fari í tvö­falda skimun og við­hafi smit­gát á milli, eftir að nokkur kór­ónu­veirusmit greindust í gær hjá ein­stak­lingum sem dvöldu á Hótel Rangá.

Rík­is­stjórnin snæddi kvöld­verð á hót­el­inu þriðju­dag­inn 18. ágúst, eftir að hafa haldið rík­is­stjórn­ar­fund á Hellu. Fyrri skimun ráð­herr­anna fer fram síðar í dag og sú síð­ari á mánu­dag. Þetta kemur fram á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Þar kemur fram að ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar telj­ist til „ytri hrings hins mögu­lega smit­hóps“ og séu því ekki hluti þess hóps sem auknar líkur eru á að hafi verið útsettur fyrir smiti.

Svandís og Ásmundur sleppa

Tveir ráð­herrar snæddu ekki á Hótel Rangá, Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra og Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra. Þau þurfa því ekki að und­ir­gang­ast ráð­staf­an­irnar.

Ráð­staf­anir sótt­varn­ar­yf­ir­valda í kjöl­far athug­unar smitrakn­ing­arteymis skipta þeim sem höfðu við­komu á Hótel Rangá í þrjá hópa, sam­kvæmt því sem kemur fram á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Fyrsti hóp­ur­inn er sá sem er lík­leg­astur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og hefur í dag 14 daga sótt­kví. Annar hóp­ur­inn er tal­inn minna lík­legur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og fer í eina skimun og við­hefur úrvinnslu­sótt­kví þar til nið­ur­staða úr skimun berst.

Þriðji hóp­ur­inn, sem rík­is­stjórnin til­heyrir og er sömu­leiðis minna útsettur fyrir smitum, fer í tvö­falda skimun og við­hefur smit­gát á milli, sem er sú aðferð sem notuð hefur verið fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk, lög­reglu­fólk, fram­línu­fólk í orku­fyr­ir­tækjum og lyk­il­starfs­fólk hjá fjöl­miðlum og í stjórn­kerf­inu, sam­kvæmt því sem segir í til­kynn­ingu rík­is­stjórn­ar­innar um þetta efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár