Búið að birta útdrátt úr ársreikningum sjö af átta stjórnmálaflokkum á þingi

Fjár­hags­staða íslenskra stjórn­mála­flokka er mis­mun­andi. Allir flokkar skil­uðu árs­reikn­ingi fyrir 1. októ­ber líkt og lög gera ráð fyrir, en ekki er búið að birta útdrátt úr reikn­ingi Sjálf­stæð­is­flokks. Rík­is­fram­lög til þeirra aukast um 127 pró­sent í ár.

Allir stjórn­mála­flokkar sem eiga full­trúa á Alþingi skil­uðu árs­reikn­ingum sínum til rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir 1. októ­ber síð­ast­lið­inn, en lög­bund­inn frestur þeirra til að gera slíkt rann út þá.

[links]Rík­is­end­ur­skoðun er þegar búin að birta útdrátt úr reikn­ingumsjö flokka. En á eftir að birta útdrátt úr árs­reikn­ingi eins flokks sem á kjörna þing­menn, Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætt­inu var árs­reikn­ingi flokks­ins þó skilað á réttum tíma og ástæða þess að ekki hefur verið birtur útdráttur sé sá að það vant­aði svör við við­bót­ar­spurn­ingu sem hafa ekki borist. Búast má við því að útdrátt­ur­inn verði birtur strax og þau svör ber­ast, sem ætti að verða í nán­ustu fram­tíð sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá rík­is­end­ur­skoðun.

Miðflokkurinn og Vinstri græn

Árið 2017 var kosn­ingaár og en rekstr­ar­kostn­aður flokk­anna er þá vana­lega mun hærri en á árum þar sem ekki er kosið. Árið 2016 var reyndar líka kosn­ingaár. Tekjur flokk­anna sam­an­standa að mestu af fram­lögum úr rík­is­sjóði, fram­lögum lög­að­ila (sem hver má gefa upp að 400 þús­und krónum) og fram­lögum ein­stak­linga (sem hver má gefa upp að 400 þús­und krónum).

[adspot]Mið­flokk­ur­inn, sem stofn­aður var skömmu fyrir síð­ustu kosn­ingar, tap­aði 15,9 millj­ónum króna á árinu 2017. Hann fékk þrjár millj­ónir króna í fram­lög frá rík­inu sem allir flokkar fengu sem við­bót­ar­fram­lag úr rík­is­sjóði í fyrra til að mæta útlögðum kostn­aði vegna kosn­inga­bar­áttu , 6,9 millj­ónir króna frá lög­að­ilum og 1,9 milljón króna frá ein­stak­lingum. Skuldir flokks­ins í árs­lok námu 17,2 millj­ónum króna.

Vinstri græn fengu alls fram­lög upp á 79,9 millj­ónir króna. Þar af komu 55,9 úr rík­is­sjóði, 3,6 millj­ónir frá sveit­ar­fé­lögum og 5,4 millj­ónir króna voru fram­lög lög­að­ila. Ein­stak­lingar lögðu flokknum til 14,8 millj­ónir króna og aðild­ar­fé­lög 420 þús­und krónur. Þetta dugði þó ekki til að skila flokknum á sléttu því rekstr­ar­gjöld námu 94,6 millj­ónum króna. Tap flokks­ins, að með­töldum fjár­magns­gjöldum, var 13,8 millj­ónir króna. Eigið fé Vinstri grænna var nei­kvætt um 18 millj­ónir króna í árs­lok 2017 og flokk­ur­inn skuld­aði 37,5 millj­ónir króna.

Flokkur fólksins, Viðreisn og Samfylking

Flokkur fólks­ins fékk 13,3 millj­ónir króna í rík­is­fram­lög, 100 þús­und krónur frá lög­að­ila, og tæp­lega 1,1 milljón króna frá ein­stak­lingum. Samtals námu því tekjur flokks­ins 14,5 millj­ónum króna en rekstur hans kost­aði 18,5 millj­ónir króna. Því var um fjög­urra milljón króna tap á rekstr­inum á árinu 2017 og eigið fé flokks­ins var nei­kvætt um 5,8 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót.

Viðreisn fékk 38,7 millj­ónir króna í rík­is­fram­lög og 11,8 millj­ónir króna frá lög­að­ilum. Ein­stak­lingar gáfu flokknum 9,7 imlljónir króna og tekjur hans voru því sam­tals 60,2 millj­ónir króna. Rekstr­ar­kostn­aður var 58,6 millj­ónir króna og því var hagn­aður á rekstri Við­reisnar upp á 1,5 milljón króna. Alls skuldar flokk­ur­inn samt sem áður 10,2 millj­ónir króna sem er til­komið vegna kostn­aðar við rekstur hans árið áður, þegar hann var form­lega stofn­aður og bauð fram í fyrsta sinn.

Sam­fylk­ingin fékk um 23 millj­ónir króna í rík­is­fram­lög á árinu 2017, sem var rúm­lega helm­ingur þess sem flokk­ur­inn fékk í slík árið áður. Ástæðan er afhroð flokks­ins í þing­kosn­ing­unum 2016. Framlög sveit­ar­fé­laga í fyrra námu 11,5 millj­ónum króna og flokk­ur­inn fékk 6,7 millj­ónir króna frá lög­að­ilum. Framlög ein­stak­linga marg­föld­uð­ust hins vegar á milli ára. Nánar til­tekið nán­ast þre­föld­uð­ust þau, fóru úr tæp­lega 13 millj­ónum króna í 37 millj­ónir króna. Rekstr­ar­gjöldin námu 55 millj­ónum króna og því var 26,7 milljón króna hagn­aður af rekstr­inum í fyrra þegar búið var að taka til­lit til fjár­magns­gjalda. Sam­fylk­ingin er þó tölu­vert skuld­sett, en skuldir hennar nema alls 114,4 millj­ónum króna. Á móti á flokk­ur­inn eignir upp á 191 milljón króna.

Framsókn og Píratar

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk 44,3 millj­ónir króna í rík­is­fram­lag á árinu 2017, sem var rúm­lega helm­ingi minna en hann fékk 2016. Ástæðan er, líkt og hjá Sam­fylk­ing­unni, afleit útkoma í kosn­ing­unum 2016. Sveit­ar­fé­lög létu Framsókn fá 5,7 millj­ónir króna og lög­að­ilar 8,4 millj­ónir króna. Framlög ein­stak­linga námu 6,4 millj­ónum króna. Þá var flokk­ur­inn með „aðrar rekstr­ar­tekjur“ upp á 12,2 millj­ónir króna. Rekstur Fram­sóknar kost­aði hins vegar 107,5 millj­ónir króna á árinu 2017 og að með­töldum fjár­magns­kostn­aði var tap flokks­ins 39,1 milljón króna. Framsókn á, líkt og flestir eldri flokkar lands­ins, tölu­verðar eignir. Þær eru sam­tals metnar á 183,8 millj­ónir króna. Skuldir flokks­ins eru þó langt umfram það, eða 242,3 millj­ónir króna og eigið fé hans var því nei­kvætt um 58,5 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Eig­in­fjár­staðan versn­aði um tæpar 40 millj­ónir króna í fyrra.

[adspot]Píratar fengu 66,8 millj­ónir króna frá rík­is­sjóði á árinu 2017, 1,4 milljón króna frá sveit­ar­fé­lögum og 560 þús­und krónur frá lög­að­ilum. Ein­stak­lingar gáfu flokknum 8,4 millj­ónir króna og því námu tekjur hans sam­tals um 77,3 millj­ónum króna. Rekstr­ar­kostn­aður var 61 milljón króna og því skil­uðu Píratar um 16 milljón króna hagn­aði á árinu 2017 þegar búið var að taka til­lit til fjár­magns­gjalda. Flokk­ur­inn skuldar ein­ungis um eina milljón króna og því var eigið fé hans jákvætt um 47 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót.

Stóraukin ríkisframlög

Allir flokk­arnir átta sem eiga full­trúa á þingi geta þó horft björtum fjár­hags­legum augum til fram­tíðar. Á milli jóla og nýárs 2017 var sam­þykkt að hækka fram­lög rík­is­sjóðs til stjórn­mála­flokka um 127 pró­sent, í 648 millj­ónir króna árlega. Þetta var gert með vegna sam­eig­in­legs erindi sex stjórn­mála­flokka. Full­trúar Pírata og Flokks fólks­ins skrif­uðu sig ekki á erindið.

Erindið bar yfir­­­­­­­skrift­ina „Nauð­­­­syn­­­­leg hækkun opin­berra fram­laga til stjórn­­­­­­­mála­­­­sam­taka“. Í því er farið fram á að fram­lög til stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka verði „leið­rétt“.

Í grein­­­­ar­­­­gerð sem fylgdi erind­inu segir að sú upp­­­­hæð sem stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum sé ætluð á fjár­­­­lögum hafi lækkað um helm­ing á raun­virði frá árinu 2008. Nú eigi átta flokkar full­­­­trúa á Alþingi. „Hver þeirra stendur fyrir eigin rekstri og á að reka virkt og ábyrgt stjórn­­­­­­­mála­­­­starf um allt land, jafnt á sviði lands­­­­mála og sveit­­­­ar­­­­stjórna, árið um kring.

Til sam­an­­­­burðar má nefna að dóms­­­­mála­ráðu­­­­neytið hefur sagt að kostn­aður vegna alþing­is­­­­kosn­­­­ing­anna á síð­­­­asta ári hafi verið rétt tæpar 350 millj­­­­ón­ir, og að gera mætti ráð fyrir að hann yrði svip­aður í ár. Stjórn­­­­­­­mála­­­­sam­tök starfa í þágu almanna­hags­muna en hafa hvergi nærri bol­­­­magn á við helstu hags­muna­­­­sam­tök. Flestir flokkar eru reknir með 0-5 starfs­­­­mönnum í dag og sam­tals eru 13 fast­ráðnir starfs­­­­menn hjá þeim átta flokkum sem eiga full­­­­trúa á Alþingi.

Til sam­an­­­­burðar má geta að Sam­tök atvinn­u­lífs­ins eru með 30 starfs­­­­menn, Sam­tök iðn­­­­að­­­­ar­ins 16, Sam­tök fyr­ir­tækja í sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegi 15, ASÍ með 22 og VR 62 starfs­­­­menn. Í þessu umhverfi er stuðn­­­­ingur við nýsköp­un, þró­un, sér­­­­fræð­i­þekk­ingu og alþjóða­­­­tengsl eng­inn inni í stjórn­­­­­­­mála­­­­sam­tök­un­um; endar ná ekki saman til að sinna grunn­þörfum í rekstri stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og að upp­­­­­­­fylla mark­mið lag­anna. Lýð­ræðið á Íslandi á betra skil­ið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár