Stjórnarflokkarnir fá 347,5 milljónir úr ríkissjóði – Hinir 300,5 milljónir

Framlög til stjórn­mála­flokka hækk­uðu um 127 pró­sent milli ára. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti flokkur lands­ins og fær því eðli máls­ins sam­kvæmt hæsta rík­is­styrk­inn, 166 millj­ónir króna.

Forystumenn ríkisstjórnarflokkanna geta brosað alla leiðina í bankann. Framlög til flokka þeirra hækkuðu um 195 milljónir króna á milli ára.
For­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna geta brosað alla leið­ina í bank­ann. Framlög til flokka þeirra hækk­uðu um 195 millj­ónir króna á milli ára. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur birt yfir­lit um greiðslur rík­is­ins til stjórn­mála­flokka á árinu 2018. Á loka­metrum síð­asta þings var sam­þykkt til­laga sex þeirra átta flokka sem eiga full­trúa á Alþingi um að hækka fram­lög rík­is­sjóðs til stjórn­mála­flokka um 127 pró­sent, í 648 millj­ónir króna árlega. Flokk­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír fá sam­tals 347,5 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og fram­lög til þeirra hækka um 195 millj­ónir króna. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fá 300,5 millj­ónir króna, sem er 137 millj­ónum króna meira en þeir hefðu fengið ef fram­lögin hefðu ekki verið hækkuð.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, stærsti flokkur lands­ins, fær hæstu upp­hæð­ina, 166 millj­ónir króna. Ef fram­lögin hefðu ekki verið hækkuð hefði fram­lag til hans verið 93 millj­ónum krónum lægra. Vinstri græn fá næst mest, 111 ,1 millj­ónir króna, en hefðu fengið 49 millj­ónir króna ef fram­lögin hefðu ekki verið hækkuð. Mun­ur­inn er 62 millj­ónir króna. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fær 70,4 millj­ónir króna en hefði fengið 31 milljón króna ef fram­lögin hefðu staðið óbreytt. Mun­ur­inn er um 39 millj­ónir króna.

Sam­fylk­ingin er stærst stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. Hún fær 79,3 millj­ónir króna en hefði átt að fá 35 millj­ónir króna ef fram­lögin hefðu ekki verið hækk­uð. Mun­ur­inn er um 45 millj­ónir króna. Mið­flokk­ur­inn er fær nán­ast sama fram­lag og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, eða 71,5 milljón króna í stað 31 milljón króna sem hefði fallið honum í skaut ef fram­lag til hans hefði ekki verið hækk­að. Mun­ur­inn er um 40 millj­ónir króna. Við­reisn hefði fengið 20 millj­ónir króna ef fram­lagið hefði ekki verið hækkað en fá nú 44 millj­ónir króna. Mun­ur­inn er 24 millj­ónir króna.

Þeir tveir flokkar sem eiga sæti á Alþingi sem skrif­uðu sig ekki á sam­eig­in­legt erindi sem sent var til fjár­laga­nefndar Alþingis 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem óskað var eftir við­bót­ar­fram­lag­inu, Píratar og Flokkur fólks­ins, njóta samt sem áður góðs af hækk­un­inni. Píratar munu fá 60,5 millj­ónir króna í stað 27, sem er hækkun upp á um 33 millj­ónir króna. Flokkur fólks­ins, sem náði í fyrsta sinn kjöri til Alþingis í kosn­ing­unum í haust, fær rúm­lega 45 millj­ónir króna en hefði fengið 20 millj­ónir króna ef ekki væri fyrir við­bót­ar­fram­lag­ið. Það er hækkun upp á 25 millj­ónir króna.

Ósk­uðu eftir „leið­rétt­ingu“

Full­­trú­­arnir sex sem sendu hið sam­eig­in­lega erindi eru Ásgeir Run­­­ólfs­­­son, full­­­trúi Sam­­­fylk­ing­­­ar­inn­­­ar, Birna Þór­­­ar­ins­dótt­ir, fram­­­kvæmda­­­stjóri Við­reisn­­­­­ar, Björg Eva Erlends­dótt­ir, fram­­­kvæmda­­­stjóri Vinstri grænna, Einar Gunnar Ein­­­ar­s­­­son, fram­­­kvæmda­­­stjóri Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks­ins, Svanur Guð­­­munds­­­son, full­­­trúi Mið­­­flokks­ins, og Þórður Þór­­­ar­ins­­­son, fram­­­kvæmda­­­stjóri Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins. Líkt og áður sagði skrif­uðu hvorki Píratar né Flokkur fólks­ins sig á erind­ið.

Erindið bar yfir­­­­­skrift­ina „Nauð­­­syn­­­leg hækkun opin­berra fram­laga til stjórn­­­­­mála­­­sam­taka“. Í því er farið fram á að fram­lög til stjórn­­­­­mála­­­flokka verði „leið­rétt“.

Í grein­­­ar­­­gerð sem fylgdi erind­inu segir að sú upp­­­hæð sem stjórn­­­­­mála­­­flokkum sé ætluð á fjár­­­lögum hafi lækkað um helm­ing á raun­virði frá árinu 2008. Nú eigi átta flokkar full­­­trúa á Alþingi. „Hver þeirra stendur fyrir eigin rekstri og á að reka virkt og ábyrgt stjórn­­­­­mála­­­starf um allt land, jafnt á sviði lands­­­mála og sveit­­­ar­­­stjórna, árið um kring.

Til sam­an­­­burðar má nefna að dóms­­­mála­ráðu­­­neytið hefur sagt að kostn­aður vegna alþing­is­­­kosn­­­ing­anna á síð­­­asta ári hafi verið rétt tæpar 350 millj­­­ón­ir, og að gera mætti ráð fyrir að hann yrði svip­aður í ár. Stjórn­­­­­mála­­­sam­tök starfa í þágu almanna­hags­muna en hafa hvergi nærri bol­­­magn á við helstu hags­muna­­­sam­tök. Flestir flokkar eru reknir með 0-5 starfs­­­mönnum í dag og sam­tals eru 13 fast­ráðnir starfs­­­menn hjá þeim átta flokkum sem eiga full­­­trúa á Alþingi.

Til sam­an­­­burðar má geta að Sam­tök atvinn­u­lífs­ins eru með 30 starfs­­­menn, Sam­tök iðn­­­að­­­ar­ins 16, Sam­tök fyr­ir­tækja í sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegi 15, ASÍ með 22 og VR 62 starfs­­­menn. Í þessu umhverfi er stuðn­­­ingur við nýsköp­un, þró­un, sér­­­fræð­i­þekk­ingu og alþjóða­­­tengsl eng­inn inni í stjórn­­­­­mála­­­sam­tök­un­um; endar ná ekki saman til að sinna grunn­þörfum í rekstri stjórn­­­­­mála­­­flokka og að upp­­­­­fylla mark­mið lag­anna. Lýð­ræðið á Íslandi á betra skil­ið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár