Bandaríkin sér á báti utan Parísarsamkomulagsins

Óhætt er að segja að Donald Trump hafi ein­angrað Banda­ríkin á alþjóða­vett­vangi, þegar kemur að aðgerðum í lofts­lags­málum.

Banda­ríkin verða eina aðild­ar­ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna sem verða utan við Par­ís­ar­sam­komu­lagið um að draga úr mengun, eftir að stjórn­völd í Sýrlandi ákváðu að sam­þykkja það fyrir sitt leyti.

Stjórn­völd í Sýrlandi kynntu afstöð­una á fundi í Bonn í gær.

Par­ís­ar­sam­komu­lagið var sam­þykkt árið 2015 en með því ákváðu aðild­ar­ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna að standa saman að aðgerðum til að sporna við hlýnun jarðar og draga mengun. Markmið sam­komu­lags­ins hafa verið lög­leidd í aðild­ar­ríkj­unum, og eru ríkin þegar farin að vinna í sam­ræmi við þau.

Donald J. Trump, Banda­ríkja­for­seti, ákvað að draga Banda­ríkin út úr sam­komu­lag­inu þar sem hann taldi það fara gegn banda­rískum hags­munum.

Þessu var mót­mælt víða í Banda­ríkj­unum, og tóku meðal ann­ars 50 stærstu borgir Banda­ríkj­anna sjálf­stæða ákvörðun um að halda áfram að vinna eftir Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu og mörg ríkja Banda­ríkj­anna sömu­leiðis.

Þetta hafa stærstu fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna raunar einnig gert.

Sýrland og Ník­aragva voru einu ríkin sem ekki skrif­uðu undir 2015, en á ólíkum for­sendum þó. Stjórn­völd í Ník­aragva töldu ekki nógu langt gengið, á meðan stjórn­ar­farið í Sýrlandi var svo til i molum, þegar fund­ur­inn fór fram, vegna borg­ara­styrj­aldar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár