Varafréttastjóri RÚV gerir athugasemdir við afsökunarbeiðni Samherja

Heiðar Örn Sig­ur­finns­son segir það ekki vera mjög skýrt hver innan Samherja hafi verið að biðj­ast afsök­unar né á hverju. Þá liggi ekki fyrir hvern sé verið að biðja afsök­unar.

Heiðar Örn Sigurfinnsson, varafréttastjóri fréttastofu RÚV:
Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, vara­f­rétta­stjóri frétta­stofu RÚV: Mynd: RÚV/Skjáskot

Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, vara­f­rétta­stjóri frétta­stofu RÚV, segir að með afsök­un­ar­beiðni Samherja, sem birt var í gær, kveði við nýjan tón og vonar að það verði fram­hald þar á. Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir hann þó ýmis­legt við afsök­un­ar­beiðn­ina trufla.

Athuga­semdir Heiðars eru aðal­lega, en þó ekki ein­göngu, þrjár.

Í stöðu­upp­færsl­unni skrifar hann: „Í fyrsta lagi er ekki mjög skýrt hver er að biðj­ast afsök­unar. Það er eng­inn skrif­aður fyrir þess­ari afsök­un­ar­beiðni - ein­ungis sagt að Samherji vilji biðj­ast afsök­unar á fram­göngu ótil­greindra stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins. Hvers vegna eru það ekki stjórn­end­urnir sjálfir sem biðj­ast afsök­unar á fram­göngu sinni?

Í öðru lagi er ekki mjög skýrt á hverju er beðist afsök­unar. Þar segir ein­göngu að það sé ljóst að of langt hafi verið gengið í harka­legum við­brögðum við „nei­kvæðri umfjöllun" og á þeirri fram­göngu vilji fyr­ir­tækið biðj­ast afsök­unar. Hvaða harka­legu við­brögð er átt við? Eru það mynd­böndin sem fram­leidd voru þar sem frétta­menn Kveiks voru meðal ann­ars sak­aðir um að falsa skjöl til stuðn­ings umfjöllun sinni? Eru til­raunir til að hafa af fjöl­miðla­fólki æruna? Er það „spæj­ar­inn" sem elti Helga Seljan á röndum, sat fyrir honum á kaffi­húsi og sendi ógn­andi sms? Eru það njósnir um aðra fjöl­miðla­menn og lista­menn? Er það kannski allt þetta eða eitt­hvað annað sem ekki hefur komið fram í opin­berri umræðu?

[adspot]Í þriðja lagi er ekki mjög skýrt hvern er verið að biðja afsök­unar þar sem það er óljóst á hverju er beðist afsök­unar. Er verið að biðja Helga Seljan afsök­unar? Eða allan almenn­ing? Eða kannski bara starfs­fólk Samherja?

Kannski hefði þessi afsök­un­ar­beiðni verið betri ef það væri skýr­ara hver væri að biðja hvern afsök­unar og á hverju. Eins og fram kom í frétt RÚV í kvöld þá vildi for­stjóri Samherja ekki veita við­tal til að skýra það. Ekki frekar en hann hefur viljað veita við­töl til að svara þeim ásök­unum sem settar hafa verið fram.“

Samherji sagði stjórnendur hafa gengið „of langt“

Samherji birti yfir­lýs­ingu á vef fyr­ir­tæk­is­ins í gær þar sem sagði meðal ann­ars að ljóst sé að stjórn­endur félags­ins hafi gengið „of langt“ í við­brögðum við „nei­kvæðri umfjöllun um félagið“.

„Af þeim sökum vill Samherji biðj­ast afsök­unar á þeirri fram­göngu,“ sagði í yfir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, en ekki er útskýrt í frek­ari smá­at­riðum að hvaða leyti gengið hafi verið of langt eða nákvæm­lega hverju verið sé að biðj­ast afsök­unar á.

Í yfir­lýs­ing­unni sagði einnig að stjórn­endum og starfs­fólki Samherja hafi þótt umfjöllun og umræða um fyr­ir­tækið á und­an­förnum árum „ein­hliða, ósann­gjörn og ekki alltaf byggð á stað­reyndum.“ Þegar svo sé – og „vegið að starfs­heiðri með ósann­gjörnum hætti á opin­berum vett­vangi“ – geti reynst erfitt að bregð­ast ekki við.

Umræða „skæruliðadeildarinnar“ hafi verið „óheppileg“

Samherji vís­aði til fjöl­miðlaum­fjöll­unar um þau sam­skipta­gögn fyr­ir­tæk­is­ins sem Kjarninn og Stundin hafa undir höndum og hafa fjallað um und­an­farna viku í fréttum og frétta­skýr­ingum. Fyr­ir­tækið sagði að „þau orð“ og „sú umræða sem þar var við­höfð“ hafi verið „óheppi­leg“.

[links]„Þarna var um að ræða per­sónu­leg sam­skipti á milli starfs­fé­laga og vina sem eng­inn gerði ráð fyrir að yrðu opin­ber,“ segir í yfir­lýs­ingu Samherja, en fyr­ir­tækið hafn­aði því að svara spurn­ingum Kjarnans um það sem kemur fram í gögn­unum á þeim grund­velli að gögn­unum hefði verið stolið.

Í svari sem Arnar Þór Stef­áns­son, lög­maður á Lex, sendi fyrir hönd Samherja síð­degis fimmtu­dag­inn 20. maí kom fram að fyrir lægi að þau gögn sem umfjöllun Kjarnans byggði á hefðu feng­ist með inn­broti í síma og tölvu Páls Stein­gríms­sonar, starfs­manns Samherja.

Páll hefði kært inn­brotið og með­ferð gagn­anna til lög­reglu og það biði lög­reglu­rann­sóknar. „Hvorki Samherji hf. né fyr­ir­svars­menn félags­ins munu fjalla um inn­tak gagna sem aflað hefur verið með refsi­verðum hætti. Með því væri verið að ljá umfjöllun vægi sem hún á ekki skilið. Fyr­ir­spurnum yðar verður því ekki svarað,“ sagði í svari lög­manns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár