Tæplega 5.500 komnir í sóttkví

Á sjötta þús­und manns eru nú í sótt­kví víða um land vegna nýju kór­ónu­veirunnar. Greindum smitum hefur fjölgað um rúm­lega sex­tíu milli daga.

Staðfest smit af nýju kór­ónu­veirunni eru nú orðin 473 hér á landi. Þau voru 409 í gær. 5.448 manns eru í sótt­kví víða um land. Til sam­an­burðar eru íbúar Sel­tjarn­ar­ness um 4.600 og Skaga­menn rúm­lega 7.200.

Greindum smitum hefur því fjölgað um 64 á einum sól­ar­hring. Svipað gerð­ist í gær á milli daga. Þá eru tæp­lega 1300 fleiri í sótt­kví í dag en í gær.

Sex eru á sjúkra­húsi vegna COVID-19 en 22 sjúk­lingar hafa náð bata. 

Þetta kemur fram á vefnum Covid.is. Samkvæmt gögnum sem þar birt­ast hefur einn maður á tíræð­is­aldri sýkst af veirunni hér á landi og fimm börn yngri en tíu ára. Flest smitin hafa greinst í ald­urs­hópnum 40-49 ára.

Uppruni 157 smita er óþekktur. 161 smit er rakið til útlanda og 155 eru svokölluð inn­an­lands­smit.

Fjölgun fólks í sótt­kví má m.a. rekja til þess að nú þurfa allir sem búsettir eru á Íslandi að fara í sótt­kví eftir heim­komu frá útlöndum. Samtals hafa 753 nú lokið sótt­kví.

[links]Tæplega 9.800 sýni hafa verið tekin. Sýna­tökur voru mun færri í gær en dag­ana á undan. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir greindi frá því á upp­lýs­inga­fundi í gær að það stefndi í tíma­bund­inn skort á sýna­tökupinnum og því væri nú for­gangs­raðað í sýna­tökur. Þeir sem sýna ein­kenni eða hafa umgeng­ist þá sem hafa sýkst eru enn allir teknir í sýna­töku.

Vonast hann til að nýir pinnar komi til lands­ins á næst­unni svo hægt verði að halda áfram að skima ræki­lega fyrir veirunni.

Þórólfur sagði einnig á fund­inum í gær að aukn­ing milli daga í fjölda greindra smita sýndi að far­ald­ur­inn væri í vexti eins og búast mátti við. „Við munum halda áfram þeim aðgerðum sem við höfum beitt; greina snemma, ein­angra og beita í sótt­kví. Þetta eru mik­il­væg­ustu aðgerð­irnar sem við getum beitt til að hefta útbreiðsl­una.“

Ítrekaði hann mik­il­vægi sótt­kvíar og að þeir sem væru í sótt­kví færu að fyr­ir­mælum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár