Loftslagsfræðingar orðlausir yfir hraða eldanna

Þó að sér­fræð­ingar í lofts­lags­málum hafi varað við því að risa­vaxnir skóg­ar­eldar gætu blossað upp í Banda­ríkj­unum á mörgum stöðum í einu og á sama tíma voru þeir ekki undir það búnir að það myndi ger­ast núna. Þeir töldu ára­tugi í ham­far­irnar.

Dýraeftirlitsmaður í Berry Creek í Kaliforníu sinnir hesti sem var skilinn eftir er eigendurnir lögðu á flótta undan eldunum.
Dýra­eft­ir­lits­maður í Berry Creek í Kali­forníu sinnir hesti sem var skil­inn eftir er eig­end­urnir lögðu á flótta undan eld­unum. Mynd: EPA

Skóg­ar­eld­arnir sem loga á vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna hafa áhrif á dag­legt líf tuga millj­óna manna. Þeir hafa ekki aðeins skilið eftir sig slóð gríð­ar­legrar eyði­legg­ingar heldur hafa þeir kostað að minnsta kosti átján manns lífið í ríkj­unum þremur þar sem þeir loga; Oregon, Washingtonn og Kali­forníu. Sam­an­lagt hefur brunnið land­svæði í ríkj­unum þremur sem jafn­ast á við stærð New Jersey. Einn af hverjum tíu íbúum Oregon-ríkis hefur þurft eða er undir það búinn að flýja heim­ili sitt, svo dæmi sé tekið.

Að segja að eld­arnir séu for­dæma­lausir virð­ist mátt­laus lýs­ing – eftir allt sem á undan er gengið meðal jarð­ar­búa síð­ustu mán­uði. En það eru þeir engu að síður: For­dæma­lausir. Þeir eru það sem kallað er „sam­settar ham­farir“ þar sem margir öfga­fullir og hættu­legir atburðir eru að eiga sér stað sam­tímis á mörgum stöðum.

Sér­fræð­ingar í lofts­lags­málum hafa varað við slíkum voða­at­burðum vegna áhrifa manns­ins á breytt lofts­lag jarðar. Þeir höfðu þó fæstir getað ímyndað sér að slíkar ham­farir myndu eiga sér stað árið 2020. Í var­úð­ar­orðum sínum töldu þeir slíkt geta gerst eftir ára­tugi, ef ekki tæk­ist að minnka magn gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í and­rúms­loft­inu.

Og nú logar um alla vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna. Fyrir umfang­inu finn­ast engin for­dæmi í mann­kyns­sög­unni.

Til að skóg­ar­eldar breið­ist jafn hratt út og raunin hefur orðið í Banda­ríkj­unum þetta haustið þurfa ákveðnar aðstæður að vera fyrir hendi. Hár loft­hiti í tölu­verðan tíma og heitir og þurrir vindar að blása. Eldarnir sjálfir hafa svo áhrif á veð­ur­farið stað­bundið. Til verða eld­stormar og hring­iður heits lofts sem hraða enn frekar útbreiðsl­unni.

Í dag, laug­ar­dag, hefur vinda lægt og slökkvi­liðs­menn eiga auð­veld­ara með að sinna slökkvi­störfum en áfram logar glatt og kröft­ug­lega á mörg hund­ruð stöðum og sumir eld­arnir eru risa­vaxnir.

Í gær var loft­meng­unin í borg­unum Portland og San Francisco meiri en víð­ast hvar ann­ars staðar í heim­inum. Hún var meiri en í mörgum borgum Indlands og Kína.

Rann­sóknir hafa síð­ustu ár sýnt að veð­ur­farið á vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna hefur breyst. Í nýrri rann­sókn sem birt var í ágúst, rétt um það leyti sem fyrstu gróð­ur­eld­arnir voru að kvikna, kom fram að mjög heitum haust­dögum hefur fjölgað um helm­ing í Kali­forníu frá því á níunda ára­tug síð­ustu aldar.

„Ég get ekki sagt að þetta hafi verið óvið­búið en við erum mörg hver orð­laus yfir hrað­anum,“ hefur Washington Post eftir Eric Knapp, vist­fræð­ingi við banda­rísku skóga­stofn­un­ina í Kali­forníu. Kraft­arnir sem mynd­uð­ust í eld­unum eru líka ógur­legir. Á gervi­tungla­myndum má sjá að í þeim mynd­uð­ust mikil þrumu­veður í þéttum reyk- og ösku­skýjum sem náðu yfir sextán kíló­metra upp í loftið. „Við áttum aldrei von á því að svona margir staðir myndu brenna á sama tíma og með sama krafti og þeir gerðu,“ segir Dana Skelly sem starfar hjá skóg­ar­stofn­un­inni í Portland.

Mikill eldsmatur

Skóg­ar­eldar eru árlegir í ríkj­unum þremur. Þeir eru líka oft umfangs­miklir og því miður einnig oft mann­skæðir. En nú eru þeir útbreidd­ari og skóg­svæði sem höfðu ekki jafnað sig eftir mikla elda fyrir nokkrum árum fuðr­uðu upp er eld­tung­urnar læstu sig í hálf­dauð og dauð tré.

„Ég held að það sé óhætt að segja að þessir eldar eru for­dæma­lausir vegna hrað­ans sem þeir fara á,“ segir Knapp. „Við höfum aldrei séð svo marga elda fara um svo stórt land­svæði á svona stuttum tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár