Kolefnisgjaldið þyrfti að vera mun hærra til þess að bíta betur

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og þing­maður Mið­flokks­ins tók­ust á um kolefn­is­gjöld á þingi í dag.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Kolefn­is­gjöld eru sett á til að reyna að breyta hegðun, til að reyna að fá fólk til að fara úr því að nota elds­neyti sem hefur í för með sér að menga og valda lofts­lags­breyt­ingum. Þess vegna eru kolefn­is­gjöld mik­il­væg.“

Þetta sagði Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í svari sínu við fyr­ir­spurn Birgis Þór­ar­ins­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, á Alþingi í dag.

Birgir fjall­aði í fyr­ir­spurn sinni um skýrslu á vegum Háskóla Íslands um áhrif kolefn­is­gjalds á elds­neyt­is­notkun heim­il­anna sem birt var í sumar.

„Nið­ur­staðan er sú að rök­styðja þurfi betur hvers vegna kolefn­is­gjaldið er lagt á til að draga úr útblæstri. Þau gögn sem vísað er til í skýrsl­unni benda til að gjaldið þurfi að vera mjög hátt til að virka. Þá þyrfti jafn­framt að skýra frá því til hvaða aðgerða verði gripið til að koma fólki milli áfanga­staða. Skatt­ur­inn bítur enn fremur á efna­lítið fólk, sem er lík­legra til að nota bif­reiðar minna en það sem hefur efni á að gera út bif­reið.

Það kemur margt fróð­legt fram í þess­ari skýrslu og satt best að segja er ég svo­lítið hissa á því að hún hafi ekki fengið meiri athygli,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Spurði hvort skýrslan væri áfellisdómur yfir kolefnisgjaldastefnu ríkisstjórnarinnar

Vísaði Birgir í skýrsl­una en þar er meðal ann­ars fjallað um áhrif kolefn­is­skatts á Írlandi og að kolefn­is­skatt­ur­inn hafi ekki breytt notkun fólks á elds­neyti þar í landi.

„Síðan er rætt um efna­hags­leg áhrif kolefn­is­skatta, að þau séu marg­slungin og miklu skiptir hvað ríkið geri við tekjur af skatt­inum. Ef ráð­stöfun skatt­tekna er ekki tekin með í reikn­ing­inn er nið­ur­staða flestra sú að lands­fram­leiðsla og atvinna minnki eftir að kolefn­is­gjald er lagt á. Skatt­ur­inn hefur meiri áhrif á lífs­kjör lág­launa­fólks en ann­arra og kolefn­is­gjöld hafa meiri áhrif á neyslu og kjör hjá fátækum heim­ilum,“ sagði Birgir.

[links]Vísaði hann aftur í skýrsl­una þar sem segir að þegar á heild­ina er litið megi sjá að kolefn­is­gjöld hafi hingað til ekki haft mjög mikil áhrif á neyslu fólks. Ef ætl­unin sé að draga úr neyslu heim­ila á elds­neyti um 10 pró­sent þurfi verð þess að hækka um 10/0,35 eða um tæp 30 pró­sent, að því er fram kemur í skýrsl­unni.

„Það sjá allir hvaða áhrif það hefði á efna­hag heim­il­anna og efna­hags­málin almennt,“ sagði Birgir og spyrði ráð­herra hvort skýrslan væri ekki áfell­is­dómur yfir kolefn­is­gjalda­stefnu þess­arar rík­is­stjórnar.

Kolefnisgjöld sett á til að reyna að breyta hegðun

Guð­mundur Ingi svar­aði og sagði að kolefn­is­gjöld væru sett á til að reyna að breyta hegðun, til að reyna að fá fólk til að fara úr því að nota elds­neyti sem hefur í för með sér að menga og valda lofts­lags­breyt­ingum. Þess vegna væru kolefn­is­gjöld mik­il­væg.

„Það sem þessi skýrsla dregur fram er hins vegar það að gjaldið þyrfti í raun að vera mun hærra til þess að það myndi bíta betur. Það eru meg­in­skila­boðin í þess­ari skýrslu.

Það er vissu­lega farið inn á það að skatt­lagn­ing sem þessi getur bitnað mis­mun­andi á fólki, það er alveg hár­rétt. En það fer allt eftir því hvernig unnið er að því að reyna að gera efna­m­inna fólki kleift að nýta sér önnur úrræði, nýta sér það að geta farið yfir í að nýta end­ur­nýj­an­legt elds­neyti, kaupa far­ar­tæki til þess og svo fram­vegis. Mark­að­ur­inn í þessu er allur að breyt­ast. Það eru að koma fleiri not­aðir bílar inn á mark­að­inn og svo fram­vegis,“ sagði ráð­herr­ann.

Meg­in­at­riðið væri það að kolefn­is­gjöldin ættu að breyta hegðun. „Þessi rík­is­stjórn hefur hækkað þau til að reyna að hafa áhrif á þessar breyt­ingar. Við höfum líka sett inn hvata til að beina fólki þá leið að nota umhverf­is­vænni far­ar­skjóta, sem snýr bæði að almenn­ings­sam­göngum og því að geta farið um gang­andi, hjólandi og svo fram­vegis. Þannig að þessi skýrsla er alls ekki áfell­is­dómur. Hún snýst fyrst og fremst um það að til að kolefn­is­gjald bíti vel þá þarf það í raun að vera hærra en það er í dag.“

Finnst þetta vera lélegur málatilbúnaður

Birgir kom aftur í pontu og sagði að þegar þessi rík­is­stjórn tók við hefði gjaldið á árs­grund­velli verið 3,5 millj­arðar. Það væri rúmir 6 millj­arðar á þessu ári.

„Þessi skýrsla stað­festir nákvæm­lega það sem við Mið­flokks­menn höfum alltaf haldið fram, að þess­ari skatt­lagn­ingu er ekki jafnað niður á lands­menn með sann­gjörnum hætti. Það er alveg klárt. Skýrslan stað­festir það. Það er ekki for­svar­an­legt að leggja skatt á almenn­ing með þessum hætti þegar það bitnar verst á tekju­lágu fólki. Það verður að segj­ast alveg eins og er,“ sagði hann.

Vísaði hann í skýrsl­una enn á ný en þar segir að ekki liggi fyrir góð gögn um elds­neyt­is­notkun fyr­ir­tækja hér á landi. Birgir spurði hvers vegna ráðu­neytið vís­aði í þessa skýrslu sem grunn­gagn um árangur af skatt­lagn­ingu á elds­neyti ef fyrir lægi stað­fest­ing þess efnis að ekki lægju fyrir góð gögn um elds­neyt­is­notkun fyr­ir­tækja hér á landi. „Ég verð að segja það að mér finnst þetta bara lélegur mála­til­bún­aður að rök­styðja mál sitt með skýrslu sem gengur þvert á það sem stjórn­völd hafa lagt upp með.“

Verkefni stjórnvalda að finna nýjar leiðir

Ráðherra svar­aði á nýjan leik og sagði að það sem þessi skýrsla sýndi væri ein­fald­lega það að kolefn­is­gjald væri við­ur­kennd leið til að reyna að hafa áhrif á hegðun fólks til að fólk drægi úr notkun sinni á elds­neyti sem hefur í för með sér mengun sem veldur lofts­lags­breyt­ingum. Það væri merg­ur­inn máls­ins.

„Einnig kemur fram í skýrsl­unni að það þyrfti í raun­inni að hækka kolefn­is­gjaldið til að þetta gæti gengið enn þá betur. Og þá geta stjórn­völd haft leiðir til þess að jafna þann mun sem mögu­lega getur komið fram í slíkri skatt­lagn­ingu á mis­mun­andi tekju­háa hópa í sam­fé­lag­inu og það er verk­efnið,“ sagði Guð­mundur Ingi að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár