Hægt að taka enn stærri skref í afléttingu

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir telur óhætt að leyfa sam­komur fleiri manna í lok maí en áður hafði verið gert ráð fyrir. Rætt var um að hækka fjölda­mörk úr 50 manns upp í 100 manns en „við getum stigið stærri skref“.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir.

Ekkert nýtt smit af COVID-19 greind­ist síð­asta sól­ar­hring­inn og eru stað­fest smit því enn 1.801. Rúmlega tutt­ugu manns eru með virk smit og í ljósi alls þessa telur Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir til­efni til að taka stærri skref í þá átt að aflétta tak­mörk­unum sem nú eru í gildi. Að sama skapi verðum við að vera und­ir­búin fyrir bakslag í formi hóp­sýk­inga.

Þann 18. maí verða sund­laugar opn­aðar á nýjan leik. Unnið er að til­lögum um útfærslur á þeirri fram­kvæmd.

Næsta skref í almennri aflétt­ingu tak­mark­ana verður þann 25. maí. „Þar hefur fram til þessa verið rætt um 100 manna sam­komur en ég held að það sé ljóst að við getum stigið stærra skref og ljóst að við förum í stærri tölur,“ sagði Þórólfur. „Það er óhætt að fara hraðar og brattar í þetta en við héldum sem er bara ánægju­legt.“

Nánari útlist­ing á tveggja metra nánd­ar­regl­unni verður þá einnig til­kynnt, m.a. fyrir ein­staka fyr­ir­tæki, stofn­anir og starf­semi.

„Í fram­haldi af því held ég að þremur vikum seinna ættum við að geta stigið þriðja skrefið og ef allt gengur vel þá ættum við að geta farið bratt inn í þá aflétt­ingu sömu­leiðis,“ sagði Þórólfur. „Þannig að útlitið er gott um hverju við getum farið að aflétta á næst­unni.“

Hægt er að fara hraðar í aflétt­ing­una en áætlað var þar sem vel hefur gengið að bæla far­ald­ur­inn niður. Þórólfur sagði að gera mætti ráð fyrir bakslagi í formi hóp­sýk­inga. Það þurfi þó ekki endi­lega að þýða „eitt­hvað mjög slæmt“ þar sem nú hefðum við öðl­ast góða reynslu af því að fást við slíkar sýk­ingar og fyr­ir­komu­lag heil­brigð­is­kerf­is­ins ætti að geta ráðið við þær.

Ferðamenn þurfa áfram í sóttkví

Í gildi eru reglur um að allir sem koma hingað til lands þurfi að fara í tveggja vikna sótt­kví. Þær gilda til 15. maí en Þórólfur telur ljóst að þær verði fram­lengdar. „Það er brýnt að taka ákvörðun um hvað tekur við eftir þetta,“ sagði hann og minnti á að þrátt fyrir þessar tak­mark­anir væru landa­mæri Íslands enn opin. Nú væru uppi ýmsar hug­myndir um hvernig hægt væri að opna þau enn­frekar.

Tryggja verði að veiran komi ekki aftur hingað og önnur bylgja far­ald­urs skelli á. „En íslenskt sam­fé­lag þarf á því að halda að hér verði opnað fyrir ferða­mennsku af ein­hverju tagi,“ sagði Þórólfur. Það væri sitt hlut­verk að gera til­lögur sem snú­ist fyrst og fremst um heil­brigð­is­sjón­ar­mið en stjórn­valda að taka end­an­legar ákvarð­anir.

Sér­stakur starfs­hópur vinnur enn að til­lögum um hvernig best sé að gera þetta en hann mun ekki ná að skila af sér fyrir miðjan mánuð. „Það eru allar líkur á því að ég muni leggja til við heil­brigð­is­ráð­herra að fram­lengja þær ráð­staf­anir sem nú eru við lýði tíma­bundið þar til við fáum góðar nið­ur­stöður í hvernig end­an­legar aðgerðir eiga að vera varð­andi landa­mæri Íslands. Við flýtum okkur ekki mjög hratt í því en gerum þetta eins vel og hægt er.“

Þórólfur minnti svo á að nú sem aldrei fyrr væri mik­il­vægt að fólk við­hefði þær ein­stak­lings­bundnu sótt­varna­ráð­staf­anir sem hamrað hefur verið á. Sé fólk með ein­kenni á það ekki að fara manna á meðal heldur hafa sam­band við sína heilsu­gæslu. Hand­þvottur er svo áfram gríð­ar­lega mik­il­vægur. „Það eru þessar aðgerðir sem munu skila árangri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár