Alls 39 prósent atvinnulausra eru erlendir ríkisborgarar

Atvinnu­leysi er mun meira á meðal erlendra rík­is­borg­ara sem hér búa en á meðal þeirra sem eru íslenskir rík­is­borg­arar.

Margir erlendir ríkisborgarar sem hafa komið hingað til lands á síðustu árum hafa starfað í ferðaþjónustu eða byggingaiðnaði.
Margir erlendir rík­is­borg­arar sem hafa komið hingað til lands á síð­ustu árum hafa starfað í ferða­þjón­ustu eða bygg­inga­iðn­aði. Mynd: Bára Huld Beck

Fjórir af hverjum tíu sem voru hefð­bundnir atvinnu­leit­endur í maí, þ.e. voru atvinnu­lausir að öllu leyti en ekki á hluta­bótum, voru erlendir rík­is­borg­arar. Alls voru 6.320 slíkir án atvinnu í síð­asta mán­uði sem sam­svarar því að um 17,6 pró­sent atvinnu­leysi er á meðal erlendra rík­is­borg­ara sem búa á Íslandi. Til sam­an­burðar var almennt atvinnu­leysi í heild sinni 7,4 pró­sent í maí mán­uði.

Fjöldi atvinnu­lausra íbúa sem eru erlendir rík­is­borg­arar hefur auk­ist 3.821 frá því í apríl í fyrra, þegar þeir voru 2.499 tals­ins. Það er rúm­lega 150 pró­sent aukn­ing á 13 mán­uðum.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um vinnu­mark­að­inn á Íslandi í maí.

Alls voru 50.877 erlendir rík­is­borg­arar búsettir hér á landi þann 1. maí 2020. Þeir eru 13,9 pró­sent allra íbúa og því er atvinnu­leysi á meðal erlendra rík­is­borg­ara langt umfram það hlut­fall sem þeir eru af öllum íbúum lands­ins.

[adspot]Erlendum rík­is­borg­urum hefur fjölgað gríð­ar­lega á und­an­förnum árum og sú fjölgun hélt áfram í fyrra og framan af þessu ári, þrátt fyrir að veru­lega hefði hægst um í efna­hags­líf­inu. Frá 1. des­em­ber 2019 fjölg­aði þeim til að mynda um 1.530.

Flestir koma frá Póllandi

Flestir erlendir rík­is­borg­arar á atvinnu­leys­is­skrá komu frá Póllandi eða 3.199 tals­ins. Það þýðir að rúm­lega helm­ingur atvinnu­lausra útlend­inga, alls 51 pró­sent, sem eru á atvinnu­leys­is­skrá koma frá Póllandi. Næstir í röð­inni eru rík­is­borg­arar Litháen og Lett­lands.

Það ætti ekki að koma á óvart að Pól­verjar séu fyr­ir­ferð­ar­miklir í töl­unum. Þeir eru langstærsti hópur erlendra rík­is­borg­ara sem býr á Íslandi. Þeir eru nú 21.004 tals­ins eða 5,7 pró­sent íbúa lands­ins. Frá 1. des­em­ber 2019 hefur pólskum rík­is­borg­urum fjölgað um 330 tals­ins.

Heildaratvinnuleysi að dragast saman

Heild­ar­at­vinnu­leysi lækk­aði mikið í maí og fór úr 17,8 pró­sent í apríl í þrettán pró­sent í maí. Þar munar mest um að atvinnu­leysi sem teng­ist hluta­bóta­leið­inni lækk­aði úr 10,3 pró­sent í 5,6 pró­sent. Almenna atvinnu­leysið lækk­aði einnig lít­il­lega, eða úr 7,5 í 7,4 pró­sent. Gert er ráð fyrir að heild­ar­at­vinnu­leysi lækki enn í júní og fari þá í 11,2 pró­sent.

Í almenna bóta­kerf­inu voru 16.134 ein­stak­lingar atvinnu­lausir í lok maí­mán­aðar og 17.213 í minnk­aða starfs­hlut­fall­inu, eða sam­tals 33.347. Með­al­bóta­hlut­fall þeirra sem voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli í maí var um 60 pró­sent. Í mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar segir að „alls voru um 21.500 ein­stak­lingar sem eitt­hvað voru á hluta­bóta­leið­inni í maí, flestir þeirra í byrjun mán­að­ar­ins en fækk­aði yfir mán­uð­inn sem fyrr segir í um 17.200 í lok mán­að­ar­ins. Um 5.200 fyr­ir­tæki voru að baki þessum ein­stak­ling­um. Atvinnu­leysi þeirra sem eru í minnk­uðu starfs­hlut­falli er í mun meira mæli bundið við ferða­þjón­ustu heldur en þeirra sem eru í almenna bóta­kerf­in­u.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár