Markmið ríkisábyrgðar Icelandair ekki að verja hag hluthafa eða lánardrottna

Ef Icelandair fer í gjald­þrot eftir að hafa nýtt sér lána­línur með rík­is­á­byrgð mun íslenska ríkið eign­ast vöru­merkið, bók­un­ar­kerfi félags­ins og lend­ing­ar­heim­ildir.

Ef Icelandair Group nýtir lána­línur rík­is­bank­anna Íslands­banka og Lands­bank­ans, upp á 16,5 millj­arða króna, sem ríkir ábyrgist 90 pró­sent af, en fer samt í gjald­þrot mun íslenska ríkið eign­ast til­teknar eignir félags­ins. Á meðal þess sem mun fara til rík­is­ins við slíkar aðstæður er vöru­merkið, bók­un­ar­kerfið og „eftir atvikum“ lend­ing­ar­heim­ildir, sam­kvæmt því sem fram kemur í frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um rík­is­á­byrgð­ina.

Með þessu fyr­ir­komu­lagi telja stjórn­völd að tryggt sé að „hægt sé að ráð­stafa lyki­l­eignum félags­ins til að stuðla að hrað­ari upp­bygg­ingu flug­sam­gangna að nýju ef til rekstr­ar­stöðv­unar félags­ins kæmi.“

Frum­varpið hefur verið afgreitt úr þing­flokkum stjórn­ar­flokk­anna og fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra mun mæla fyrir því á Alþingi á morgun. Samþykkt þess er lyk­il­at­riði í björg­un­ar­leið­angri Icelandair Group, og for­senda þess að félagið geti haldið hluta­fjár­út­boð í sept­em­ber sem verður að lág­marki upp á 20 millj­arða króna, en að hámarki upp á 28,75 millj­arða króna.

Sjaldgæft að einkafyrirtæki fái ríkisábyrgð

Samhliða fram­lagn­ingu frum­varps um rík­is­á­byrgðir er lagt fram nýtt frum­varp til fjár­auka­laga sem hefur þann eina til­gang að búa til heim­ild fyrir veit­ingu rík­is­á­byrgð­ar­innar. Hún mun geta numið 90 pró­sent af 120 millj­ónum dala, sem á núvirði eru um 15 millj­arðar króna.

Afar sjald­gæft er að fyr­ir­tæki í einka­eigu fái rík­is­á­byrgð á skuldum sínum. Frægasta dæmið er þegar rík­is­á­byrgð upp á 200 millj­ónir dala vegna fjár­mögn­unar Íslenskrar erfða­grein­ingar var sam­þykkt í maí 2002 með minni­hluta atkvæða þing­manna. Sú ákvörðun var gíf­ur­lega umdeild. Íslensk erfða­grein­ing nýtti hins vegar aldrei þá rík­is­á­byrgð og fjár­magn­aði á end­anum áform sín með öðrum hætti.

Í fjár­auka­laga­frum­varp­inu segir að rík ástæða þurfi að liggja á bak­við aðgerð eins og þeirri að veita fyr­ir­tæki rík­is­á­byrgð, sem sé í senn veru­leg að fjár­hags­legu umfangi og afar sér­tæk. „Það leiðir af land­fræði­legri stöðu Íslands að nauð­syn ber til að tryggja traustar og sam­felldar sam­göngur fyrir vöru- og fólks­flutn­inga. Þá hefur vægi ferða­þjón­ustu í þjóð­ar­bú­skapnum, þar sem starf­semi Icelandair hefur algjöra grund­vall­ar­þýð­ingu, vaxið óðfluga á síð­ustu árum. Umfang far­þega­flutn­inga á vegum félags­ins hefur skapað mik­il­vægan grund­völl fyrir vöxt og við­gang allra ann­arra greina ferða­þjón­ust­unnar. Því má segja að um sé að tefla veru­lega almenna sam­fé­lags­lega hags­muni, ásamt mjög umtals­verðum beinum fjár­hags­legum hags­munum á fjölda launa­manna og fyr­ir­tækja.“

Ekki ætlunin að verja hag hluthafa

Gert er ráð fyrir að ádrátt­ar­tíma­bil láns­ins sem rík­is­byrgð verður á verði í tvö ár eða til sept­em­ber 2022. Frá þeim tíma lok­ast það og lánið skal end­ur­greiða með jöfnum mán­að­ar­legum greiðslum á næstu þremur árum.

Einnig er gert ráð fyrir að leyfi rekstur félags­ins að greiða lánið hraðar niður skuli það gert. Til að tryggja það verður ákvæði í samn­ingnum sem skyldar félagið til að nota umfram­lausafé til að greiða niður lánið.

Fjórar lyk­il­for­sendur séu fyrr aðkomu rík­is­ins að því að veita Icelandair ábyrgð eða tryggja félag­inu aðgengi að lánsfé með öðrum hætti. Þær eru:

  • Að aðkoma rík­is­ins sé nauð­syn­leg í þeim til­gangi að tryggja traustar og órofnar flug­sam­göngur til og frá land­inu.
  • Að tryggja að til staðar sé flug­rekstr­ar­að­ili sem taki öfl­ugan þátt í efna­hags­legri við­spyrnu þegar þar að kemur.
  • Að rekstrar- og sam­keppn­is­hæfni til lengri tíma sé tryggð.
  • Að almannafé og áhætta rík­is­ins verði tak­mörkuð við það sem þjóni opin­berum hags­munum, en hafi ekki að mark­miði að verja hag hlut­hafa eða lán­ar­drottna.

Síðasta for­sendan varð meðal ann­ars til þess að útboðs­gengi í kom­andi hluta­fjár­út­boði Icelandair varð ein króna á hlut, 40 pró­sent lægra en mark­aðs­gengi félags­ins þann dag.

Við­mæl­endur Kjarnans segja að stjórn­völd von­ist til þess að með þessu skap­ist umfram­eft­ir­spurn eftir þátt­töku í hluta­fjár­út­boð­inu og að það tak­ist að selja nýtt hlutafé fyrir 23 millj­arða króna. Til við­bótar mun fjár­festum í útboð­inu bjóð­ast áskrift­ar­rétt­indi upp á allt að 25 pró­sent af nýju hlut­unum. Verði þau nýtt að fullu getur hluta­fjár­aukn­ingin orðið 28,75 millj­arðar króna, og núver­andi hlut­hafar Icelandair sam­hliða þynn­ast niður í allt að 16 pró­sent.

Fær aðgang að öðrum lánalínum að nýju

Björg­un­ar­á­ætlun Icelandair, sem opin­beruð var fyrr í mán­uð­inum, gerir ráð fyrir því að félagið fái líka aðgang að rekstr­ar­lána­línum sem það var með hjá við­skipta­bönkum sínum, Lands­banka og Íslands­banka. Aðgengi að þeim línum, sem eru upp á 52 millj­ónir dala (tæpa 7,2 millj­arða króna), hafði lok­ast vegna þess að Icelandair hafði brotið skil­mála með því að fjár­hags­staða félags­ins fór niður fyrir skil­greind mörk í lána­samn­ingum.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair Group. Mynd: Skjáskot/RÚV
Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair Group. Mynd: Skjáskot/RÚV

Í fjár­auka­laga­frum­varp­inu segir að skil­málar fyrir ádrætti á þær línur verði sam­ræmdir á næstu 24 mán­uðum, þannig að þær standi félag­inu opnar svo lengi sem eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins verði hærra en átta pró­sent. Ofan á þessar línur kom svo nýjar lána­línur frá rík­is­bönk­unum tveimur upp á 60 millj­ónir dala hvor, og það eru þær lána­línur sem munu verða með 90 pró­sent ábyrgð af hálfu rík­is­ins.

Í athuga­semdum frum­varps­ins segir: „Með fyrr­greindri áætlun um fjár­mögnun mun félagið fjár­magna að fullu vænta fjár­þörf (258 millj­ónir Banda­ríkja­dala) næstu 24 mán­uði með lausu fé (150 millj­ónir Banda­ríkja­dala) og væntu hlutafé nýrra hlut­hafa (147 millj­ónir Banda­ríkja­dala), sam­tals tæp­lega um 297 millj­ónir Banda­ríkja­dala.

Félagið mun að auki hafa aðgang að rekstr­ar­lána­línum hjá við­skipta­bönkum sínum að sam­tals fjár­hæð 52 millj­ónir Banda­ríkja­dala til að tryggja að það hafi ávallt aðgang að nægu lausu fé til þriggja mán­aða rekstrar án tekna og þar fyrir utan rekstr­ar­lána­línur til þrauta­vara (120 millj­ónir Banda­ríkja­dala) með 90 pró­sent ábyrgð rík­is­ins ef rekstur félags­ins mun ganga mun verr en áætl­anir þess gera ráð fyrir. Gangi áætlun félags­ins um fjár­mögnun og rekstur eftir mun aldrei reyna á lána­línur með ábyrgð rík­is­ins. Samkvæmt áætlun félags­ins verður eig­in­fjár­hlut­fall þess að lág­marki rúm­lega 23 pró­sent eftir árang­urs­ríkt útboð á hlutafé (20 ma.kr.) og fer lægst í rúm 13 pró­sent í lok fyrsta árs­hluta 2022.“

Ýmsir áhættuþættir

Í ljósi þess að mögu­leg nýt­ing á rík­is­á­byrgð­inni helst að öllu leyti í hendur við það hvort áætl­anir Icelandair gangi eftir eða ekki er farið sér­stak­lega yfir það í athuga­semdum við fjár­auka­laga­frum­varpið hvaða þættir gætu haft nei­kvæð áhrif á árangur félags­ins og þar með aukið lík­urnar á ádrætti á lána­línur.

Þeir þættir eru helst taldir vera fjórir. Í fyrsta lagi að aukn­ing eft­ir­spurnar og þar með fram­boðs á flugi Icelandair verði hæg­ari en gert er ráð fyrir, sér­stak­lega frá næsta vori og til loka sept­em­ber 2022. Í öðru lagi að að aukin sam­keppni muni leiða til lægri verða á flug­sætum en gert er ráð fyrir. Í þriðja lagi að ef dregið verður á lána­lín­urnar þá eigi ofan­greindir áhættu­þættir jafn­framt við um rekstur félags­ins á afborg­un­ar­tíma lána­lín­anna, frá fjórða árs­fjórð­ungi 2022 til loka þriðja árs­fjórð­ungs 2025, og getu félags­ins til að end­ur­greiða þær.

Í fjórða lagi er til­tekið að ef Icelandair verði gjald­þrota þá sé fjár­hags­leg áhætta rík­is­ins um 15 millj­arðar króna. „Við gjald­þrot munu hins vegar lyki­l­eignir félags­ins (vöru­merki, bók­un­ar­kerfi og e.a. lend­ing­ar­heim­ildir) renna til rík­is­ins sem hægt væri að nýta til að bregð­ast við þeirri óvissu sem slíkt gjald­þrot myndi fela í sér gagn­vart flug­sam­göngum til og frá land­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár