Mynd: Icelandair

Icelandair segist spara sér 61 milljarð með samningum við kröfuhafa

Icelandair hefur birt inni­hald þeirra samn­inga sem félagið hefur gert við kröfu­hafa og aðra hag­að­ila. Lang­mestu munar um samn­ing við Boeing um að losna undan kaup­skyldu á flug­vélum og afslátt sem fæst á þeim vélum sem Icelandair mun samt þurfa að kaupa.

Þeir samn­ingar sem Icelandair Group hefur gert við ýmsa kröfu­hafa sína bæta lausa­fjár­stöðu félags­ins, eða draga úr fjár­hags­legum skuld­bind­ingum þess, um alls 450 millj­ónir dali, eða um 61 millj­arð króna. Þetta kemur fram í kynn­ing­ar­gögnum vegna fyr­ir­hug­aðs hluta­fjár­út­boðs félags­ins sem birt voru í Kauphöll Íslands í gær.

Til við­bótar hafa samn­ingar við stærstu starfs­stétt­irnar sem starfa hjá félag­inu skilað tölu­verðu kostn­að­ar­hag­ræði, en í því felst að mestu að starfs­menn þurfa að skila fleiri tímum í vinnu en áður.

Nýtt sam­komu­lag við flug­menn, sem felur í sér að þeir fljúga að jafn­aði 15 pró­sent meira en áður, myndi hafa lækkað rekstr­ar­kostnað Icelandair um 17 millj­ónir dala, um 2,3 millj­arða króna, á árinu 2020 miðað við við­skipta­á­ætl­anir félags­ins áður en að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn nær lok­aði flug­heim­inum.

Nýtt sam­komu­lag við flug­freyjur og -þjóna myndi skila því að sú stétt myndi líka vinna 15 pró­sent fleiri tíma en áður og hefði leitt af sér níu milljón dala, um 1,2 millj­arða króna, ábata ef við­skipta­á­ætl­anir Icelandair fyrir 2020 hefðu gengið eftir. Allir samn­ing­arnir eru til fimm ára.

Boeing vigtar langt mest

Langstærsti hluti þess kemur til vegna sam­komu­lags sem gert er við flug­véla­fram­leið­and­ann Boeing. Icelandair pant­aði 16 737-MAX vélar af fyr­ir­tæk­inu árið 2013 og hafði fengið sex þeirra afhentar áður en að vél­arnar voru kyrr­settar í mars í fyrra. Kyrr­setn­ingin á vél­unum kom til eftir flug­slys í Eþíópíu, 13. mars 2019, þegar 157 lét­ust skömmu eftir flug­tak Max vélar Ethi­opian Airlines. Það var þá annað slysið á skömmum tíma þar sem Max vél hrap­aði með þeim afleið­ingum að allir um borð lét­ust. Fyrra slysið var 29. októ­ber 2018, þegar vél Lion Air í Indónesíu hrap­aði skömmu eftir flug­tak. Þá lét­ust 189, allir um borð.

Í sam­komu­lag­inu við Boeing, sem gert var í síð­ustu viku, felst að vélum sem Icelandair er skuld­bundið til að kaupa til við­bótar, á grund­velli samn­ings­ins frá 2013, er fækkað úr tíu í sex. Auk þess er afhend­ingu þeirra frestað. Nú munu þrjár verða afhentar á kom­andi vetri og síð­ustu þrjár næsta vetur eftir. Icelandair býst við því að kyrr­setn­ingu á MAX-vél­unum verði aflétt á síð­asta árs­fjórð­ungi þessa árs.

Fjár­hags­legur ávinn­ingur Icelandair af sam­komu­lag­inu við Boeing er áætl­aður 260 millj­ónir dala, um 35 millj­arðar króna. Því er 58 pró­sent af fjár­hags­legum ávinn­ingi af samn­ingum við kröfu­hafa og aðra hag­að­ila vegna þessa eina sam­komu­lags.

Yfirlit sem birt var í þeim gögnum sem Icelandair birti í Kauphöll í gærkvöldi.
Yfirlit sem birt var í þeim gögnum sem Icelandair birti í Kauphöll í gær­kvöldi.

Í því felst að hætt verður við kaup á fjórum vélum, þær bætur sem Icelandair fær vegna kyrr­setn­ingar á Max vél­unum og afsláttur á þeim vélum sem Icelandair á eftir að fá afhentar. Ekki er gerð sund­ur­liðum á þessu í gögn­unum.

Munu geta endurgreitt viðskiptavinum

Sam­komu­lag við lán­ar­drottna Icelandair, sem eru fjórir tals­ins, skilar 103 millj­ónum dala, um 14 millj­örðum króna, í bættri lausa­fjár­stöðu og lægri fjár­hags­legum skuld­bind­ingum. Á meðal þeirra sem falla undir það sam­komu­lag eru rík­is­bank­arnir tveir, Íslands­banki og Lands­bank­inn, sem báðir eru stórir lán­veit­endur Icelandair.

Þessi árangur næst með því að öllum greiðslum af lánum er frestað í 24 mán­uði, og bætir það lausa­fjár­stöðu Icelandair um 51 milljón dali, eða tæpa sjö millj­arða króna. Þá er búið að tryggja félag­inu lána­línu frá lán­veit­endum upp á næstum sömu fjár­hæð. Auk þess hefur náðst sam­komu­lag um að breyta skil­málum í lána­samn­ingum sem gildir fram á árið 2022 svo að Icelandair sé ekki brot­legt við þá, líkt og félagið er í dag.

Sam­komu­lag við færslu­hirða skilar því að hægt verður að end­ur­greiða far­þegum allt að 31 milljón dali, um 4,2 millj­arða króna. Í hálfs­árs­upp­gjöri Icelandair kemur fram að félagið hafi gefið út inn­eignir til við­skipta­vina sinna fyrir alls 67,2 millj­ónir dala, rúm­lega 9,1 millj­arði króna, á fyrri helm­ingi árs­ins 2020.

Leigusalar Icelandair, sem leigja félag­inu flug­vélar, hafa sam­þykkt að fresta greiðslum í allt að tólf mán­uði sem bætir lausa­fjár­stöðu félags­ins um níu millj­ónir dala, um 1,2 millj­arða króna. Þá hefur félagið náð samn­ingum vegna fram­virka varna á kaupum á flug­véla­elds­neyti, sem urðu afar óhag­stæðar fyrr á þessu ári, um að fresta greiðslum eða loka samn­ing­unum. Ávinn­ingur af þessu er áætl­aður tæpur millj­arður króna.

Að lokum hafa samn­ingar við aðra birgja en Boeing skilað tölu­verðu hag­ræði, eða allt að 40 millj­ónum dala. Þar er meðal ann­ars átt við kaup af birgjum sem selja upp­lýs­inga­tækni, flug­véla­elds­neyti og ýmis­konar flug­valla­þjón­ustu.

Bankarnir lána jafnt

Í gær var greint frá því að íslenska ríkið ætl­aði að ábyrgj­ast 90 pró­sent af 16,5 millj­arða króna láni rík­is­bank­anna Íslands­banka og Lands­bank­ans til Icelandair, tak­ist félag­inu að safna því hlutafé sem það ætlar sér í kom­andi hlut­fjár­út­boði í sept­em­ber.

Í gögn­unum sem birt voru í gær kemur fram að rík­is­bank­arnir tveir muni lána jafn­háa upp­hæð hvor, eða 8,25 millj­arða króna.

Um er að ræða lána­línu sem Icelandair getur dregið á næstu tvö árin en þarf að greiða upp í síð­asta lagi eftir fimm ár. Félagið getur borgað upp lána­lín­una á meðan að á ádrátt­ar­tíma­bil­inu stendur, kjósi það svo. Skil­málar lána­lín­unar gera ráð fyrir að eig­in­fjár­hlut­fall Icelandair þurfi að vera yfir tvö pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár