Mynd: Icelandair

Icelandair á allt sitt undir því að fá fjármuni frá íslenskum almenningi

Icelandair hefur fengið há rík­is­banka­lán, millj­arða króna í hluta­bætur, enn fleiri millj­arða í upp­sagn­ar­styrki, gert sam­göngu­samn­inga við stjórn­völd og fengið millj­arða lán frá við­skipta­vinum vegna ferða sem hafa ekki verið flognar.

Íslensk stjórn­völd sam­þykkti í vik­unni að ábyrgj­ast 90 pró­sent af lána­línu til Icelandair Group upp á allt að 120 millj­ónir dala, sem er um 16,5 millj­arðar króna á núver­andi gengi. Þeir sem munu veita umrædda lána­línu eru helstu við­skipta­bankar Icelandair, Lands­bank­inn og Íslands­banki. Hvor um sig mun lána helm­ing upp­hæð­ar­innar.

Þeir eru báðir í eigu íslenska rík­is­ins og því væri hvort eð er áhætta af lán­inu þótt rík­is­á­byrgð­ar­innar nyti ekki við. Ef Icelandair gæti ekki borgað rík­is­bönk­unum til baka þá myndi það rýra virði eigna rík­is­sjóðs. Því er bein rík­is­á­byrgð á starf­semi beggja bank­anna í gegnum eign á hlutafé. Þar með er almenn­ingur á Íslandi í raun að sam­þykkja að lána gríð­ar­lega fjár­muni til flug­fé­lags­ins, enda þarf ráð­stöf­unin að vera sam­þykkt á Alþingi áður en af henni getur orðið.

Um er að ræða lána­línu sem Icelandair getur dregið á næstu tvö árin en þarf að greiða upp í síð­asta lagi eftir fimm ár. Félagið getur borgað upp lána­lín­una á meðan að á ádrátt­ar­tíma­bil­inu stendur, kjósi það svo. Skil­málar lána­lín­unar gera ráð fyrir að eig­in­fjár­hlut­fall Icelandair þurfi að vera yfir tvö pró­sent. 

Með þess­ari aðkomu er ríkið að rétta Icelandair umfangs­mikla hjálp­ar­hönd til að hjálpa félag­inu í gegnum þann skafl sem það stendur frammi fyrir. Ríkið mun hins vegar ekki eiga kost á því að fá beina hlut­deild í þeim mikla fjár­hags­lega ábata sem fjár­fest­ing í Icelandair gæti leitt af sér, tak­ist félag­inu að koma sér aftur á flug á næstu árum, með því að koma að málum með þessum hætti.

Þeir 16,5 millj­arðar króna sem nú stendur til að lána Icelandair eru ekki einu fjár­mun­irnir sem félagið hefur fengið að láni hjá Lands­bank­anum og Íslands­banka. Og sann­ar­lega ekki einu fjár­mun­irnir sem ratað hafa til félags­ins úr sam­eig­in­legum sjóðum, í ýmsum formi, á und­an­förnum mán­uðum og árum.

Ríkisbankalán

Íslands­banki hefur lengi verið helsti við­skipta­banki Icelandair. Ekki er hægt að lesa það út úr reikn­ingum bank­ans hversu mikið hann hefur lánað til flug­fé­lags­ins en í síð­asta árs­hluta­upp­gjöri bank­ans kom fram að um 80 pró­sent ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja sem eru í við­skiptum við bank­ann hafi fengið greiðslu­hlé vegna yfir­stand­andi ástands. Um tíu pró­sent af útlánum bank­ans eru til fyr­ir­tækja í þeim geira, þar sem Icelandair er stærsta fyr­ir­tækið.

Í mars í fyrra lán­aði Lands­bank­inn Icelandair 80 millj­ónir dala, þá um tíu millj­arða króna en nú mun hærri fjár­hæð, gegn veði í tíu Boeing 757 flug­vélum félags­ins, sem eru gamlar og lík­ast til verð­lausar miðað við þá stöðu sem er uppi í heim­inum í dag, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans.

Lánið var veitt í kjöl­far þess að léleg rekstr­ar­nið­ur­staða Icelandair á árinu 2018 gerði það að verkum að skil­málar skulda­bréfa sem félagið hafði gefið út voru brotn­ir. Láns­fjár­hæðin var nýtt sem hluta­greiðsla inn á útgefin skulda­bréf félags­ins. Því var verið að flytja hluta af fjár­mögnun Icelandair frá skulda­bréfa­eig­endum og yfir á banka í eigu íslenska rík­is­ins vegna þess að ekki tókst að semja við þá.

Á mið­viku­dag birti Icelandair kynn­ing­ar­gögn vegna fyr­ir­hug­aðs hluta­fjár­út­boðs, sem mun fara fram í sept­em­ber. Þar kom fram að sam­komu­lag við lán­ar­drottna Icelandair, sem eru fjórir tals­ins, skili félag­inu 103 millj­ónum dala, um 14 millj­örðum króna, í bættri lausa­fjár­stöðu og lægri fjár­hags­legum skuld­bind­ingum. Þessi árangur næst með því að öllum greiðslum af lánum er frestað í 24 mán­uði, og bætir það lausa­fjár­stöðu Icelandair um 51 milljón dali, eða tæpa sjö millj­arða króna. Þá er búið að tryggja félag­inu lána­línu frá lán­veit­endum upp á næstum sömu fjár­hæð.

Auk þess hefur náðst sam­komu­lag um að breyta skil­málum í lána­samn­ingum sem gildir fram á árið 2022 svo að Icelandair sé ekki brot­legt við þá, líkt og félagið er í dag.

Í kynn­ing­ar­gögnum er ekki sund­ur­liðað hversu mikið hver lán­veit­andi vigtar í þessum fjár­hags­lega ábata, en ljóst er að rík­is­bank­arnir tveir eiga þar hlut að máli.

Hlutabótaleiðin

Í skýrslu sem Rík­is­end­ur­skoðun gerði um hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu, sem fól í sér að ríkið greiddi allt 75 pró­sent launa þeirra sem lækka tíma­bundið í starfs­hlut­falli upp að ákveðnu þaki, kom fram að langstærsti not­andi hennar var Icelandair. Í mars og apríl, þegar notkun hluta­bóta­leið­ar­innar var sem mest, fengu launa­menn hjá dótt­ur­fé­lögum sam­stæð­unnar alls 1.116 millj­ónir króna í greiðslur frá Vinnu­mála­stofnun vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls.

Þar af voru 2.493 starfs­menn Icelandair í skertu starfs­hlut­falli og 502 starfs­menn Flug­leiða­hót­ela hf., auk starfs­manna Air Iceland Connect, Iceland Travel og fleiri dótt­ur­fé­laga. Starfs­menn Flug­leiða­hót­ela fengu alls 248 millj­ónir króna greiddar frá Vinnu­mála­stofnun vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls í mars og apr­íl, en inn í heild­ar­summ­una sem fór til starfs­manna Icelandair reikn­ast ein­ungis 87 millj­ónir af þeirri upp­hæð, sökum þess að í apríl seldi Icelandair 75 pró­sent hlut sinn í hót­el­keðj­unni.

Það fyr­ir­tæki sem komst næst Icelandair í nýt­ingu á leið­inni var Bláa Lónið, með undir 17 pró­sent af þeirri upp­hæð sem fór í launa­greiðslur til starfs­manna Icelandair á tíma­bil­inu.

Icelandair Group er það einstaka fyrirtæki sem hefur getað nýtt efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar mest allra.
Icelandair Group er það ein­staka fyr­ir­tæki sem hefur getað nýtt efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar mest allra.

Í síð­asta árs­hluta­reikn­ingi Icelandair kemur fram að félagið hafi líka nýtt hluta­bóta­leið­ina fyrir yfir­gnæf­andi hluta starfs­manna í maí­mán­uði og því ljóst að heild­ar­upp­hæðin sem fór úr opin­berum sjóðum í að greiða hluta­bætur til starfs­manna Icelandair var mun hærri en sá rúmi millj­arður króna sem greint var frá í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Hluta­bóta­leiðin er ekki lengur í bókum Icelandair enda hætti félagið að nýta úrræðið í lok maí.

Uppsagnarstyrkirnir

Icelandair hefur líka verið stærsti ein­staki not­andi þeirra efna­hags­legu úrræða sem rík­is­stjórnin hefur kynnt til leiks vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Í síð­asta árs­hluta­upp­gjöri Icelandair kom fram að félagið búist við því að sækja að minnsta kosti 24 millj­ónir dala, um 3,3 millj­arða króna, í styrki til stjórn­valda vegna greiðslu launa á upp­sagn­ar­fresti. Gert var ráð fyrir að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna úrræð­is­ins verði allt að 27 millj­arðar króna. Miðað við þá tölu myndi rúm­lega tólf pró­sent af upp­sagn­ar­styrkj­unum fara til Icelandair. Nýbirtar tölur benda þó til þess að rík­is­sjóður muni greiða mun lægri upp­hæð út í upp­sagn­ar­styrki, en hingað til hafa slíkar greiðslur numið 3,7 millj­örðum króna, eða litlu eitt meiru en að Icelandair reiknar með að fá út úr leið­inni.

Stuðn­ing­ur­inn nemur að hámarki 85 pró­sent launa starfs­manns á upp­sagn­ar­fresti, og ríkið greiðir ekki nema að hámarki 633 þús­und krónur á mán­uði af launum hvers og eins starfs­manns og styrkir fyr­ir­tæki ein­ungis til að greiða þrjá mán­uði af upp­sagn­ar­fresti, jafn­vel þó starfs­menn hafi lengri upp­sagn­ar­frest.

Samgöngusamningar

Ríkið hefur líka gert þjón­ustu­samn­inga við Icelandair á meðan að far­ald­ur­inn hefur geisað. Í þeim fellst að flug­fé­lagið hefur haldið ákveðnum sam­göngu­leiðum til og frá land­inu opnu á meðan að ferða­tak­mark­anir eru í gildi vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Ríkið greiddi þannig Icelandair fyrir að fljúga leiðir ákveðnar leiðir til Evr­ópu og Banda­ríkj­anna, þrátt fyrir að eft­ir­spurn væri lítil sem eng­in. Einnig fékk Air Iceland Connect greiðslur fyrir að halda úti reglu­legu flugi frá Reykja­vík til Egils­staða og Ísa­fjarð­ar.

Bók­færðar tekjur vegna þess­ara samn­inga á fyrri hluta árs­ins 2020 voru um tvær millj­ónir dala, eða 272 milljón króna.

Lán frá viðskiptavinum

Í hálfs­árs­upp­gjöri Icelandair kemur fram að félagið hafi gefið út inn­eignir til við­skipta­vina sinna fyrir alls 67,2 millj­ónir dala, rúm­lega 9,1 millj­arði króna, á fyrri helm­ingi árs­ins 2020.

Það þýðir að félagið hafi fengið greiðslu fyrir flug að þeirri upp­hæð sem það hefur ekki getað flogið hingað til, en mun þurfa að gera til að standa við gerðar skuld­bind­ingar án þess að fá neinar nýjar tekjur á móti. Upp­hæðin sem Icelandair hefur gefið út í inn­eignir sam­svarar um fjórð­ungi af öllum far­þega­tekjum Icelandair á öðrum árs­fjórð­ungi í fyrra.

Til að setja þessa upp­hæð í annað sam­hengi þá var hún um 44 pró­sent af öllu lausu fé Icelandair í lok júní, sem var 151,2 millj­ónir dala, um 20,6 millj­arðar króna. Hratt hefur gengið á það lausafé á þessu ár og á öðrum árs­fjórð­ungi einum saman lækk­aði það um 46 pró­sent.

Sótt verður í lífeyrissjóði almennings

Á mánu­dag greindi Icelandair frá því að félagið myndi fresta hluta­fjár­út­boði sem átti upp­haf­lega að fara fram í júní, var síðan fært fram í ágúst en mun nú fara fram í sept­em­ber ef núver­andi hlut­hafar leyfa.

Icelandair þarf umtalsverða fjármuni til að lifa af. Skráningarlýsing félagsins verður birt á næstu dögum. Mynd: Icelandair
Icelandair þarf umtals­verða fjár­muni til að lifa af. Skrán­ing­ar­lýs­ing félags­ins verður birt á næstu dögum. Mynd: Icelandair

Sú breyt­ing hefur orðið á útboð­inu að upp­hæðin sem stefnt er að því að sækja er lægri en áður var stefnt að og hún er nú sett fram í íslenskum krónum, ekki dölum, sem bendir til þess að mark­hóp­ur­inn sé fyrst og síð­ast íslenskir fjár­festar sem eiga mikið af íslenskum krónum.

Stjórn­endur Icelandair hafa enda sagt það opin­ber­lega að horft sé til sam­tals við helstu núver­andi inn­lendu hlut­hafa um þátt­töku í hluta­fjár­út­boð­inu.

Þar eru fjórir íslenskir líf­eyr­is­sjóðir stærstir: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Gildi og Birta. Eigendur líf­eyr­is­sjóð­anna eru almenn­ingur í land­inu.

Áratugur er síðan að Icelandair fór síð­ast í gegnum end­ur­skipu­lagn­ingu og á því tíma­bili hefur ávöxtun sjóð­anna ekki verið beysin. Tveir þeirra hafa raunar tapað veru­lega á þeirri fjár­fest­ingu, líkt og Kjarninn greindi frá nýverið.

Í stað þess að sækja 200 millj­ónir dali, um 27,6 millj­arða króna, ætlar Icelandair nú að ná í allt að 20 millj­arða króna. Auk þess verður opnað fyrir þann mögu­leika að selja bréf upp á þrjá millj­arða króna til við­bótar ef umfram­eft­ir­spurn verður í útboð­inu.

Nýju hluta­bréfin verða seld á geng­inu ein króna á hlut, sem var vel undir mark­aðsvirði Icelandair þegar til­kynnt var um breytt útboð, en það var þá 1,64 krónur. Hluta­bréf í félag­inu hrundi eðli­lega í kjöl­farið og er nú á svip­uðum stað og útboðs­gengið. Mark­aðsvirði Icelandair, sem var 191,5 millj­arðar króna í apríl 2016, er nú undir sjö millj­örðum króna.

Þá hefur verið greint frá því að það sé til skoð­unar hjá Icelandair að láta sölu­tryggja útboðið. Í því felst að gerður er samn­ingur milli félags­ins og banka um að sá síð­ar­nefndi kaupi þau hluta­bréf sem selj­ist ekki í útboð­inu. Þannig liggur fyrir áður en farið er af stað að öll útgáfan selj­ist og það eykur líkur á þátt­töku ann­arra fjár­festa.

Samkvæmt frétt Frétta­blaðs­ins á fimmtu­dag eru það rík­is­bank­arnir tveir, Íslands­banki og Lands­banki, sem horft er á í þessu sam­hengi. Því gætu þeir, til við­bótar við þá fjár­muni sem þeir hafa þegar lánað Icelandair, þær greiðslur sem bank­arnir hafa heim­ilað Icelandair að fresta og 16,5 millj­arða króna lána­línu, tekið að sér að kaupa hluta­bréf í félag­inu sem í versta falli myndu fela í sér, ef eng­inn áhugi yrði á útboð­inu, að þeir leggðu út 20 millj­arða króna til við­bótar.

Lítur betur út

Við­mæl­endur Kjarnans á fjár­mála­mark­aði eru flestir á þeirri skoðun að ástæðan fyrir því að hluta­fjár­út­boðið hafi verið dregið saman, og að verðið sé jafn lágt og raun ber vitni, sé til þess að reyna að auka lík­urnar á að ofan­greindir líf­eyr­is­sjóðir taki þátt í því. Stjórn­endur þeirra hafa ekk­ert gefið upp opin­ber­lega um áhuga á slíku enn sem komið er.

Flestir sem Kjarninn hefur rætt við telja að þær upp­lýs­ingar sem settar voru fram í kynn­ing­ar­gögnum, sem sýndu að samn­ingar sem Icelandair hefur gert við ýmsa kröfu­hafa sína bæti lausa­fjár­stöðu félags­ins, eða dragi úr fjár­hags­legum skuld­bind­ingum þess, um alls 450 millj­ónir dali, eða um 61 millj­arð króna, auki veru­lega á lík­urnar á því að tak­ist að selja hið nýja hlutafé. Því til við­bótar er því haldið fram að nýir samn­ingar við flug­menn og flug­freyjur/-þjóna spari um 3,5 millj­arða króna á ári í eðli­legu árferði og að Icelandair hafi áform um að gera flota sinn mun hag­kvæm­ari í fram­tíð­inni en hann er í dag.

Þá þykja fram­tíð­ar­sviðs­myndir félags­ins raun­hæfar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár