Stórir lífeyrissjóðir hafa ekki farið vel út úr fjárfestingu í Icelandair

Aðkoma stærstu hlut­hafa Icelandair, sem hafa það hlut­verk að ávaxta líf­eyri lands­manna, að félag­inu síð­ast­lið­inn ára­tug hefur ekki skilað mik­illi arð­semi, og í tveimur til­fellum miklu tapi. Þessir sömu sjóðir munu á næstu dögum þurfa að taka ákvörðun.

Framtíð Icelandair Group ætti að skýr­ast á allra næstu vikum. Í lok júlí var greint frá því, í frétta­til­kynn­ingu sem send var út á föstu­degi fyrir versl­un­ar­manna­helgi, að félagið hefði náð sam­komu­lagi við flesta þá hag­að­ila sem það átti eftir að semja við. Það þýðir að það hafi und­ir­ritað samn­inga við flesta kröfu­hafa og, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni, náð sam­komu­lagi í meg­in­at­riðum við þá sem eftir væru. Til stendur að ljúka öllum þessum samn­ingum í dag, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans.

Umræddir hag­að­ilar eru þeir sem Icelandair skuldar fjár­muni. Um er að ræða þrjá banka, þar af tvo íslenska rík­is­banka, Boeing flug­vél­aris­ann sem Icelandair pant­aði 16 737 MAX vélar af fyrir nokkrum árum, en á eftir að fá tíu þeirra afhentar og hinar eru kyrr­settar. Auk þeirra þarf Icelandair að semja við færslu­hirða, og flug­véla­leigur áður en að félagið getur reynt að sækja sér allt að 200 millj­ónir dala, um 27 millj­arða króna, í nýtt hlutafé síðar í ágúst­mán­uði.

Í til­kynn­ing­unni sem send var út í síð­ustu viku sagði að allir samn­ingar sem væru und­ir­rit­aðir væru „ háðir því að félagið nái mark­miðum sínum um öflun nýs hluta­fjár og geri samn­ing um lána­línu með rík­is­á­byrgð.“

Unnið er að útfærslu á láni með rík­is­á­byrgð með íslenskum stjórn­völd­um, Íslands­banka og Lands­bank­anum, sem báðir eru þegar á meðal stærstu kröfu­hafa Icelandair.

Þegar allir samn­ingar liggja fyrir ætlar Icelandair að birta fjár­festa­kynn­ingu með ítar­legum upp­lýs­ingum fyrir fjár­festa og þátt­tak­endur í fyr­ir­hug­uðu hluta­fjár­út­boði.

Félagið hefur þegar und­ir­ritað nýja lang­tíma­samn­inga við stétt­ar­fé­lög flug­manna, flug­freyja og flug­þjóna og flug­virkja.

Tapaði 245 milljónum á dag

Staða Icelandair Group er orðin nokkuð dökk. Í nýlega birtu árs­hluta­upp­gjöri kom fram að félagið hefði tapað 331 milljón dölum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, sem sam­svarar tæpum 45 millj­örðum króna á gengi dags­ins í dag. Það er tap upp á um 245 millj­ónir króna á hverjum ein­asta degi á fyrri hluta árs­ins.

Auk þess gengur hratt á laust fé félags­ins. Í lok árs 2019 átti Icelandair Group 302 millj­ónir dala í laust fé. Í lok mars­mán­aðar 2020 var það 281 millj­ónir dala og enn umtals­vert yfir því 200 milljón dala lausa­fjár­við­miði sem félagið stefnir ætið að því að vera yfir.

Það breytt­ist hins vegar hratt á öðrum árs­fjórð­ungi, sem hófst í byrjun apríl og lauk í lok júní. Þá fór lausa­fjár­staða Icelandair niður í 151,2 millj­ónir dala, um 21,3 milj­arða króna. Lausaféð hefur því helm­ing­ast frá ára­mótum. Þorri þess bruna átti sér stað á öðrum árs­fjórð­ungi þegar laust fé lækk­aði um 46 pró­sent.

Það þýðir að lausa­fjár­staðan er komin undir það við­mið sem Icelandair vinnur eftir, en stefna þess hefur verið að lausa­fjár­staðan fari aldrei undir 200 millj­ónir dala á hverjum tíma. Auk þess kemur fram í árs­reikn­ingi Icelandair að félagið hafi brotið lána­skil­mála sem geri það að verkum að það getur ekki dregið á ódregnar lána­línur upp á 62,7 millj­ónir dala.

Allt veltur á hlutafjárútboðinu

Því er ljóst að allt mun velta á að Icelandair tak­ist að selja það nýja hlutafé sem félagið ætlar að gefa út síðar í ágúst­mán­uði. Takist það ekki, munu allir samn­ingar við hag­að­ila falla úr gildi og fyr­ir­greiðslan með rík­is­á­byrgð­inni verður ekki lengur í boði, að minnsta kosti í því formi sem verið er að semja um.

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, hefur ítrekað sagt í fjöl­miðlum að horft sé til þess að sækja hið nýja hlutafé, allt að 27 millj­arða króna, að minnsta kosti að hluta til núver­andi hlut­hafa.

Sá aðili sem var stærsti hlut­hafi Icelandair lengi vel, ­­banda­ríski fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­sjóð­­­­­­ur­inn PAR Capital Mana­gement, hefur und­an­farið minnkað hlut sinn í félag­inu veru­lega, úr 13,7 pró­­­sent í 10,99 pró­­­sent. Sjóð­ur­inn kom fyrst inn í hlut­hafa­hóp Icelandair í apríl 2019 þegar hann keypti 11,5 pró­sent hlut á 5,6 millj­arða króna, og bætti síðan við sig. Ljóst er að tap hans á fjár­fest­ing­unni hleypur á mörgum millj­örðum króna. PAR Capital er ekki á meðal þeirra sem Icelandair á í við­ræðum við um að leggja félag­inu til nýtt fé, og úti­lokað þykir að sjóð­ur­inn muni taka frek­ari þátt í að fjár­magna íslenska flug­fé­lagið.

Fyrir utan PAR Mana­gement eru stærstu eig­endur Icelandair íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

LSR hefur hagnast á fjárfestingunni

Fjórir þeirra skera sig úr, fjórir stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Gildi líf­eyr­is­sjóður og Birta líf­eyr­is­sjóður.

Þeir komu allir að síð­ustu end­ur­skipu­lagn­ingu Icelandair Group sem átti sér stað fyrir ára­tug, árið 2010. Kjarninn leit­aði upp­lýs­inga hjá þessum fjórum stærstu sjóðum lands­ins um hvernig ávöxtun þeirra af fjár­fest­ingu í Icelandair hefði verið síð­ast­lið­inn ára­tug.

Sá sjóður sem hagn­ast hefur mest á fjár­fest­ingu sinni í Icelandair er LSR. Frá því að flug­fé­lagið var end­ur­skipu­lagt hafa A-deild, B-deild og sér­eign þessa stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins sam­tals keypt hluta­bréf í Icelandair fyrir 7,9 millj­arða króna. LSR hefur hins vegar selt bréf fyrir alls 7,4 millj­arða króna á tíma­bil­inu og fengið tæp­lega 1,1 millj­arð króna í arð­greiðslur. Hagnaður LSR af við­skiptum með bréf í Icelandair nemur því rúm­lega 500 millj­ónum króna á síð­ustu tíu árum.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, hefur staðið í stórræðum undanfarna mánuði við að reyna að bjarga félaginu. Mynd: Skjaskot/RÚV
Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, hefur staðið í stór­ræðum und­an­farna mán­uði við að reyna að bjarga félag­inu. Mynd: Skjaskot/RÚV

Auk þess eiga allar deildir sjóðs­ins sam­an­lagt 455 millj­ónir hluta í Icelandair eins og sakir standa í dag, eða um 8,4 pró­sent af öllu hlutafé. Virði þess miðað við lokun markað í gær, þegar gengi bréf­anna var 1,83 krónur á hlut, var rúm­lega 800 millj­ónir króna. Ef vænt hluta­fjár­aukn­ing, sem Icelandair stefnir að í þessum mán­uði, gengur eftir eins og til stendur þá munu eign núver­andi hlut­hafa þynn­ast niður í 15,3 pró­sent.

Verslunarmenn nokkuð á pari

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er stærsti ein­staki eig­andi Icelandair Group. Alls á sjóð­ur­inn 11,8 pró­sent hlut í flug­fé­lag­inu. Mark­aðsvirði hans er um 1.150 millj­ónir króna. Ef ítr­ustu áform um að auka hlutafé í Icelandair ganga eftir mun virði þess hlutar þynn­ast niður í um 175 millj­ónir króna.

Í svari sjóðs­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að frá árinu 2010, þegar mik­ill meiri­hluti bréf­anna var keyptur, hafi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn keypt bréf í Icelandair fyrir 2,9 millj­arða króna að mark­aðsvirði og selt fyrir 1,2 millj­arða króna. Arð­greiðslur til sjóðs­ins á tíma­bil­inu nema 1,7 millj­örðum króna. Sölur og arð­greiðslur eru því sam­an­lagt sama tala, 2,9 millj­arðar króna, og sú sem sjóð­ur­inn hefur greitt fyrir hluta­bréf í Icelandair Group.

Eins og staðan er í dag er því raun­á­vöxtun sjóðs­ins frá upp­hafi, miðað við 3. ágúst 2020, 3,04 pró­sent, sam­kvæmt svari hans við fyr­ir­spurn Kjarnans. En ef miðað er við stöð­una ef áform um hluta­fjár­aukn­ingu ganga eftir er ljóst að ávinn­ingur Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna af við­skiptum með bréf í Icelandair síð­ast­lið­inn ára­tug er ein­ungis virði þeirra bréfa sem hann heldur á nú.

Neikvæð ávöxtun upp á 72,4 prósent

Gildi líf­eyr­is­sjóður er einnig á meðal stærstu eig­enda Icelandair með 7,24 pró­sent eign­ar­hlut.

Nettó fjár­fest­ing Gildis í flug­fé­lag­inu síð­ast­lið­inn ára­tug, bæði beint og óbeint í gegnum Fram­taks­sjóð Íslands sem lengi vel var stærsti eig­andi Icelandair, hefur numið 2,3 millj­örðum króna, að teknu til­liti til arð­greiðslna á tíma­bil­inu. Vegið kaup­gengi er 5,89 krónur á hlut en mark­aðsvirði Icelandair við lokun mark­aða í gær var 1,83 krónur á hlut. Mark­aðsvirði hlutar Gildis er um 720 millj­ónir króna.

Í svari Gildis til Kjarnans er þó miðað við mark­aðsvirðið eins og það var í lok dags á þriðju­dag, þegar það var 1,95 krónur á hlut. Þá var mark­aðsvirði hlutar Gildis 768 millj­ónir króna. Í svar­inu segir síðan orð­rétt: „Áætluð raun­á­vöxtun sjóðs­ins af þess­ari fjár­fest­ingu í Icelandair yfir tæp­lega tíu ára fjár­fest­ing­ar­tíma nemur um -72,4 pró­sent. Á árs­grund­velli sam­svarar það um 12,3 pró­sent nei­kvæðri raun­á­vöxtun yfir umrætt tíma­bil.“

Gildi bendir á í svari sínu að til sam­an­burðar hafi raun­á­vöxtun af inn­lendu skráðu hluta­bréfa­safni sjóðs­ins í heild sinni um 110,8 pró­sent yfir sama tíma­bil, eða sem nemur um 7,9 pró­sent á árs­grund­velli.

Líka með neikvæða ávöxtun

Birta líf­eyr­is­sjóður á í dag 7,07 pró­sent hlut í Icelandair Group. Nettó við­skipti Birtu með bréf í félag­inu frá 2010 eru 1,9 millj­arðar króna en vegið kaup­gengi eign­ar­hluta sem hafa verið keypt og seld er 7,13 krónur á hlut. Gengi Icelandair Group við lok við­skipta í gær var, líkt og áður sagði, 1,83 krónur á hlut. Eign­ar­hlutur Birtu er því met­inn á 703 millj­ónir króna.

Nafn­á­vöxtun Birtu vegna fjár­fest­ingar í Icelandair síð­ast­lið­inn ára­tug er nei­kvæð um -15,59 pró­sent og reikn­ast sem -17,66 pró­sent nei­kvæð raun­á­vöxtun, sam­kvæmt svari sjóðs­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Í svar­inu er til­tekið að ekki sé tekið til­lit til óbeinnar, og jákvæðrar, afkomu Birtu og for­vera sjóðs­ins af eign­ar­hlut í Fram­taks­sjóði Íslands sem „tengja má við við­skipti með Icelandair“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár