Icelandair Group tapaði 51 milljarði króna á árinu 2020

Icelandair átti 29,7 millj­arða króna í eigið fé í lok síð­asta árs. Tap félags­ins á árinu 2020 var gríð­ar­legt, enda dróst far­þega­fjöldi saman um 83 pró­sent milli ára. For­stjór­inn segir óvissu enn vera veru­lega.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group
Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group Mynd: Skjáskot/RÚV

Tap Icelandair Group á árinu 2020 var 51 millj­arður króna. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands vegna upp­gjörs síð­asta árs.

Tap félags­ins á árinu 2019 var 7,8 millj­arðar króna og á árinu 2018 var það um 6,8 millj­arðar króna. Því hefur sam­stæðan tapað tæp­lega 66 millj­örðum króna á síð­ustu þremur árum.

Í til­kynn­ing­unni segir að sæta­fram­boð Icelandair hafi dreg­ist saman um 81 pró­sent á síð­asta ári og far­þega­fjöldi um 83 pró­sent.

Eigið fé nam 29,7 millj­örðum króna í lok síð­asta árs árs og eig­in­fjár­hlut­fall lækk­aði úr 29 pró­sent í 25 pró­sent frá fyrra ári, leið­rétt fyrir tíma­bundnum áhrifum áskrift­ar­rétt­inda. Lausa­fjár­staða félags­ins nam 42,3 millj­örðum króna í lok árs 2020, þar af var hand­bært fé og lausa­fjár­sjóðir að fjár­hæð 21,6 millj­arðar króna.

[adspot]Í til­kynn­ing­unni segir að eft­ir­spurn eftir flugi sé enn sem komið er lítil vegna stöðu heims­far­ald­urs­ins á lyk­il­mörk­uðum Icelandair en að félagið geri ráð fyrir að flug fari að aukast frá og með öðrum árs­fjórð­ungi. Þá hafi kyrr­setn­ingu Boeing 737 MAX vél­anna verið aflétt og verða þær teknar í rekstur á vor­mán­uðum.

Enn mikil óvissa

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, segir að árið 2020 hafi verið mest krefj­andi ár flug­sög­unnar. En sé fyrir dyrum veru­leg óvissa. „Þróun far­ald­urs­ins, dreif­ing bólu­efna og hvernig reglur á landa­mærum þró­ast mun skipta sköpum varð­andi fram­haldið. Við erum hins vegar hóf­lega bjart­sýn að geta aukið flug frá og með öðrum árs­fjórð­ungi þessa árs.“

Hann seg­ist þess full­viss að það verði tals­verð tæki­færi fyrir Ísland og þar með leiða­kerfi Icelandair eftir far­ald­ur­inn. „Ísland verður áfram eft­ir­sóttur áfanga­staður ferða­manna og, vegna breyt­inga í sam­keppn­isum­hverf­inu, sjáum einnig aukin tæki­færi í tengiflugi milli Evrópu og Norður Ameríku í gegnum Ísland.“

Hluthöfum fjölgaði mikið í fyrra

Icelandair Group hélt hluta­fjár­út­boð í sept­em­ber í fyrra til að ná sér í nýtt fé vegna rekstr­ar­erf­ið­leika sem skap­ast höfðu vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Félagið ætl­aði sér að safna að minnsta kosti 20 millj­örðum króna í útboð­inu. Hægt yrði að hækka þá fjár­hæð í 23 millj­arða króna ef umfram­eft­ir­spurn yrð­i.

[links]Alls bár­ust yfir níu þús­und áskriftir upp á alls 37,3 millj­arða króna. Umfram­eft­ir­spurn var því 85 pró­sent, bæði frá fag­fjár­festum og almennum fjár­fest­um. Nýjum hlutum fylgdu líka 25 pró­sent áskrift­ar­rétt­indi, eða sem nemur 5,75 millj­örðum hluta. Það þýðir að hver og einn sem keypti getur bætt við sig 25 pró­sent af því sem við­kom­andi skráði sig fyrir í við­bót á sama gengi og var í hluta­fjár­út­boð­inu, en það var ein króna á hlut.

Stjórn Icelandair Group ákvað að sam­þykkja ekki allar áskrift­ir.

Mikil eft­ir­spurn var hjá almennum fjár­festum í útboð­inu og fjöldi hlut­hafa í félag­inu varð yfir ell­efu þús­und í kjöl­far þess. Þeir eru nú um 13 þús­und tals­ins og hefur fjölgað um níu þús­und frá því sem áður var.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár