Bubbi verður að banna með mánaðarfyrirvara

Ekki nóg að til­kynna snið­göngu útvarps­stöðva á Facebook. Eitt dæmi er um bann tón­list­ar­manns gagn­vart útvarps­stöð, þegar Jóhann G. Jóhanns­son vildi banna Bylgjuna

Bubbi bannar
Bubbi bannar Bubbi Morthens verður að til­kynna Útvarpi Sögu um bann með mán­að­ar­fyr­ir­vara. Mynd: Helgi Halldórsson

Ljótu hálf­vit­arnir og Bubbi Morthens geta ekki til­kynnt ein­hliða á Facebook að tón­list þeirra sé bönnuð á Útvarpi Sögu. Guðrún Björk Bjarna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri STEFS, sam­taka tón­list­ar­manna og texta­höf­unda, segir að tón­list­ar­mönnum sé heim­ilt að grípa til slíks banns en það ger­ist aðeins sam­kvæmt ákveðnum reglum.

„Samkvæmt samn­ingum okkar verða þeir sem vilja banna fyr­ir­tækjum að nota tón­list sína að fara í gegnum okkur. Þá er við­kom­andi skrifað bréf og til­kynnt með mán­að­ar­fyr­ir­vara að bannið taki gildi,“ segir Guðrún Björk.

Hún segir að sam­tökin hafi ekki fengið erindi frá Ljótu hálf­vit­unum eða Bubba hvað varðar bannið. Hún segir að eitt dæmi sé um það í seinni tíð að tón­list­ar­maður vildi banna fyr­ir­tæki flutn­ing á tón­list sinni. Það var Jóhann G. Jóhanns­son heit­inn sem vildi banna Bylgj­unni að flytja lög sín. Það var vegna tón­list­ar­stefnu stöðv­ar­innar.

„Það reynd­ist ekki mögu­legt að banna ein­ungis Bylgj­unni að flytja lög hans. Bannið hefði þurft að ná til allra fjöl­miðla 365 sem á Bylgjuna. Áður en til þess kom áðist sátt í mál­inu. Ég þekki engin önnur dæmi um slíkt,” segir Guðrún Björk.

Hún stað­festir að þetta gildi í báðar áttir. Þannig geti útvarps­stöðvar ákveðið að spila ekki lög með ein­stökum tón­list­ar­mönnum á sömu for­sendum.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár