Horfur í efnahagslífinu hafa versnað frá því í júlí og baráttan verður langdregnari

Seðla­bank­inn segir að heim­ili og fyr­ir­tækið verði að vera undir það búin að aðhald verði hert á ný þegar efna­hags­lífið tekur við sér í kjöl­far COVID-19 far­ald­urs­ins. Það getur til að mynda þýtt hækkun vaxta.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Horfur fyrir fjár­mála­stöð­ug­leika hafa versnað frá byrjun júlí og nú bendir flest til þess að „bar­áttan við COVID-19-far­sótt­ina verði lang­dregn­ari en vonir voru bundnar við á vor­mán­uðum.“

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í rit­inu Fjár­mála­stöð­ug­leiki, sem Seðla­banki Íslands birti í dag.

Þar segir að þessi staða muni hafa nei­kvæð áhrif á heim­ili og fyr­ir­tæki og þar með útlána­gæði í fjár­mála­kerf­inu. Aðgerðir stjórn­valda og Seðla­bank­ans hafi meðal ann­ars miðað að því að milda höggið og auð­velda heim­ilum og fyr­ir­tækjum að takast á við afleið­ingar far­ald­urs­ins með lægri fjár­magns­kostn­aði og greið­ara aðgengi að fjár­magni.

Þar sé um að ræða aðgerðir eins og greiðslu­hlé, hluta­bóta­leið­ina og lækkun vaxta, sem hafi allar leitt til þess að áhrifa far­ald­urs­ins gætir enn að tak­mörk­uðu leyti hjá heim­ilum. Líflegur fast­eigna­mark­aður með áfram­hald­andi verð­hækk­unum og kröft­ugri einka­neysla en búist var við sýni það. „Viðbúið er þó að atvinnu­leysi auk­ist enn frekar á næstu mán­uðum. Algert tekju­fall blasir við í ferða­þjón­ustu og smitá­hrif yfir á tengdar greinar, svo sem útleigu atvinnu­hús­næðis, eru umtals­verð. Þrengt hefur að aðgengi fyr­ir­tækja að fjár­magni vegna skertrar greiðslu­getu og auk­innar óvissu. Aukin skuld­setn­ing ein og sér mun ekki leysa vanda þeirra fyr­ir­tækja sem verst eru stödd. Veruleg hætta er á að fjöldi fyr­ir­tækja leiti eftir greiðslu­skjóli eða fari í gjald­þrot á næstu mán­uðum.“

[adspot]Í rit­inu er farið yfir að gengi krón­unnar hafi gefið eftir það sem af er ári, enda sé mikil óvissa í stærstu útflutn­ings­at­vinnu­grein­inni, ferða­þjón­ustu. Gjald­eyr­is­forði Seðla­bank­ans sé þó mjög stór og vel yfir öllum forða­við­miðum. „Viðbrögð við far­sótt­inni fela í sér slökun á aðhaldi, það kann að grafa undan fjár­mála­stöð­ug­leika þegar til lengri tíma er litið. Heimili og fyr­ir­tæki þurfa að vera undir það búin að aðhald verði hert á ný þegar efna­hags­lífið tekur við sér.“

Skuldir aukist um rúmlega milljarð á dag

Í Fjár­mála­stöð­ug­leika­rit­inu segir að áætlað sé að lands­fram­leiðsla helstu við­skipta­landa Íslands hafi dreg­ist saman um tæp þrettán pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins 2020. Það er mesti sam­dráttur á einum árs­fjórð­ungi frá því að mæl­ingar á slíkum hófust eftir seinni heims­styrj­öld­ina á fimmta ára­tug síð­ustu aldar. „Efna­hags­horfur fyrir næstu fjórð­unga hafa einnig versnað sam­hliða fjölgun smita á heims­vísu eftir að losað var að hluta um þær sótt­varn­ar­að­gerðir sem inn­leiddar voru á vor­mán­uðum. Leiðandi vís­bend­ingar um efna­hags­um­svif gefa til kynna að umsvif hafi þó auk­ist í helstu iðn­ríkjum sam­hliða slökun sótt­varn­ar­að­gerða.“

Íslenska ríkið hefur, líkt og mörg önnur ríki, aukið veru­lega á skuld­setn­ingu sína til að mæta þess­ari stöðu. Alls juk­ust skuldir rík­is­sjóðs um 280 millj­arða króna á fyrstu átta mán­uðum árs­ins 2020. Það þýðir að skuld­irnar hafa auk­ist um rúm­lega 1,1 millj­arð króna á hverjum degi að á því tíma­bili að með­al­tali.

Erlendir færa fjármuni út

Hrein nýfjár­fest­ing fyrir erlent fjár­magn var nei­kvæð um 12 millj­arða króna frá júní til ágúst­loka. Útflæðið stafar fyrst og fremst af sölu erlendra aðila á rík­is­bréfum fyrir 15 millj­arða króna.

Í Fjár­mála­stöð­ug­leika segir að fjár­hæð aflandskróna hafi lækkað eilítið á vor­mán­uðum en hafi síðan staðið í stað síðan og nemi nú um 50 millj­örðum króna. „Í lok júlí áttu erlendir aðilar 94 ma.kr. í rík­is­bréfum. Erlendir eig­endur rík­is­bréfa eru nær ein­vörð­ungu sjóða­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki og er eign­ar­haldið auk þess veru­lega sam­þjappað, yfir 90% eru í eigu fjög­urra aðila.“

Á móti hefur fjár­magns­út­flæði inn­lendra aðila verið tak­markað, og skiptir þar mestu að líf­eyr­is­sjóðir sam­þykktu að skipta helst ekki krónum í gjald­eyri um nokk­urra mán­aða skeið til að verja krón­una frá því að falla of mikið. Á síð­ustu þremur árum námu gjald­eyr­is­kaup líf­eyr­is­sjóð­anna að með­al­tali um 100 millj­örðum króna á ári. Á fyrri árs­helm­ingi þessa árs námu kaupin hins vegar um 30 millj­örðum króna, þar af um sjö millj­örðum króna á öðrum árs­fjórð­ungi. Sjóð­irnir drógu þannig úr gjald­eyr­is­kaupum um nærri ¾ hluta milli fjórð­unga á öðrum árs­fjórð­ungi.

Í Fjár­mála­stöð­ug­leika segir þó að bráða­birgða­tölur fyrir júlí og ágúst sýni aukn­ingu á milli fjórð­unga á þriðja árs­fjórð­ungi. „Mikil aukn­ing í inn­lendum krónuinn­stæðum sjóð­anna, um 39 ma.kr. frá apríl til loka ágúst, bendir til þess að sjóð­irnir hafi dregið almennt úr fjár­fest­ingu vegna óvissu tengdrar far­sótt­inni Auk þess hefur eft­ir­spurn eftir íbúða­lánum sjóð­anna minnkað. Upp­söfnuð fjár­fest­ing­ar­þörf þeirra hefur því auk­ist nokkuð síð­ustu mán­uði. Miðað við fjár­fest­ing­ar­á­form líf­eyr­is­sjóð­anna er ekki ólík­legt að erlend fjár­fest­ing þeirra vaxi á ný á næstu miss­erum en sjóð­irnir ákváðu að fram­lengja ekki tak­mark­anir á gjald­eyr­is­kaupum til nýfjár­fest­ingar erlendis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár