Samkeppniseftirlitinu falið að kortleggja stjórnunar- og eignatengsl í sjávarútvegi

Mat­væla­ráðu­neytið mun fá skýrslu um stjórn­unar- og eigna­tengsl í sjáv­ar­út­vegi afhenta fyrir lok næsta árs. Þar verða eigna­tengsl sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem hafa fengið ákveðið umfang afla­heim­ilda úthlutað, og áhrifa­vald eig­enda þeirra, kort­lögð.

Mat­væla­ráðu­neytið hefur gert samn­ing við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um að tryggja því fjár­hags­legt svig­rúm til að stofn­unin geti ráð­ist í athugun á stjórn­unar- og eigna­tengslum í sjáv­ar­út­vegi. Samhliða er stefnt að auknu sam­starfi stofn­ana á þessu sviði. Auk eft­ir­lits­ins er þar um að ræða Fiski­stofu, Skattinn og Seðla­banka Íslands.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sendi frá sér til­kynn­ingu í dag vegna athug­un­ar­innar þar sem segir að að yfir­sýni og þekk­ing á stjórn­unar- og eigna­tengslum í íslensku atvinnu­lífi hafi mikla þýð­ingu jafnt fyrir eft­ir­lið og áður­nefndar stofn­anir. „Samhliða athug­un­inni er því stefnt að auknu sam­starfi þess­ara stofn­ana, en í því felst að umgjörð um eft­ir­lit með stjórn­unar- og eigna­tengslum í íslensku atvinnu­lífi verði styrkt, rutt verði úr vegi mögu­legum hindr­unum í sam­starfi hlut­að­eig­andi stofn­ana og skil­virkni í stjórn­sýslu á þessu sviði aukin.“

Í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins vegna máls­ins segir að mark­mið kort­lagn­ing­ar­innar sé að stuðla að gagn­sæi í eign­ar­haldi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja ásamt upp­lýstri stefnu­mótun stjórn­valda um reglu­um­gjörð sjáv­ar­út­vegs og breyt­ingar á henni. Einnig á vinnan að stuðla að því að farið sé að lögum og reglum á þessu sviði og eft­ir­lits­stofn­anir geti sinnt hlut­verki sínu.

Kort­lagn­ingin verður sett fram í sér­stakri skýrslu sem á að afhenda Svandísi Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra í síð­asta lagi á 31. des­em­ber 2023, eða eftir tæpa 14 mán­uði. Skýrslan á því að nýt­ast ráðu­neyt­inu í umfangs­mik­illi stefnu­mót­un­ar­vinnu um sjáv­ar­út­veg sem nú stendur yfir.

Í athug­un­inni felst upp­lýs­inga­söfnun og kort­lagn­ing eigna­tengsla sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem hafa fengið úthlutað ákveðnu umfangi afla­heim­ilda og áhrifa­valdi eig­enda sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja í gegnum beit­ingu atkvæð­is­réttar og stjórn­ar­setu í fyr­ir­tækjum.

Djúpstæð tilfinning um óréttlæti

Svandís skip­aði í maí á þessu ári ein­a fjöl­­menn­­ustu nefnd Íslands­­­sög­unnar til að „greina áskor­­anir og tæki­­færi í sjá­v­­­ar­út­­­veg­i“. Í starfs­hóp­um, verk­efna­­stjórn og sam­ráðs­­nefnd sitja á fimmta tug ein­stak­linga. Nefndin á að starfa út næsta ár. Vinnan við kort­lagn­ingu á stjórn­unar- og eigna­tengslum í sjáv­ar­út­vegi er hluti af þeirri vinnu.

[adspot]Fyr­ir­hug­aðar loka­af­urðir þessa starfs eru meðal ann­ars ný heild­ar­lög um stjórn fisk­veiða eða ný lög um auð­lindir hafs­ins og aðrar laga­breyt­ing­ar, verk­efni á sviði orku­skipta, nýsköp­un­ar, haf­rann­sókna og gagn­sæi og kort­lagn­ing eigna­tengsla í sjáv­ar­út­veg­i.

Þegar til­kynnt var um skipun hóps­ins var haft eftir Svandísi að í sjáv­ar­út­vegi ríki djúp­stæð til­finn­ing meðal almenn­ings um órétt­læti. „Sú til­finn­ing tel ég að stafi aðal­lega af tvennu; sam­þjöppun veiði­heim­ilda og þeirri til­finn­ingu að ágóð­anum af sam­eig­in­legri auð­lind lands­manna sé ekki skipt á rétt­látan hátt. Mark­miðið með þess­ari vinnu er því hag­kvæm og sjálf­bær nýt­ing sjáv­ar­auð­linda í sátt við umhverfi og sam­fé­lag.“

Telur vísbendingar til staðar

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur áður kannað mögu­leg sam­eig­in­leg yfir­ráð aðila sem hafa ekki verið skil­greindir sem tengdir í sjáv­ar­út­vegi.

Í lok febr­úar 2021 birti ­eft­ir­litið ákvörðun vegna sam­runa dótt­ur­fé­lags Síld­ar­vinnsl­unnar og útgerð­ar­fé­lags­ins Bergs. Þótt eft­ir­litið hafi ekki gert athuga­semd við þann sam­runa eftir skoðun sína á honum var þar birt það frum­mat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins „að til staðar séu vís­bend­ingar um yfir­ráð Sam­herja eða sam­eig­in­leg yfir­ráð Sam­herja og tengdra félaga yfir Síld­ar­vinnsl­unni og að þær vís­bend­ingar hafi styrkst frá því að Sam­keppn­is­eft­ir­litið fjall­aði um slík mögu­leg yfir­ráð í ákvörðun nr. 10/2013.“

Í kjöl­farið var kallað eftir frek­ari upp­lýs­ingum og sjón­ar­miðum frá aðilum og fylgst með eign­ar­halds­breyt­ingum sem urðu í tengslum við skrán­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar á mark­að í fyrra. Enn sem komið er hefur hins vegar hefur ekki verið tekin ákvörðun um frek­ari form­lega rann­sókn.

Samherjablokkin með næstum fjórðung aflaheimilda

Stærstu eig­endur Síld­­­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji og félagið Kjálka­­­nes, sem er í eigu sömu ein­stak­l­inga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Gren­i­vík. Þar er meðal ann­­­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­­­son, sem var um tíma annar for­­­stjóri Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­­skyld­u­­bönd­um, meðal ann­ars systk­ini hans. Auk þess á Kald­bak­­­­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­­­­sent hlut í öðru félagi, Eign­­­ar­halds­­­­­fé­lag­inu Snæfugli, sem á hlut í Síld­­­­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­­­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólf­­­ur.

Að mati eft­ir­lits­ins voru veru­­­leg tengsl milli stórra hlut­hafa í Síld­­­ar­vinnsl­unni og þrír af fimm stjórn­­­­­ar­­­mönnum í Síld­­­ar­vinnsl­unni á þeim tíma voru skip­aðir af eða tengdir Sam­herja og Kjálka­­­nesi. Einn þeirra er Þor­­­steinn Már Bald­vins­­­son, for­­­stjóri Sam­herja, sem er stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður Síld­­­ar­vinnsl­unn­­­ar.

[adspot]Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja, var í fyrra­haust með fjórðu mestu afla­hlut­­­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­­­sögu allra sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs­­­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 8,09 pró­­­­­sent. ­Út­­­­­­­­­gerð­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­­­sent eigu Sam­herja, hélt svo á 1,1 pró­­­­­­­­­sent kvót­ans.

Gjög­­­ur, sem er í eigu sömu aðila og eiga Kjálka­­­nes, hélt á 2,5 pró­­­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ild­­­um.

Þessir aðil­­­­ar: Síld­­­­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­­­­ur, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur mög­u­­­­legt að séu tengd­ir, héldu því sam­tals á 22,14 pró­­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta í nóv­­em­ber í fyrra. Í sumar bætt­ist 2,16 pró­­sent kvóti Vísis við og sam­an­lagður úthlut­aður kvóti til Sam­herja og mög­u­­legra tengdra aðila fór upp í 24,3 pró­­sent, eða næstum fjórð­ung allra úthlut­aðra afla­heim­ilda á Íslandi.

Tíu útgerðir með 67 prósent kvótans

Mikil sam­­­­­­þjöppun hefur átt sér heilt yfir stað í sjá­v­­­­­­­ar­út­­­­­­­­­­­vegi á Íslandi á und­an­­­­­­förnum ára­tug­um, eftir að fram­­­­­­sal kvóta var gefið frjálst og sér­­­­­­stak­­­­­­lega eftir að heim­ilt var að veð­­­­­­setja afla­heim­ildir fyrir banka­lán­um, þótt útgerð­­­­­­ar­­­­­­fyr­ir­tækin eigi þær ekki í raun heldur þjóð­in. Slík heim­ild var veitt árið 1997.

[links]Haustið 2020 héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins með sam­an­lagt á 53 pró­­­­sent af úthlut­uðum kvóta, en Kjarn­inn greindi frá því í nóv­­­em­ber í fyrra að það hlut­­­­fall væri komið upp í rúm­­­­lega 67 pró­­­­sent. Sam­­­þjöpp­unin jókst svo enn í sumar við kaup Síld­­­ar­vinnsl­unnar á Vísi, sem enn eru þó ekki að fullu frá­gengin þar sem þau eru háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Í til­kynn­ingu mat­væla­ráðu­neyt­is­ins vegna kort­lagn­ingar stjórn­unar- og eigna­tengsla í sjáv­ar­út­vegi sem birt var í dag segir skýrslan sem skila á muni ekki fjalla um ákvarð­anir Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins eða ann­arra eft­ir­lits­stofn­ana um frek­ari athug­anir eða íhlutun á grund­velli starfs­heim­ilda eða starfs­skyldna sam­kvæmt hlut­að­eig­andi lögum. „Hún mun hins vegar nýt­ast Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, Fiski­stofu, Skatt­inum og Seðla­banka Íslands við þekk­ing­ar­upp­bygg­ingu og við beit­ingu laga­fyr­ir­mæla á við­kom­andi sviði. Við vinnslu skýrsl­unnar er stefnt að því að mótuð verði upp­lýs­inga­tækni­um­gjörð sem nýt­ist við frek­ari kort­lagn­ingu og eft­ir­lit með stjórn­unar- og eigna­tengslum í íslensku atvinnu­lífi almennt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár