Nokkrar tillögur um breytt fiskveiðistjórnunarkerfi komnar fram

Þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar hafa kynnt frum­vörp um breyt­ingar á lögum um stjórn fisk­veiða á fyrstu dögum nýs þings. Öll snúa þau að því að end­ur­skil­greina hvað telj­ist tengdir aðilar.

Á síð­asta kjör­tíma­bili lagði þing­flokkur Við­reisnar auk þing­manna Pírata og Sam­fylk­ingar fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um stjórn fisk­veiða sem fól í sér að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem hefðu meira en eitt pró­sent af heild­ar­afla á sínum höndum þyrftu að skrást á hluta­bréfa­mark­að. Ef fyr­ir­tæki réðu yfir 8-12 pró­sentum heild­ar­afla­hlut­deildar gætu ein­stakir hlut­hafar og aðilar honum tengdir ekki farið með meira en tíu pró­sent hluta­fjár eða atkvæð­is­rétt­ar.

Þing­flokkur Við­reisnar hefur nú lagt frum­varpið fram aftur, í þetta sinn einn síns liðs. Til­gang­ur­inn er sagður þrí­þættur. Í fyrsta lagi er því ætlað að auka gagn­sæi fjár­hags­upp­lýs­inga með kröfum um skrán­ingu á skipu­legum hluta­bréfa­mark­aði. Í öðru lagi felur það í sér kröfu um dreifða eign­ar­að­ild stærri útgerð­ar­fyr­ir­tækja. Í þriðja lagi afmarkar það með skýr­ari hætti en gild­andi lög það hámark í heild­ar­afla­hlut­deild sem ein­stakir aðilar eða tengdir aðilar geta ráðið yfir.

Viðreisn hefur líka lagt á ný fram frum­varp um tíma­bind­ingu veiði­heim­ilda til 20 ára. Ef það yrði að lögum myndi heild­ar­afla­hlut­deild í öllum teg­undum fyrn­ast um fimm pró­sent á ári og sama hlut­deild í kjöl­farið seld á upp­boðs­mark­aði til 20 ára í senn.

Þing­flokkur Flokks fólks­ins hefur líka lagt aftur fram frum­varp sem áður hefur komið fram en hlaut ekki braut­ar­gengi um breyt­ingu á lögum um stjórn fisk­veiða. Til­gangur þess er að tryggja „virka sam­keppni og sporna við því að veiði­heim­ildir safn­ist á fáar hendur.“

Ef frum­varpið yrði að lögum myndi skil­grein­ing á tengdum aðilum breyt­ast þannig að aðilar mættu eiga, beint eða óbeint, 20 pró­sent af hlutafé eða stofnfé í öðru fyr­ir­tæki sem heldur á kvóta. Það þak er í dag 50 pró­sent. Auk þess yrðu eft­ir­lits­heim­ildir Fiski­stofu efldar umtals­vert svo stofn­unin geti rann­sakað með „við­hlít­andi hætti hvort tengsl séu á milli aðila“.

Vilja miða við lög um peningaþvætti

Þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar er ekki eft­ir­bátur kollega sinna í stjórn­ar­and­stöð­unni og leggur fram sitt eigið frum­varp um breyt­ingu á lögum um stjórn fisk­veiða. Líkt og í hinum til­fell­unum er um end­ur­fram­lagn­ingu að ræða.

Frum­varpið miðar að því að hrinda í fram­kvæmd til­lögum verk­efna­stjórnar um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni sem verk­efna­stjórnin skil­aði til sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra 30. des­em­ber 2019, en Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sat í þeirri verk­efna­stjórn.

Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sat í verkefnastjórninni.
Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sat í verk­efna­stjórn­inni.

Efni frum­varps­ins er meðal ann­ars það að lagðar eru til breyt­ingar á skil­grein­ingu hug­taks­ins „tengdir aðilar“ í lögum um stjórn fisk­veiða. Í frum­varpi Sam­fylk­ing­ar­innar er í fyrsta lagi lagt til að miðað verði við að aðilar telj­ist tengdir fari annar aðil­inn með að minnsta kosti 25 pró­sent hluta­fjár, stofn­fjár eða atkvæð­is­réttar í hinum, til sam­ræmis við lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Í öðru lagi er lagt til að til tengdra aðila telj­ist lög­að­ilar sem stjórnað er af sömu ein­stak­lingum og hjón, sam­búð­ar­fólk, börn þeirra og fóst­ur­börn auk lög­að­ila í þeirra eigu. Í þriðja lagi er lögð til ítar­legri skil­grein­ing á því hvað felist í raun­veru­legum yfir­ráðum en kveðið er á um í gild­andi lögum um stjórn fisk­veiða. Að lokum er kveðið á um máls­með­ferð Fiski­stofu þegar sam­an­lögð afla­heim­ild ein­stakra aðila og tengdra aðila er yfir sex pró­sent af heild­ar­verð­mæti allra teg­unda sem sæta tak­mörk­unum á leyfi­legum heild­ar­afla.

Ríkisstjórnin ætlar að skipa nefnd

Þegar áður­nefnd loka­skýrsla verk­efna­stjórnar um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni var brit kom í ljós að hún gerði engar til­­­lögur að breyt­ingum á kvóta­­­þaki eða kröfu um hlut­­­­fall meiri­hluta­­­­eignar í tengdum aðil­um.

Krist­ján Þór Júl­í­us­son, þáver­andi ráð­herra mála­flokks­ins, hafði þá þegar lagt fram tvenn drög að frum­vörpum um breyt­ingu á ýmsum lögum á sviði fisk­veiði­stjórn­unar. Annað fjall­aði um skil­grein­ingu tengdra aðila í sjáv­ar­út­vegi í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, sem byggði á vinnu verk­efna­stjórn­ar­inn­ar. Í þeim drögum kom fram að þeir sem laga­breyt­ingin myndi hafa áhrif á myndu hafa fram á fisk­veið­i­­árið 2025/2026 til að koma sér undir lög­­­bundið kvóta­­­þak, eða sex ár. Kvóta­þakið myndi hins vegar áfram vera óbreytt, hveri og ein ein­ing mætti halda á allt að 12 pró­sent af úthlut­uðum kvóta.

Annað frum­varpið, það sem snýr ekki að frek­ari skil­grein­ingu á tengdum aðilum var svo lagt fram í apríl síð­ast­liðnum, lít­il­lega breytt, en var ekki afgreitt fyrir þing­lok. Í grein­ar­gerð þess sagði að meg­in­til­gangur þess væri að koma á heild­stæðu við­ur­laga­kerfi vegna brota á lögum á sviði fisk­veiði­stjórnar, að heim­ildir Fiski­stofu til að sinna raf­rænu eft­ir­liti yrðu styrktar og að hug­takið raun­veru­leg yfir­ráð við fram­kvæmd reglna um hámarks­afla­hlut­deild yrði afmarkað betur.

Kristján Þór Júlíusson var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á síðasta kjörtímabili.
Kristján Þór Júl­í­us­son var sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra á síð­asta kjör­tíma­bili.

Í þing­mála­skrá nýrrar rík­is­stjórnar, sem var birt í síð­ustu viku kemur fram að nýr ráð­herra mála­flokks­ins, Svandís Svav­ars­dóttir, ætli að leggja það fram að nýju í jan­úar 2022.

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar er greint frá því að skipuð verður nefnd til að kort­leggja áskor­anir og tæki­færi í sjáv­ar­út­vegi og tengdum greinum og meta þjóð­hags­legan ávinn­ing fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins. Þar segir: „Nefnd­inni verði falið að bera saman stöð­una hér og erlendis og leggja fram til­lögur til að hámarka mögu­leika Íslend­inga til frek­ari árang­urs og sam­fé­lags­legrar sáttar um umgjörð grein­ar­innar. Nefndin falli einnig um hvernig hægt er að auka gagn­sæi í rekstri fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og þá sér­stak­lega meðal stærstu fyr­ir­tækja lands­ins. Þá meti nefndin árangur af atvinnu- og byggða­kvóta og strand­veiðum til að styðja við atvinnu­líf í lands­byggð­unum.“

Stóraukin samþjöppun milli ára

Þegar Fiski­stofa tók saman kvóta­stöðu allra útgerða í fyrra­haust var nið­ur­staðan sú að engin ein útgerð héldi á meiri kvóta en lög heim­ila, en sam­kvæmt því má engin ein tengd blokk hald á meira en tólf pró­sent af heild­ar­verð­mæti úthlut­aðra afla­heim­ilda hverju sinni. Brim, sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem er skráð á mark­að, var efst á list­anum yfir þær útgerðir sem héldu á mestu með 10,45 pró­sent af úthlut­uðum kvóta.

Tíu stærstu útgerð­irnar héldu sam­an­lagt á 53,1 pró­sent af kvót­an­um. Það var svipuð staða og hafði verið árin á und­an.

Fiski­stofa, sem hefur eft­ir­lit með því að yfir­ráð ein­stakra aðila yfir afla­hlut­deildum fari ekki umfram lög­bundin mörk, birti nýja sam­an­tekt á sam­þjöppun afla­hlut­deildar í byrjun síð­asta mán­aðar. Þar birt­ist ný staða. Nú er ein útgerð, Brim, komin yfir lög­bundið kvóta­þak og tíu stærstu útgerð­irnar halda nú á 67,45 pró­sent á öllum úthlut­uðum kvóta.

Fjórar blokkir eru með yfir­ráð yfir 60 pró­sent af öllum kvóta sem úthlutað hefur verið á Íslandi. Sú stærsta, sem hverf­ist um Samherja, heldur á yfir 22 pró­sent af öllum kvóta.

Meira í arð en opinber gjöld

Hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins, sam­tala arð­greiðslna og auk­ins eigin fjár þeirra, hefur vænkast um meira en 500 millj­arða króna frá banka­hruni. Geirinn greiddi sér meira út í arð, alls 21,5 millj­arða króna, í fyrra en hann greiddi í öll opin­ber gjöld, alls 17,4 millj­arða króna. Inni í þeirri tölu eru veiði­gjöld (4,8 millj­arðar króna), tekju­skattur (7,3 millj­arðar króna) og áætlað trygg­inga­gjald (5,3 millj­arðar króna).

Þetta er í eina skiptið á síð­ustu fimm árum sem sjáv­ar­út­veg­ur­inn hefur greitt minna í opin­ber gjöld en hann tók út í arð­greiðsl­ur. Raunar hefur geir­inn ein­ungis einu sinni greitt jafn lítið í bein opin­ber gjöld innan árs á því tíma­bili og hann gerði í fyrra, en það var árið 2017 þegar heild­ar­greiðslur hans í opin­ber gjöld voru 15,8 millj­arðar króna.

Heild­ararð­greiðslur út úr sjáv­ar­út­vegi frá byrjun árs 2016 og út síð­asta ár nema 70,5 millj­örðum króna. Á sama tíma hefur geir­inn greitt 35,9 millj­arða króna í veiði­gjöld, eða rétt rúm­lega 50 pró­sent af þeirri upp­hæð sem eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafa fengið í arð.

Kannanir sýna að almenningur vill breytingar

Í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga voru gerðar ýmsar kann­anir á skoðun almenn­ings á stjórn fisk­veiða hér­lend­is. Í könnun sem MMR vann fyrir Öldu - félag um sjálf­­bærni og lýð­ræði kom meðal ann­ars fram 66 pró­­sent lands­­manna, tveir af hverjum þrem­­ur, voru óánægðir með núver­andi útfærslu á kvóta­­kerfi í sjá­v­­­ar­út­­­vegi. Þar af sögð­ust 38 pró­­sent vera mjög óánægð með hana.

Í sömu könnun kom fram að 64 pró­­sent lands­­manna, næstum tveir af hverjum þrem­­ur, telja að núver­andi útfærsla á kvóta­­kerf­inu ógni lýð­ræð­inu.

Loks var birt nið­­ur­­staða könn­unar sem Gallup gerði fyrir þrýst­i­hóp­inn Þjóð­­ar­­eign. Í henni var fólk spurt hvort það styddi að mark­aðs­­gjald væri greitt fyrir afnot af fiski­miðum þjóð­­ar­inn­­ar. Nið­­ur­­staðan var sú að 77 pró­­sent aðspurðra var fylgj­andi því og ein­ungis 7,1 pró­­sent var and­vígt slíkri kerf­is­breyt­ingu. Afger­andi meiri­hluti kjós­­enda allra flokka var fylgj­andi breyt­ing­unni þótt stuðn­­ing­­ur­inn væri minni hjá kjós­­endum Fram­­sókn­­ar­­flokks, Sjálf­­stæð­is­­flokks og Mið­­flokks en þeim sem ætla að kjósa aðra flokka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár