Neyðarlánsskýrslan frestast um tvær vikur – Verður birt 14. maí

Skýrsla um neyð­ar­lánið sem Kaupþing veitti haustið 2008 og sölu­ferlið á FIH bank­anum, sem boðuð var í febr­úar 2015, átti að vera birt í dag. Útgáfu hennar hefur verið frestað til 14. maí næst­kom­andi.

Neyðarlánið var veitt í kjölfar símtals milli Davíðs Oddssonar og Geirs H. Haarde.
Neyð­ar­lánið var veitt í kjöl­far sím­tals milli Davíðs Odds­sonar og Geirs H. Haarde. Mynd: Samsett.

Birting skýrslu sem Seðla­banki Íslands hefur unnið að árum saman, og fjallar um til­­drög þess að Kaup­­þing fékk 500 millj­­óna evra neyð­­ar­lán þann 6. októ­ber 2008, hefur enn verið frestað. Í mars boð­aði Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri að skýrslan yrði birt 30. apríl, sem er í dag.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Seðla­banka Íslands hefur birt­ingu hennar hins vegar verið frestað um tvær vikur og verður hún nú birt 14. maí næst­kom­andi.

Upp­­haf­­lega var skýrslu­­gerðin boðuð í febr­­úar 2015. Skýrslan nær einnig yfir sölu­­ferlið á danska bank­­an­um FIH, sem var tek­inn að veði fyrir lán­veit­ing­unni. Mun minna fékkst fyrir það veð en lagt var upp með og áætlað er að tap íslenskra skatt­greið­enda vegna neyð­­ar­láns­ins hafi numið 35 millj­­örðum króna.

[adspot]Í svari Katrínar Jak­obs­dóttur for­­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­­spurn Jóns Stein­­dórs Vald­i­mar­s­­son­­ar, þing­­manns Við­reisn­­­ar, um neyð­­ar­lán­veit­ing­una, sem birt var á vef Alþingis 14. nóv­­em­ber 2018, kom fram að hún ætl­­aði að óska eftir því að Seðla­­banki Íslands myndi óska svara frá Kaup­­þingi ehf. um ráð­­stöfun umræddra fjár­­muna og að bank­inn myndi greina frá nið­­ur­­stöðum þeirra umleit­ana í skýrslu.

Már greindi frá því í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í byrjun mars að Seðla­banki Íslands væri búinn að fá svör frá Kaup­þingi ehf, félagi utan um eft­ir­stand­andi eignir hins gjald­þrota banka, um í hvað neyð­ar­lánið fór.

„Við höfum spurt. Við erum komin með svar sem er kannski ekki alveg full­komið[...]en sem er hægt að draga þó nokkrar álykt­anir af. Það verður í þess­ari skýrslu. Hún er meira og minna bara á borð­inu. Það þarf að klára örfá atriði. Það stendur á þessum karli sem hér er.[...]Þetta liggur eins og mara á mér að klára þetta. Og ég vil bara klára þetta sem fyrst.“

Nýjar upplýsingar birtar

Í bók­inni Kaupt­hink­ing: Bank­inn sem átti sig sjálf­ur, sem kom út í nóv­em­ber 2018, er aðdrag­and­inn að veit­ingu neyð­­ar­láns­ins rak­inn ítar­­lega og ýmsar áður óbirtar upp­­lýs­ingar birtar um þann aðdrag­anda. Þar voru einnig birtar nýjar upp­­lýs­ingar um hvernig neyð­­ar­lán­inu var ráð­staf­að.

[links]Á meðal þess sem þar er greint frá er að þann 21. apríl 2008 var sam­­þykkt sér­­­stök banka­­stjórn­­­ar­­sam­­þykkt, nr. 1167, um hver við­brögð Seðla­­banka Íslands við lausa­­fjár­­­vanda banka ætti að vera. Í regl­unum var sér­­stak­­lega kveðið á um að skipa ætti starfs­hóp innan bank­ans til að takast á við slíkar aðstæður og gilda ætti ákveðið verk­lag ef aðstæður sem köll­uðu á þraut­­ar­vara­lán kæmu upp. Verk­lag­inu var skipt í alls sex þætti. Í sam­­þykkt­inni var líka fjallað um við hvaða skil­yrði lán til þrauta­vara kæmu til greina og í henni var settur fram ákveð­inn gát­listi vegna mög­u­­legra aðgerða Seðla­­bank­ans við slíkar aðstæð­­ur.

Þegar Kaup­­þing fékk 500 millj­­ónir evra lán­aðar 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett á Íslandi, var ekki farið eftir þeirri banka­­stjórn­­­ar­­sam­­þykkt. Þá er ekki til nein lána­beiðni frá Kaup­­þingi í Seðla­­bank­­anum og fyrir liggur að Kaup­­þingi var frjálst að ráð­stafa lán­inu að vild.

Lán­aði 171 milljón til Lindsor

Þann 6. októ­ber 2008, þegar Seðla­banki Íslands veitti Kaup­þingi neyð­ar­lán upp á 500 millj­ónir evra, veitti Kaup­þing félag­inu Lindsor, sem stýrt var af stjórn­endum bank­ans, 171 milljón evra lán til 25 daga. Engar trygg­ingar voru settar fram fyrir lán­inu. Skjöl sýna að við rann­sókn máls­ins hafi Fjár­mála­eft­ir­litið metið það svo að til­gang­ur­inn með lán­inu hafi ekki verið að lána fjár­mun­ina til sér­stakra nota, heldur til að gefa Lindsor svig­rúm til að nota fjár­mun­ina þegar því hent­aði. Lána­nefnd Kaup­þings veitti ekki sam­þykki fyrir lán­inu og hvergi er minnst á Lindsor í fund­ar­gerðum hjá lána­nefnd Kaup­þings fyrir árið 2008.

Sama dag og Lindsor fékk 171 milljón evra að láni hjá Kaup­þingi keypti félagið skulda­bréf útgefin af Kaup­þingi upp á 84 millj­ónir evra og 95,1 milljón dala ásamt skulda­bréfum útgefnum af Kaup­þingi í japönskum jenum og krónum sem metin voru á 15,2 millj­ónir evra. Sé miðað við skráð gengi 16. októ­ber 2008, þegar Lindsor skipti evru í aðra gjald­miðla til að jafna hjá sér bók­hald­ið, var upp­hæðin sem notuð var til kaupa á bréf­unum 170,1 milljón evra, eða nán­ast sama upp­hæð og Kaup­þing hafði lánað Lindsor. Selj­and­inn var dótt­ur­bank­inn í Lúx­em­borg sem keypt hafði þorra við­kom­andi bréfa sama dag af fjórum starfs­mönnum sín­um, eigin safni bank­ans og félagið Marp­le, sem skráð var í eigu Skúla Þor­valds­son­ar. Hann segir félag­inu þó ætið hafa verið stjórnað af Kaup­þingi og að hann hafi ekki haft vit­neskju um hvað átti sér stað innan þess.

Bjargað frá tapi

Í bréfi sem Fjár­mála­eft­ir­litið á Íslandi sendi fjár­mála­eft­ir­lit­inu í Lúx­em­borg 22. jan­úar 2010 var óskað eftir því að Lindsor-­málið svo­kall­aða yrði rann­sakað þar í landi. Í bréf­inu er rakið að í ágúst 2008 hafi áður­nefndir fjórir starfs­menn Kaup­þings í Lúx­em­borg keypt skulda­bréf útgefin af Kaup­þingi með afslætti.

[adspot]Einn þeirra seldi bréfin til baka þremur dögum fyrir neyð­ar­laga­setn­ingu en hinir seldu þau á tíma­bil­inu 6-8. októ­ber 2008. Kaup­and­inn var Kaup­þing í Lúx­em­borg sem áfram­seldi þau svo til Lindsor, sem not­aði fjár­muni frá Kaup­þingi á Íslandi til að kaupa bréf­in, sem þá voru orðin verð­lít­il.

Sölur fjór­menn­ing­anna voru að mati Fjár­mála­eft­ir­lits­ins fram­kvæmdar til að bjarga þeim frá því að hafa þurft að taka á sig mikið tap vegna skulda­bréfa­kaupa sem þau höfðu tekið lán til að kaupa. Í bréf­inu frá jan­úar 2010 segir enn fremur að við­skiptin hafi virst vera leið til að koma við­bót­ar­fjár­magni frá Kaup­þingi í Lúx­em­borg til þess­ara starfs­manna. Þar er Lindsor lýst sem „rusla­tunnu“ (e. rubb­ish bin) sem hafi verið sett upp til að koma í veg fyrir að Kaup­þing í Lúx­em­borg og tengdir aðilar þyrftu að taka á sig tap vegna fjár­fest­inga sem þeir hefðu ráð­ist í.

Tekið upp án vitneskju Geirs

Í aðdrag­anda þess að Seðla­banki Íslands veitti lánið til Kaup­þings ræddu Davíð Oddsson, þáver­andi seðla­banka­stjóri, og Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, lán­veit­ing­una í síma. Afrit af sím­tali þeirra hefur verið til hjá Seðla­bank­anum en var ekki birt árum saman vegna þess að Geir var mót­fall­inn því. Hann sagð­ist hafa verið tek­inn upp án sinnar vit­neskju og að það væri ekki boð­legt þegar um for­sæt­is­ráð­herra væri að ræða.

Í vitna­­skýrslu yfir Sturlu Páls­­syni, fram­­kvæmda­­stjóra mark­aðsvið­­skipta og fjar­stýr­ingar hjá Seðla­­banka Íslands, hjá sér­­­stökum sak­­sókn­­ara árið 2012, sem fjallað var um í fjöl­miðlum á árinu 2016, kom fram að sím­tal milli Dav­­íðs og Geirs, þar sem rætt var um lán­veit­ing­una, hafi átt sér stað klukkan 11.57 mán­u­dag­inn 6. októ­ber.

Þar sagði einnig að það hafi farið fram í gegnum síma Sturlu, sem var við­staddur sím­tal­ið. Við skýrslu­tök­una sagði Sturla að Davíð hafi vitað að sími Sturlu væri hljóð­­rit­aður og því frekar tekið sím­talið úr síma sam­­starfs­­manns síns en úr sínum eig­in. Eng­inn annar var við­staddur sím­tal­ið.

Kjarninn stefndi Seðlabanka Íslands

Kjarn­inn óskaði eftir því með tölvu­­pósti til Seðla­banka Íslands þann 6. sept­­em­ber 2017 að fá aðgang að hljóð­­rit­un­inni. Til­­­gang­­ur­inn var að upp­­lýsa almenn­ing um liðna atburði og vegna þess að framundan var birt­ing á tveimur skýrsl­um, þar af önnur sem unnin er af Seðla­­bank­an­um, þar sem atburðir tengdir sím­tal­inu verða til umfjöll­un­­ar. Birting þeirrar skýrslu hefur síðan ítrekað frest­ast og á nú að birt­ast eftir rúmar tvær vikur.

Beiðnin var rök­studd með því að um væri að ræða einn þýð­ing­­ar­­mesta atburð í nútíma hag­­sögu sem hefði haft í för með sér afdrifa­­ríkar afleið­ingar fyrir íslenskan almenn­ing. Seðla­­bank­inn hafn­aði beiðn­­inni þann 14. sept­­em­ber 2017 og byggði þá ákvörðun ein­vörð­ungu á því að þagn­­ar­­skylda hvíldi yfir umræddum upp­­lýs­ing­­um.

[adspot]Kjarninn ákvað í kjöl­farið að stefna Seðla­­banka Íslands fyrir dóm­stóla til að reyna að fá ákvörðun Seðla­­bank­ans hnekkt og rétt sinn til að nálg­­ast ofan­­greindar upp­­lýs­ingar við­­ur­­kenndan á grund­velli upp­­lýs­inga­laga. Í stefnu Kjarn­ans sagði m.a.: „Þá telur stefn­andi að við mat á beiðni hans á afhend­ingu gagn­anna þurfi að líta til stöðu og skyldna stefn­anda sem fjöl­mið­ils í lýð­ræð­is­­sam­­fé­lagi. Réttur fjöl­miðla til þess að taka við og skila áfram upp­­lýs­ingum og hug­­myndum skiptir meg­in­­máli fyrir almenn­ing. Beiðni stefn­anda lýtur að umræðum vald­hafa um umfangs­­miklar efna­hags­að­­gerðir sem snertu allan almenn­ing. Það er horn­­steinn lýð­ræðis og for­­senda rétt­­ar­­ríkis að fjöl­miðlar fjalli um brýn mál­efni með sjálf­­stæðum rann­­sóknum á upp­­lýsandi hátt. Svo hægt sé að fjalla um þessi mál­efni er nauð­­syn­legt að réttur til upp­­lýs­inga sé tryggður með full­nægj­andi hætti og að tak­­mark­­anir á þeim rétti séu ekki túlk­aðar með rýmk­andi hætt­i.“

Afrit birt í Morgunblaðinu

Seðla­banki Íslands ákvað að taka til varna í mál­inu og var það þing­fest. Áður en kom að fyr­ir­töku þess gerð­ist það hins vegar að Morg­un­blaðið birti afrit af sím­tal­inu. Davíð Odds­­son var á þeim tíma, og er enn í dag, rit­­stjóri Morg­un­­blaðs­ins og þar var sím­talið birt í heild sinni. Um málið var einnig fjallað í for­­síð­u­frétt og þar er því haldið fram að hvorki Davíð né Geir hafi vitað að sím­talið var tekið upp.

Ekki hefur farið fram form­leg rann­sókn á því hvernig Morg­un­blaðið komst yfir hljóð­ritun úr Seðla­banka Íslands.

Símtalið í heild sinni:

Davíð: Halló.

Rit­ari Geirs H. Haarde for­sæt­is­ráð­herra: Gjörðu svo vel.

Dav­íð: Halló.

Geir: Sæll vertu.

Dav­íð: ­Sæll það sem ég ætl­aði að segja þér, sko, sko, við út af fyrir sig getum í dag skrapað saman 500 millj­ónir evra en nátt­úr­lega, en erum þá komnir inn að beini og þá gætum við hjálpað Kaup­þingi í ein­hverja fjóra fimm daga en þá getum við ekki hjálpað Lands­bank­anum líka, sko.

Geir: ­Nei.

Dav­íð: Þú ert að tala um það að við eigum frekar að reyna að hjálpa Kaup­þingi.

Geir: Það slær mig þannig sko og mér fannst þeir vera líka á þeirri línu í gær­kvöldi alla­vega þessir Morgan menn.

Dav­íð: Ég býst við því að við fáum ekki þessa pen­inga til baka. Þeir segja að þeir muni borga okkur eftir fjóra fimm daga en ég held að það séu ósann­indi eða við skulum segja ósk­hyggja.

Geir: En eru þeir ekki með ein­hver veð?

Dav­íð: Við myndum aldrei lána það og við ætlum að bjóða þetta gegn 100% veði í FIH banka.

Geir: Já.

Dav­íð: Og þá verðum við að vita að sá banki sé veð­banda­laus.

Geir: Já.

Dav­íð: Því þá við megum ekki, sko, við megum ekki setja íslenska ríkið á galeið­una.

Geir: Nei, nei þetta eru 100 millj­arð­ar, spít­al­inn og Sunda­braut­in.

Dav­íð: Já, já ert þú ekki sam­mála því að við verðum að gera ýtr­ustu kröf­ur?

Geir: Jú, jú.

Dav­íð: Já.

Geir: Ég held að þeir muni leggja mikið á sig til að reyna samt að að upp­fylla þær, sko.

Dav­íð: Já, já, já, já það er bara eina hættan er sú að þeir séu búnir að veð­setja bréfin og þá geta þeir ekki gert þetta, sko.

Geir: Já, já og hvað myndum við koma með í stað­inn?

Dav­íð: Ja, það veit ég ekki, þá verðum við bara að horfa á það en það, við erum bara að tala um ýtr­ustu veð, erum að fara með okkur inn að beini þannig að við verðum að vera algjör­lega örugg­ir.

Geir: En er Lands­bank­inn ekki með neitt slíkt sem hann geti látið okkur hafa?

Dav­íð: Já, en þá er að við erum ekki með pen­ing í þetta. Við erum að fara alveg niður að rass­gati og við ætlum meira að segja að draga á Dan­ina sem ég tal­aði við í gær og sagði að við myndum ekki gera.

Geir: Já.

Dav­íð: En við erum búnir að tala við banka­stjór­ana þar og þeir eru að íhuga að fara yfir þetta.

Geir: Um.

Dav­íð: Það tekur tvo til þrjá daga að kom­ast í gegn.

Geir: Já.

Dav­íð: En við myndum skrapa, Kaup­þing þarf þetta í dag til að fara ekki á haus­inn.

Geir: Já, en það er spurn­ing með þá, fer þá Lands­bank­inn í dag?

Dav­íð: Já, þá myndi hann fara í dag á haus­inn vænt­an­lega.

Geir: Og Glitnir á morg­un?

Dav­íð: Og Glitnir á morg­un.

Geir: Já.

Dav­íð: Lands­bank­anum verður vænt­an­lega lokað í dag bara.

Geir: Já.

Dav­íð: Við vitum ekki, reyndar vitum við ekki hvort það er árás á Kaup­þing Edge. Við gerum ráð fyrir því þeir hafa ekki sagt okkur það enn­þá.

Geir: Er það á Ices­a­ve?

Dav­íð: Það eru farnar 380 millj­ónir út af Ices­ave punda og það eru bara 80 millj­arð­ar.

Geir: Þeir ráða aldrei við það, sko.

Dav­íð: Nei, þeir ráða aldrei við neitt af því, sko, en þetta er það besta leiðin ef við getum afskrifað allar skuldir þjóð­ar­innar þó að það muni valda vand­ræðum í Evr­ópu þá en þeir bara hjálp­uðu okkur ekki neitt þannig að það er ha...

Geir: Já, já.

Dav­íð: Þannig að þetta er nú...

Geir: Heyrðu, ég var að spá í að halda hérna fund klukkan eitt og ætl­aði að biðja þig að koma þangað annað hvort einan eða með þeim sem þú vilt hafa með með öllum for­mönnum stjórn­mála­flokk­anna.

Dav­íð: OK.

Geir: Og Fjár­mála­eft­ir­lit­inu?

Dav­íð: Já.

Geir: Til að fara yfir þetta og...

Dav­íð: En það, getur þú ekki haft það Jónas ekki Jón Sig­urðs­son það er óeðli­legt að...

Geir: Jónas, hann var hjá okkur í morg­un.

Dav­íð: Og hvað ertu að hugsa um að?

Geir: Ég myndi vilja að það yrði farið í fyrsta lagi yfir frum­varpið án þess kannski að afhenda þeim það en...

Dav­íð: En hvað mega menn vera ein­lægir?

Geir: Ég er búinn að vera mjög ein­lægur við þá.

Dav­íð: Já.

Geir: Ég er eig­in­lega búinn að segja þeim þetta allt.

Dav­íð: OK.

Geir: Ég segi bara að við erum bara hérna að tala hérna saman í fyllstu ein­lægni um alvar­leg­ustu vanda­mál sem upp hafa komið í þjóð­fé­lag­inu og ég treysti ykkur til að fara ekki með það.

Dav­íð: Já, já.

Geir: Og það hafa þeir virt held ég enn­þá.

Dav­íð: Ja, þeir hafa sagt ein­hverjum af örugg­lega en það er bara, þú getur aldrei haldið lok­inu.

Geir: Nei.

Dav­íð: Fast­ara en þetta á.

Geir: Nei, en...

Dav­íð: Klukkan eitt eða hvað?

Geir: Bara hérna hjá mér í rík­is­stjórn­ar­her­berg­inu.

Dav­íð: Hérna niðri í stjórn­ar­ráði?

Geir: Já.

Dav­íð: OK.

Geir: Spurs­málið er svo hérna...

Dav­íð: Ég kem bara einn held ég, það er betra að vera þarna fámennt en fjöl­mennt.

Geir: Já og þá myndum við fara almennt yfir heild­ar­mynd­ina.

Dav­íð: Já.

Geir: Og af hverju þessi lög eru nauð­syn­leg.

Dav­íð: Já, já.

Geir: Og svo er ég að plana það þannig að lögin verði orðin að lögum um sjöleyt­ið, mælt fyrir þeim klukkan fjög­ur, þing­flokks­fundir klukkan þrjú og það ætti að skapa okkur rými til þess að...

Dav­íð: Mælt fyrir þeim klukkan fjög­ur?

Geir: Já.

Dav­íð: OK.

Geir: Já, er það ekki rétti tím­inn?

Dav­íð: Jú, jú, jú, jú, jú, jú.

Geir: Ég er búinn að und­ir­búa það að þetta geti fengið hraða afgreiðslu og þeir...

Dav­íð: Já, já.

Geir: Hafa haft góð orð um það.

Dav­íð: Fínt er.

Geir: OK bless, bless.

Dav­íð: Bless.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár