Wuhan-skjölin: Mörg og alvarleg mistök í upphafi faraldursins í Kína

Sjúk­lingar biðu í yfir þrjár vikur að með­al­tali eftir grein­ingu, falskar nið­ur­stöður feng­ust úr sýna­tökum og skæður inflú­ensu­far­aldur geis­aði á sama tíma og fyrstu til­felli sjúk­dóms af völdum nýrrar veiru komu upp í Wuhan.

Maður með grímu gengur fyrir framan skilti þar sem varað er við því að borða leðurblökur og beltisdýr en úr þeim er kórónuveiran talin upprunin.
Maður með grímu gengur fyrir framan skilti þar sem varað er við því að borða leð­ur­blökur og belt­is­dýr en úr þeim er kór­ónu­veiran talin upp­runin. Mynd: EPA

Kínversk yfir­völd gáfu ekki upp opin­ber­lega allar þær upp­lýs­ingar sem þær höfðu í upp­hafi far­ald­urs kór­ónu­veirunnar í Wuhan fyrir rétt tæpu ári síðan. Tölur yfir smit voru til að mynda lægri en gögn yfir­valda sögðu til um. Sýnataka vegna veirunnar var í molum í land­inu fyrstu vik­urnar og flestir fengu nei­kvæða nið­ur­stöðu. Mikill far­aldur inflú­ensu geis­aði snemma í des­em­ber í Hubei-hér­aði en yfir­völd í Kína hafa aldrei greint frá honum.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í frétta­skýr­ingum CNN sem unnar eru upp úr gögnum frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum í Hubei-hér­aði, sem mörg hver voru merkt sem trún­að­ar­mál, en lekið var til fjöl­mið­ils­ins. CNN segir að þó að í gögn­unum standi ekki svart á hvítu að kín­versk yfir­völd hafi vís­vit­andi haldið upp­lýs­ingum um þróun far­ald­urs­ins frá umheim­inum sé ljóst að útgefnar upp­lýs­ingar voru ekki í takti við þær upp­lýs­ingar sem yfir­völd höfðu á hverjum tíma. Gögnin sýna því að mati frétta­manna CNN að mörg feil­spor voru stigin á fyrstu vikum far­ald­urs­ins sem benda til kerf­is­lægs vanda í upp­lýs­inga­gjöf. Yfirvöld töldu ýmis­legt vera í gangi sem þau upp­lýstu almenn­ing ekki um.

Gögnin sem CNN hefur unnið upp úr eru sögð gluggi inn í það sem var að ger­ast í Wuhan á fyrstu vik­unum eftir að veiran kom þar fyrst upp. Veiran sem síðar átti eftir að breið­ast út um alla heims­byggð­ina.

Þann 10. febr­úar ávarp­aði Xi Jinping, for­seti Kína, starfs­fólk sjúkra­hús­anna í Wuhan sem þá hafði vikum saman barist við nýtt afbrigði kór­ónu­veiru. For­set­inn var ekki á staðnum heldur í öruggri fjar­lægð, í beinni útsend­ingu frá Peking. Hans hafði verið saknað af sjón­ar­svið­inu. Hvar var for­set­inn á meðan allt lék á reiði­skjálfi vegna útbreiðslu veirunnar? Þennan dag greindu yfir­völd í Kína frá 2.478 nýjum smitum og fjöldi smita komst þá yfir 40 þús­und á heims­vísu. Aðeins 400 höfðu verið greind utan meg­in­lands Kína. Í frétta­skýr­ingu CNN kemur hins vegar fram að þennan dag, 10. febr­úar, voru smitin yfir helm­ingi fleiri en yfir­völd gáfu út. Þau höfðu þó undir höndum gögn sem sýndu að þau voru 5.918 en ekki 2.478. Ljóst þykir því að það kerfi sem var notað til að safna og dreifa upp­lýs­ingum um far­ald­ur­inn gerði það að verkum gerði minna úr útbreiðsl­unni en hún í raun og veru var.

[links]Wuhan-skjölin sem CNN byggir frétta­skýr­ingar sínar eru frá tíma­bil­inu frá októ­ber árið 2019 til apríl í ár. Þau bera með sér, að því er frétta­skýrendur CNN segja, að óheil­brigður valdastrúktúr, þar sem fyr­ir­mæli koma að ofan og und­ir­menn hafa lítið vald, hafi orðið til þess að upp­lýs­ingar um raun­veru­lega stöðu far­ald­urs­ins hafi ekki verið birtar almenn­ingi. Þá hefur lélegur aðbún­aður í kín­verska heil­brigð­is­kerf­inu einnig sitt að segja.

Eitt af því mest slá­andi sem sjá má í gögn­unum er hversu langan tíma það tók fyrir fólk að fá grein­ingu. Þó að kín­versk yfir­völd hafi ítrekað sagst hafa tök á far­aldr­inum, að ski­mað væri kerf­is­bundið og þjón­usta veitt til sjúkra, er það þó stað­reynd að sam­kvæmt skýrslu sem gerð var í Hubai-hér­aði í mars var bið­tími sjúk­linga frá fyrstu ein­kennum og þar til grein­ing var gerð að með­al­tali 23,3 dagar. Sér­fræð­ingar sem CNN ræðir við segja að þetta gæti hafa orðið til þess að útbreiðslan var meiri, þar sem fólk var þá ekki í ein­angrun, og einnig gæti þetta hafa haft áhrif á fram­gang sjúk­dóms­ins hjá sjúk­lingum þar sem þeir fengu enga með­ferð.

Kínversk yfir­völd hafa ætíð neitað því að þau hafi gert mis­tök í upp­hafi far­ald­urs­ins. Brugðist hafi verið við í tíma og öll við­brögð fram­kvæmd fyrir opnum tjöldum. „Meðan allt var gert til að reyna að hefta útbreiðslu veirunnar þá brást Kína einnig við af ábyrgð gagn­vart mann­kyn­inu, þjóð sinni og hinu alþjóð­lega sam­fé­lagi,“ sagði hvít­bók sem nefnd á vegum kín­verska rík­is­ins gaf út í júní.

Í gær, 1. des­em­ber, var nákvæm­lega ár liðið frá því að fyrsti sjúk­ling­ur­inn sýndi ein­kenni sjúk­dóms­ins sem síðar átti eftir að fá nafnið COVID-19. Sá bjó í Wuhan-borg í Hubei-hér­aði. Þetta er nið­ur­staða rann­sóknar sem birt var í lækna­tíma­rit­inu Lancet fyrir nokkru.

En á sama tíma hófst skæður inflú­ensu­far­aldur í Hubei, far­aldur sem tutt­ugu sinnum fleiri veikt­ust í miðað við árið á undan. Þetta varð til þess að auka enn við álagið á heil­brigð­is­kerfið sem var gríð­ar­legt fyrir. Af gögn­unum sem CNN hefur undir höndum er erfitt að segja hvaða áhrif inflú­ensu­far­ald­ur­inn hafði á útbreiðslu COVID-19 og ekk­ert í þeim bendir til þess að sýk­ing­arnar tvær teng­ist. Þetta á ein­fald­lega enn eftir að rann­saka því hvergi hefur áður komið fram opin­ber­lega að skæður far­aldur inflú­ensu hafi geisað í hér­að­inu í byrjun des­em­ber á síð­asta ári. Sér­fræð­ingar sem CNN ræða við segja hins vegar að mögu­lega hafi fjöldi fólks sýkst af nýju kór­ónu­veirunni á sjúkra­húsum sem voru yfir­full vegna inflú­ensunnar.

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin hefur verið gagn­rýnd fyrir að taka undir yfir­lýs­ingar kín­verskra yfir­valda um gang far­ald­urs­ins. Hún hefur óskað eftir aðgangi að öllum gögnum sem finn­ast um hann í kín­verska heil­brigð­is­kerf­inu til að rann­saka til hlítar upp­tök hans en hefur enn sem komið er aðeins fengið að sjá brot af þeim.

Að minnsta kosti sex­tíu millj­ónir manna hafa smit­ast af kór­ónu­veirunni og tæp­lega ein og hálf milljón hefur látið lífið vegna COVID-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár