Merki um að veiran sé að ná sér á flug

„Við höfum sagt und­an­farið að það sé tíma­spurs­mál hvenær við förum að sjá aukn­ingu í þessum far­aldri og ég held að við séum að sjá fyrstu vís­bend­ingar um það að við erum að fara upp þessa brekku,“ segir sótt­varna­læknir.

Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason, Alma Möller og Ævar Pálmi Pálmason á upplýsingafundinum í dag.
Víðir Reyn­is­son, Þórólfur Guðnason, Alma Möller og Ævar Pálmi Pálmason á upp­lýs­inga­fund­inum í dag. Mynd: Lögreglan

„Við finnum það núna að það er komin þreyta í marga. Það er óþol­in­mæði víða. Og það eru komnar margar sögu­sagnir í gang, við erum að fá meira af þeim til okkar heldur en áður. Í dag er mikið búið að spyrja okkur í hvort við séum til­búin með skipu­lag um útgöngu­bann. Það er ekki rétt. Mig langar að minna okkur á að halda áfram að vera hrein­skilin hvert við annað, spyrja gagn­rýnna spurn­inga en vanda orða­lagið. Við skulum vanda okkur í öllum sam­skiptum þá mun okkur ganga betur. Þetta er lang­hlaup, við erum rétt að byrja. Sýnum kær­leik.“

Á þessum orðum hóf Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, upp­lýs­inga­fund dags­ins. „Mér telst til að þetta sé nítj­ándi fund­ur­inn um COVID-19.“

Nú hafa verið greind 330 smit á Íslandi og hefur til­fellum því fjölgað um átta­tíu frá því í gær, sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á fund­inum. Á veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans greindust 73 ein­stak­lingar sem er um 15 pró­sent af inn­sendum sýnum sem er aukn­ing frá því sem var. „Þetta er ákveðið merki um að veiran sé kannski að ná sér aðeins á flug.“

Hvað varðar sýnin sem Íslensk erfða­grein­ing hefur tekið þá hafa 33 greinst jákvæð af um 4.500 sem er um 0,7 pró­sent.

Sjö á Landspítala með COVID-19

Yfir 3.700 ein­stak­lingar eru í sótt­kví um land allt en veiran hefur nú greinst í öllum lands­hlutum. Á Land­spít­ala eru sjö ein­stak­lingar inniliggj­andi vegna COVID-19. Þar af er einn á gjör­gæslu en hann er ekki í önd­un­ar­vél.

[links]„Við höfum sagt und­an­farið að það sé tíma­spurs­mál hvenær við förum að sjá aukn­ingu í þessum far­aldri og ég held að við séum að sjá fyrstu vís­bend­ingar um það að við erum að fara upp þessa brekku sem við höfum verið að teikna upp á kúrf­unni. Nú þurfum við að fylgj­ast mjög vel með hvar þessi sýk­ing er aðal­lega að stinga sér niður.“

Þórólfur sagði að yfir­völd hefðu ýmis ráð til að nýta sér „og við gætum þurft að nýta stað­bundnar aðgerðir ef í harð­bakk­ann slær en það er ekk­ert á þess­ari stundu sem er ákveðið. Við höfum ýmis­legt upp í erminni sem við getum þurft að grípa til þegar fram líða stundir.“

Nálgun íslenskra yfir­valda á þessum far­aldri er sú sama og áður. „Það er að greina snemma, beita ein­angrun á sýkta ein­stak­linga og sótt­kví á þá sem eru hugs­an­lega smit­aðir,“ sagði Þórólfur. „Þetta teljum við vera áhrifa­rík­ustu aðgerð­ina og segja Kín­verjar að hafi reynst þeim best. Þetta segja fræðin að virki best. Þetta er það sem margar þjóðir eru að grípa til núna.“

Hámarki spáð 7. apríl

Alma Möller land­læknir greindi frá því á fund­inum að í morgun hefði hún ásamt tveimur öðrum íslenskum læknum setið fjar­fund með kín­verskum heil­brigð­is­yf­ir­völdum þar sem farið var yfir far­ald­ur­inn í Kína. „Það er ljóst að aðgerðir þeirra voru svip­aðar og við erum nota.“

Hún sagði að nú væri hafin vinna við notkun spálík­ans hér á landi í sam­vinnu við bæði tölv­un­ar­fræð­inga og stærð­fræð­inga. Spáin tekur mið af því hvernig far­ald­ur­inn fer af stað á Íslandi sem og ann­ars staðar í heim­inum. Alma sagði að byrjað væri að skoða hvert álagið á heil­brigð­is­kerfið geti orðið. „Í gær benti með­al­spá til þess að 7. apríl væri hámark far­ald­urs og að þá væru sjö­tíu sjúk­lingar á sjúkra­húsi. Verri spá væri að 110 sjúk­lingar væru á sjúkra­húsi.“

Í lík­an­inu voru spár um gjör­gæslu­inn­lagnir skoð­aðar sér­stak­lega. „Miðað við með­al­spá væru sam­tals og upp­safnað, það er að segja inn­lagnir alls sjö þann fjórt­ánda apríl. En verri spá áætl­aði þrjá­tíu sjúk­linga og 16. apríl væri þá hápunktur.“

Alma lagði áherslu á að spáin væri gerð með miklum fyr­ir­vara og að hana þyrfti stöðugt að upp­færa. „En auð­vitað erum við að búa okkur undir far­ald­ur­inn með til­liti til verstu spár.“

Engar byggingar utan LSH

Land­læknir sagði að fyrst og fremst væri horft til Land­spít­al­ans í Fossvogi hvað varðar und­ir­bún­ing fyrir það að taka við fleiri sjúk­lingum vegna COVID-19. „Við erum líka með sviðs­myndir þar sem gæti þurft að leita út fyrir Land­spít­ala en við erum ekki á þessu stigi að hugsa um ein­hverjar nýjar bygg­ingar eða slíkt.“

Alma tók undir orð Víðis að nú væri mik­il­vægt að standa saman, hlusta ekki á flökku­sögur „og láta veiruna ekki kom­ast upp á milli okkar“.

Þórólfur rifj­aði upp fyrri orð sín um að ef tölur frá Hubei-hér­aði í Kína væru yfir­færðar á Ísland þá gætum við búist við því að 300-400 ein­stak­lingar myndu sýkj­ast. „Ég sagði einnig að við gætum séð um þrjá­tíu ein­stak­linga á gjör­gæslu. Þannig að sam­kvæmt okkar stærð­fræði­lík­ani virð­ist sú spá vera að ræt­ast.“ Hins vegar hafi hann alltaf sagt að tölur yfir smit­aða færu eftir því hversu mikið væri leitað. „Það var aldrei spá í sjálfu sér að hér myndu sýkj­ast ein­ungis 400 ein­stak­lingar.“

Víðir end­aði fund­inn á þessum orðum: „Munum það að við erum öll ein­stök. Við erum mis­mun­andi sam­sett sam­fé­lag. En í þessu til­felli erum við að vinna sem eitt lið. Það er eina leiðin til að kom­ast í gegnum þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár