Lést líklega úr COVID-19

Miklar líkur eru á því að ástr­alski ferða­mað­ur­inn sem lést á heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands á Húsavík hafi lát­ist úr COVID-19, sjúk­dómnum sem nýja kór­ónu­veiran veldur.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Skjáskot/RÚV

Miklar líkur eru á því að ástr­alski ferða­mað­ur­inn sem lést á heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands á Húsavík hafi lát­ist úr COVID-19, sjúk­dómnum sem nýja kór­ónu­veiran veldur.

Þetta sagði Alma Möller land­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Maðurinn var krufinn í gær og end­an­leg skýrsla liggur ekki fyrir. Alma sagð­ist þó hafa fengið heim­ild til þess hjá aðstand­endum að segja frá því að ljós hafi komið lungna­bólga og því senni­legt að hann hafi lát­ist úr COVID-19. „Hugur okkar er hjá aðstand­end­unum og þau vilja koma á fram­færi þökkum til allra þeirra sem rétt hafa fram hjálp­ar­hönd.“

Ferða­mað­ur­inn var innan við fer­tugt. Alma segir að ein­kennin sem hann fann fyrir dag­ana áður en hann dó séu ódæmi­gerð fyrir lungna­bólgu. „Við erum enn að kynn­ast þessum sjúk­dómi og margt á enn eftir að koma í ljós.“

Lang­flestir þeir sem veikj­ast alvar­lega eru aldr­aðir þó að dæmi séu um að ungt fólk hafi veikst mikið.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði frá því á fund­inum að sjö sjúk­lingar væru nú á Land­spít­al­anum vegna COVID-19. Einn er á gjör­gæslu en hann er ekki í önd­un­ar­vél.

330 hafa greinst með veiruna hér á landi. Um 3.700 eru í sótt­kví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár