Arion banki lækkar hlutafé – Virði þess um 14 milljarðar króna

Arion banki hefur lækkað útgefið hlutafé sitt um 9,3 pró­sent, eða þá eign sem bank­inn átti í sjálfum sér. Við það eykst virði hluta­fjár ann­arra hlut­hafa um 14,2 millj­arða króna. Þeir fá líka tíu millj­arða króna arð­greiðslu í ár.

Arion banki var skráður á markað í fyrra.
Arion banki var skráður á markað í fyrra. Mynd: Nasdaq Iceland

Skráð hlutafé Arion banka verður lækkað um 186 milljón hluti frá og með morg­un­deg­inum, 17. apríl. Um er að ræða 9,3 pró­sent af útgefnu hlutafé í bank­anum sem er í eigu hans sjálfs sem stendur. Virði þess hlutar, miðað við gengi bréfa í Arion banka í dag, er um 14,2 millj­arðar króna.

[links]Eftir breyt­ing­una mun útgefið hlutafé í Arion banka ekki lengur vera tvær millj­ónir hlutir heldur 1.814 millj­ónir hlutir. Það þýðir að hlut­falls­leg eign ann­arra hlut­hafa eykst. Eftir breyt­ing­una mun Kaupþing ehf., sem í dag á 18,14 pró­sent hlut í bank­anum, til dæmis eiga 20 pró­sent hlut og Taconic Capital, næst stærsti eig­and­inn, sjá hlut­falls­lega eign sína fara úr 14,5 pró­sentum í 16 pró­sent. Stoðir, stærsti inn­lendi fjár­festir­inn í Arion banka sem bætti veru­legum eign­ar­hlut við sig í síð­ustu viku, fer úr 4,2 pró­sent eign­ar­hlut í 4,6 pró­sent.

Átti 200 milljarða í eigið fé

Lækkunin á hlutafé Arion banka var sam­þykkt á aðal­fundi hans sem fram fór 20. mars síð­ast­lið­inn. Á þeim sama fundi var Brynjólfur Bjarna­son kjör­inn stjórn­ar­for­maður bank­ans og tók við þeirri stöðu af Evu Cederbalk. Á sama aðal­fundi var sam­þykkt að greiða út tíu millj­arða króna í arð vegna síð­asta árs þrátt fyrir að hagn­aður á árinu 2018 hafi ein­ungis verið 7,8 millj­arðar króna, um helm­ingur þess sem hann var árið áður.

[adspot]Eigið fé bank­ans var hins vegar mikið um síð­ast­lið­inn ára­mót, eða 200,9 millj­arðar króna, og ljóst að mögu­legt væri að greiða eig­endum út hluta þess annað hvort með nið­ur­færslu á hlutafé, sem hækkar virði eft­ir­stand­andi hluta, og með arð­greiðslum. Nú hefur bæði verið gert og sam­tals um 24 millj­arðar króna verið færðir úr bank­anum til hlut­hafa hans.

Lækkar eigið fé til að ná upp arðsemi

Ekkert af ofan­greindu ætti að koma á óvart. Í aðdrag­anda þess að Arion banki var skráður á markað í fyrra var birt til­kynn­ing um að bank­inn ætl­aði sér að vera með arð­semi eigin fjár sem sé yfir tíu pró­sent. Hann var fjarri því í fyrra þegar arð­semi eigin fjár hans var ein­ungis 3,7 pró­sent sam­an­borið við 6,6 pró­sent árið áður.

Til að ná þessu mark­miði þurfti að breyta fjár­mögnun bank­ans mjög með því að greiða út eigin fé og sækja víkj­andi lán. Þær aðferðir myndu minnka eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans umtals­vert og gera hlut­falls­lega arð­semi auð­veld­ari. Arion banki gaf út víkj­andi skulda­bréf í nóv­em­ber í fyrra og í til­kynn­ingu vegna þess kom fram að sú útgáfa, upp á 500 millj­ónir sænskra króna, væri „áfangi í veg­ferð hans að ná fram hag­kvæm­ari skipan eig­in­fjár.“ Í febr­úar gaf Arion banki svo út víkj­andi skulda­bréf í evrum upp á fimm millj­ónir evra í sama til­gangi.

[adspot]Auk þess lá fyrir að það þyrfti að minnka rekstr­ar­kostnað Arion banka mikið t.d. með því að fækka starfs­fólki og ná hóf­legum vexti í útlánum sem sé í takti við vöxt í þjóð­ar­fram­leiðslu á Íslandi í nán­ustu fram­tíð.

Bankastjórinn hætti og miklar breytingar á eignarhaldi

Miklar hrær­ingar hafa verið innan Arion banka und­an­farnar vikur og mán­uði. Hösk­uldur H. Ólafsson, sem hefur verið banka­stjóri í níu ár, til­kynnti skyndi­lega að hann væri að hætta 12. apríl síð­ast­lið­inn. Hösk­uldur hefur neitað því að hann hafi verið rek­inn eða að það hafi verið þrýst á hann að hætta. Arion banki hefur verið í sviðs­ljós­inu vegna þess að þrír stórir við­skipta­vinir sem bank­inn hafði lánað fé höfðu ratað í þrot á skömmum tíma með til­heyr­andi útlána­töpum. Um er að ræða United Silicon, Primera Air og WOW air.

Í vik­unni áður en Hösk­uldur til­kynnti um afsögn sína ákvað Kaupþing ehf., stærsti eig­andi bank­ans, að selja tíu pró­sent hlut í honum í lok­uðu útboði. Stoðir, sem einu sinni hétu FL Group, keyptu stóran hluta af því hlutafé auk þess sem Íslands­banki keypti umtals­verðan hlut fyrir við­skipta­vini sína í fram­virkum samn­ingum.

Til við­bótar við þessi tíu pró­sent seldi Kaupþing ehf., félag utan um eft­ir­stand­andi eignir þrota­bús bank­ans sem féll með látum í októ­ber 2008, einnig fimm pró­sent hlut til vog­un­ar­sjóðs­ins Taconic Capital á 6,5 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár