„Brasilíska afbrigðið“: Bretar herða reglur og súrefnið klárast í stórborg í Amazon

Far­alds­fræð­ingur í Manaus í Brasilíu segir borg­ina að verða sögu­svið eins sorg­leg­asta kafla COVID-19 far­ald­urs­ins hingað til. Súrefni skortir og nýburar eru fluttir í burtu. Á sama tíma grípa Bretar til hertra aðgerða til að verj­ast nýjum afbrigðum.

Frá spítala í Manaus í gær. Þar skortir súrefni, sem hefur valdið ónauðsynlegum dauðsföllum bæði COVID-sjúklinga og annarra.
Frá spít­ala í Manaus í gær. Þar skortir súr­efni, sem hefur valdið ónauð­syn­legum dauðs­föllum bæði COVID-sjúk­linga og ann­arra. Mynd: EPA

Bresk stjórn­völd kynntu í gær við­tækt ferða­bann. Allir sem hafa verið í ríkjum Suður-Ameríku, í Portúgal eða á Græn­höfða­eyjum eða milli­lent þar und­an­farna 10 daga mega ekki lengur koma til Bret­lands, að breskum eða írskum rík­is­borg­urum og öðrum sem hafa land­vist­ar­leyfi í Bret­landseyjum und­an­skildum.

Í dag bættu Bretar um betur og sögðu að frá og með mánu­degi þyrfti hver einn og ein­asti flug­far­þegi á leið til Bret­lands að fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi áður en hann fengi að setj­ast upp í flug­vél. Samkvæmt frá­sögn BBC af blaða­manna­fundi Borisar Johnson verða þessar reglur í gildi til 15. febr­úar. Þetta á líka við um flug frá Íslandi.

Ástæð­urnar fyrir þessum hertu aðgerðum eru sagðar ný og óþekkt afbrigði kór­ónu­veirunnar, á borð við eitt sem greinst hefur í Brasilíu og vís­inda­menn hafa áhyggjur af að gæti mögu­lega leitt til þess að þau bólu­efni sem hafa verið þróuð gagn­vart kór­ónu­veirunni virki síður. Ein af nokkrum stökk­breyt­ingum sem hefur orðið á þessu til­tekna afbrigði mun vera svipuð og sú sem er til staðar í því afbrigði sem kennt hefur verið við Suður-Afríku.

Grant Shapps, sam­göngu­mála­ráð­herra Bret­lands, ræddi þessar nýju tak­mark­anir við BBC í morgun og sagði að um var­úð­ar­ráð­stöfun væri að ræða. Bretland, sem væri komið af stað með bólu­setn­ing­ar­her­ferð sína, mætti ekki við frek­ari vand­kvæðum. Hann sagði ekki talið að þetta til­tekna „brasil­íska afbrigði“, sem greind­ist fyrst þar í landi í júlí, hefði fund­ist í Bret­landi.

Hert á reglum þvers og kruss

Bretar hafa hins vegar verið að glíma við mikla og hraða útbreiðslu svo­kall­aðs „bresks afbrigðis“ veirunnar, sem greind­ist fyrst þar í landi í októ­ber og talið er meira smit­andi en önnur afbrigði sem náð hafa fót­festu. Strangar sótt­varn­ar­ráð­staf­anir eru í gildi í land­inu, skólar lok­aðir og fólki sagt að halda sig sem mest heima.

Á sama tíma og Bretar herða á landa­mærum sínum til að verj­ast utan­að­kom­andi nýjum afbrigðum veirunnar hafa mörg ríki hert tak­mark­anir sínar á landa­mærum til þess að lág­marka áhætt­una á að afbrigðið sem þar er í mestri útbreiðslu ber­ist til sín.

Japanir greindu afbrigðið sem fyrst sást í Amazonas

Fréttir um þetta nýja „brasil­íska afbrigði“ hafa sprottið upp und­an­farna daga, eftir að smit­sjúk­dóma­stofnun Japans greindi frá því í til­kynn­ingu 12. jan­úar að það hefði fund­ist í fjórum ein­stak­lingum sem komu til lands­ins 2. jan­úar eftir dvöl í Amazonas-fylk­inu í Brasilíu.

Japanska stofn­unin benti á að stökk­breyt­ing­arnar sem væri að finna í afbrigð­inu væru að hluta þær sömu og í þeim sem greinst hafa og valdið áhyggjum í Bret­landi og Suður-Afríku. Rann­sóknir á þessu standa yfir.

Súrefnisskortur í Manaus

Und­an­farna daga hafa fjöl­miðlar sagt fregnir af skelf­ing­ar­á­standi sem skap­ast hefur á sjúkra­húsum í Amazonas-fylki og þá helst í fylk­is­höf­uð­borg­inni Manaus. Fjöldi inn­lagna vegna COVID-19 hefur auk­ist hratt að í borg­inni, þar sem um tvær millj­ónir manna búa.

Súrefni skortir til­finn­an­lega. Samkvæmt umfjöllun New York Times hefur þörf spít­al­anna í rík­inu fyrir súr­efni farið yfir 70 þús­und rúmmetra á sól­ar­hring. Þegar fyrsta bylgja far­ald­urs­ins reið yfir í mars fór súr­efn­is­þörfin hæst í 30 þús­und rúmmetra á sól­ar­hring.

Brasil­íski her­inn er byrj­aður að flytja súr­efni með flug­vélum til Manaus. Til þessa hefur þurft að vísa fólki frá og sjúk­lingar sem þurfa önd­un­ar­að­stoð hafa verið fluttir til ann­arra fylkja lands­ins. 

Margir eru þegar sagðir hafa lát­ist vegna súr­efn­is­skorts­ins og sumum deildum á sjúkra­húsum í Manaus hefur hrein­lega verið lýst sem „köfn­un­ar­klefum“, þar sem sjúk­lingar lát­ast án þess að örþreytt heil­brigð­is­starfs­fólk fái ráðið við stöð­una. Heil­brigð­is­starfs­fólk hefur þurft að grípa til þess ráðs halda lífi í fólki með hand­virkum súr­efn­isp­umpum.

Neyðarkall vegna fyrirbura

CNN

í Brasilíu sagði frá því í dag að fylk­is­yf­ir­völd hefðu óskað eftir því að 60 fyr­ir­burar yrðu fluttir með frá spít­ölum í Amazonas og til ann­arra fylkja Brasilíu. Það eru nefni­lega ekki bara COVID-sjúk­lingar sem þurfa súr­efnið.

„Hér eru engin laus rúm, engir súr­efn­iskútar, ekk­ert. Það eina sem við eigum eftir er trúin,“ hefur AFP frétta­stofan eftir íbúa í Manaus.

Breska blaðið Guardian ræðir við Jesem Orellana, far­alds­fræð­ing í Manaus, sem segir for­dæma­lausar hörm­ungar vera að ríða yfir í borg­inni. „Á næstu klukku­stundum verður Manaus sögu­svið eins sorg­leg­asta kafla COVID-19 far­ald­urs­ins sem heim­ur­inn hefur séð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár