Borgirnar hitna: Misskipting innbyggð í skipulagið

Öfga­kenndar hita­bylgjur eiga eftir að verða enn tíð­ari. Borgir heims verða verst úti. Og innan þeirra eru það fátæk­ustu íbú­arnir sem eru fórn­ar­lömbin.

Steinsteypan gerir það að verkum að í borgum er hiti hærri en í næsta nágrenni þeirra.
Stein­steypan gerir það að verkum að í borgum er hiti hærri en í næsta nágrenni þeirra. Mynd: Pexels

Rann­sóknir hafa afhjúpað umhverf­is­lega mis­skipt­ingu sem felst í því að íbúar í ákveðnum hverfum borga Banda­ríkj­anna búa við steikj­andi hita þar sem víð­áttu­mikil svæði eru hulin mal­biki á meðan íbúar ann­arra hverfa njóta grænna opinna svæða og stórra einka­garða með grósku­miklum trjá­gróðri. Vís­inda­menn hafa reiknað út að ein­faldar lausnir á borð við fleiri tré og hvít hús­þök hefðu getað komið í veg fyrir fjórð­ung þeirra dauðs­falla sem orðið hafa í hita­bylgjum í Los Angeles að und­an­förnu. Önnur ein­föld aðgerð sem bent hefur verið á er að setja fleiri gang­brautir í borg­inni svo að fólk eigi greiða leið yfir umferð­ar­þungar götur og í skugga.

Öfga­kenndar hita­bylgjur eru orðnar vanda­mál víða um heim, allt frá Los Angeles til Lagos. Langvar­andi hita­bylgjur ógna heilsu fólks og geta verið lífs­hættu­legar. Sér­stak­lega er fólki í borgum hætta búin af slíkum bylgjum þar sem mal­bik, stein­steypa og aðrir sléttir og dökkir yfir­borðs­fletir draga í sig og losa hita. Þetta gerir það að verkum að þétt­býl svæði verða mun heit­ari en dreif­býlli og ákveðin hverfi borga heit­ari en úthverfi ein­býl­is­húsa.

Ýmsir sér­fræð­ingar, s.s. veð­ur­fræð­ingar, loft­lags­fræð­ingar og skipu­lags­fræð­ingar eru því að vinna að rann­sóknum til að reyna að finna þau hverfi borga sem eru hvað við­kvæmust fyrir breyttu lofts­lagi. Rann­sóknir hafa þegar sýnt að hita­bylgj­urnar kosta fleiri svarta Banda­ríkja­menn lífið en hvíta og einnig hefur verið sýnt fram á að tekju­lægra fólk verður frekar fórn­ar­lömb hit­ans en þeir tekju­hærri.

Átakanlegar niðurstöður

Skipulag borga Banda­ríkj­anna hefur að mati rann­sak­enda gert það að verkum að fátæku fólki af öðrum lit­ar­hætti en hvítum er meiri hætta búin af öfga­kenndum hita­bylgjum en öðrum borg­ar­búum.

„Þessar nið­ur­stöður eru átak­an­legar,“ segir lofts­lags­fræð­ing­ur­inn Angel Hsu í við­tali við vís­inda­tíma­ritið Nature. „Við þurfum að spyrja okkur hvers vegna sé svona komið – við verðum að reyna að kom­ast að því hvers vegna þetta mynstur í borg­ar­skipu­lagi er svona almennt.“

Þetta mis­rétti má heim­færa á borgir margra ann­arra landa en yfir­völd í sumum þeirra eru þegar farin að taka til­lit til hættu á hita­bylgjum í skipu­lags­málum sínum. Þannig hefur verið gripið til þess ráðs að planta fleiri trjám og mála þök húsa hvít í stað dökkra lita. En mis­réttið, sem bitnað hefur á við­kvæm­ustu íbú­unum, hefur gegn­sýrt allt skipu­lag í ára­tugi og það þarf meira til en máln­ing­arpensla og græðlinga til að bæta það upp.

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin telur að á árunum 1998-2017 hafi yfir 166 þús­und manns dáið í hita­bylgjum á heims­vísu. Hita­bylgjur eru því meðal lífs­hættu­leg­ustu nátt­úru­ham­fara sem fyr­ir­finn­ast. Hins vegar eru dauðs­föll af völdum þeirra van­metin þar sem dán­ar­or­sak­irnar eru oft­ast hjarta- eða heila­á­föll og þess hvergi getið að við­kom­andi hafi orðið fyrir miklum hita.

„Öfga­fullir hitar eru senni­lega ein van­metn­asta dán­ar­or­sök sem fyr­ir­finnst,“ segir Olga Wilhelmi, land­fræð­ingur í Colorado sem rann­sak­aði sjúkra­skrár á einu bráða­sjúkra­húsi í Houston á ára­bil­inu 2004 til 2013. Hún komst að því að dauðs­föll vegna hita­bylgja væri veru­lega van­talin.

Banvænar bylgjur

Þeir sem eru útsett­astir fyrir veik­indum og dauða vegna hita eru börn, eldra fólk og fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. En heil­brigt, ungt fólk getur einnig dáið í hita­bylgjum. Hættan er mest þegar þær drag­ast á lang­inn og hita­munur á degi og nóttu verður lít­ill.

Ban­væn­ustu hita­bylgj­urnar eru þær sem verða óvænt í borgum á svæðum þar sem lofts­lagið er almennt temprað. Að minnsta kosti 14 þús­und manns lét­ust í skæðri hita­bylgju í Frakk­landi árið 2003. Yfir 700 lét­ust í hita­bylgju í Chicago árið 1995. Gríð­ar­legir hitar hafa verið í norð­vest­ur­hluta Banda­ríkj­anna og suð­vest­ur­hluta Kanada síð­ustu vikur og þótt dán­ar­tölur vegna bylgj­unnar hafi enn ekki verið teknar saman er talið ljóst að hund­ruð manna hafi dáið í hit­anum.

Loftslag í borgum getur orðið allt annað en í næsta nágrenni þeirra vegna bygg­ing­anna, gatn­anna og ann­arra ónátt­úru­lega yfir­borðs­flata. Þá eykur útblástur öku­tækja enn á þær aðstæður sem gera það að verkum að skap­ast getur sér­stakt veð­ur­far sem kall­ast „hita­eyjur“. Þess vegna er með­al­hiti í mið­borgum borga í Banda­ríkj­unum, svo dæmi sé tekið, nokkrum gráðum hærra en á dreif­býlli svæðum í kring.

En svo geta skap­ast öfga­fullar aðstæður, þar sem hit­inn rýkur upp úr öllu valdi í borg­unum. Og þá eru það við­kvæm­ustu íbúar þeirra, hinir fátæk­ustu og þeir sem þar með hafa skertan aðgang og minni að góðu hús­næði, heil­brigð­is­þjón­ustu og þar fram eftir göt­unum, sem finna mest fyrir því.

Í Katar, svo dæmi sé tekið, lát­ast margir far­and­verka­menn sem þangað koma til að vinna í bygg­ing­ar­geir­anum, árlega úr því sem kall­ast hitaslag (heat stroke). Ein rann­sókn sýndi að á árunum 2009-2017 lét­ust yfir 1.300 verka­menn frá Nepal í land­inu og nið­ur­stöð­urnar sýndu að hægt hefði verið að koma í veg fyrir að minnsta kosti 200 dauðs­fall­anna hefðu þeir verið í varn­ar­bún­aði til að skýla sér fyrir sól­inni og hit­anum. Svipuð rann­sókn í Bangkok á Taílandi sýndi fram á að fátæk­ustu íbúar borg­ar­innar yrðu fyrir mestum áhrifum þegar hita­bylgjur ríða yfir.

Spár gera ráð fyrir að lofts­lag muni halda áfram að breyt­ast á næstu árum og ástandið í borg­unum því enn eftir að versna. Ekki aðeins er því spáð að með­al­hiti haldi áfram að hækka heldur að hita­bylgjur eigi eftir að verða sífellt algeng­ari, hit­inn enn meiri og þær vara lengur.

Rauða línan

Í rann­sóknum á áhrifum hita­bylgja í banda­rískum borgum hefur komið í ljós að kyn­þáttur er stærsta breytan. Það er engin til­viljun að svartir íbúar lands­ins séu útsett­astir fyrir hit­anum. Borg­irnar eru í grunn­inn hann­aðar með það í huga að halda þeim á ákveðnum stöðum. Þótt árin hafi liðið frá því að slík stefna var opin­ber­lega aflögð hefur mis­skipt­ingin hald­ist. Það eru frekar svartir sem búa í verri og þétt­býlli hverf­unum en hvítir og það eru frekar fátækir en ríkir sem þurfa að búa við þær aðstæður.

Eftir að þræla­hald var afnumið með lögum í Banda­ríkj­unum árið 1865 breytti það ekki lífi svartra til góðs á einni nóttu. Sú stefna var áfram tekin í skipu­lags­málum að halda svörtu fólki kerf­is­bundið frá því að búa í ákveðnum hverfum. Í aðgerðum stjórn­valda í krepp­unni miklu á fjórða ára­tugnum var skipu­lag 239 borga rýnt með það í huga að flokka hverfi þeirra eftir „áhættu“ fyrir fjár­festa sem áttu að byggja hús­næði og banka sem áttu að veita fólki lán til kaupa á því. Hverfi svartra og ann­arra minni­hluta­hópa fengu gegn­um­gang­andi rauðan lit á sig. Þessi „rauða lína“, (red lin­ing) eins og aðgerðin hefur verið kölluð, varð til þess að upp­bygg­ing í hverf­unum varð mun minni en í öðrum. Ekki var hugað eins að gerð almenn­ings­garða, skóla og ann­arra sam­fé­lags­legra stofn­ana í hverfum minni­hluta­hópanna.

Þessi kort eru enn til, enda athæfið stundað af stjórn­völdum langt fram á síð­ustu öld, og þau eru í dag nýtt til að meta mis­mun­andi hættu vegna t.d. hita­bylgja á borg­ar­búa. „Það er enn hægt að sjá hversu litlu var til kostað til upp­bygg­ingar á þessum svæðum sem rauða línan var dregin um,“ segir Jasmin Barco, sér­fræð­ingur hjá félags­sam­tök­unum Groundwork. „Það er brjál­æð­is­legt að sjá þetta.“

Að með­al­tali er hita­stig á 108 svæðum sem höfn­uðu innan „rauðu lín­unnar“ 2,6 gráðum hærra en á svæðum sömu borga sem voru utan hennar. Skýr­ing­arnar má rekja til stórra steyptra yfir­borðs­flata og skort á gróðri sam­an­borið við önnur hverfi. Fleira hefur svo komið til síðar meir, löngu eftir krepp­una miklu. Borg­ar­yf­ir­völd hafa mörg hver verið mun gjarn­ari á að leggja hrað­brautir og önnur stór umferð­ar­mann­virki í námunda eða jafn­vel í gegnum hverfi svartra en hvítra. Þá hafa þau einnig í gegnum tíð­ina stað­sett iðn­að­ar­hverfi, með stórum stein­steyptum bygg­ingum, í nágrenni „rauðu“ hverf­anna. „Það er ljóst að hér er á ferð­inni kerf­is­bundið skipu­lags­ferli sem hefur ýtt ákveðnum sam­fé­lögum út á jað­ar­inn í margar kyn­slóðir,“ hefur Nature eftir Vivek Shandas sem er borg­ar­vist­fræð­ingur við háskóla í Oregon.

Hann er ásamt stórum hópi ann­arra að kort­leggja hita­mis­mun innan nokk­urra borga Banda­ríkj­anna og á sér þann draum að geta birt „hita­kort“, byggt á þeim gögnum, fyrir allt landið. Með það kort að vopni gætu skipu­lags­yf­ir­völd mótað stefnu og unnið gegn því að ákveðin hverfi verði fyrir mestu hita­öfg­unum.

Viðvörunarkerfi bjargar mannslífum

Eftir að hund­ruð manna létu lífið í hita­bylgju í ind­versku borg­inni Ahmeda­bad árið 2010 ákváðu borg­ar­yf­ir­völd að setja upp aðvör­un­ar­kerfi sem varar borg­ar­búa við því er hit­inn fer upp fyrir 40 gráður. Talið er að frá því að kerfið var tekið upp hafi tek­ist að bjarga tæp­lega 2.000 manns­lífum á ári að með­al­tali.

Yfirvöld í öðrum borgum eru einnig að reyna að bregð­ast við. Í París er nú skólum breytt í „svala staði“ í miklum hitum og þar getur fólk leitað skjóls. Þetta er fyrst og fremst gert í fátæk­ari hverfum borg­ar­innar. Nokkrar borgir í Banda­ríkj­unum eru farnar að nið­ur­greiða raf­magns­kostnað í ákveðnum hverfum þegar hita­bylgjur ganga yfir og fólk þarf að hafa loft­kæl­ing­una á löngum stundum.

Í New York hafa sprottið upp verk­efni sem miða að því að fólki líti við hjá ein­stæðum nágrönnum sínum því sýnt hefur verið fram á að fólk sem býr eitt er hætt­ara við að deyja í hita­bylgjum en aðrir.

Græn svæði í borgum lyfta ekki aðeins geði fólks líkt og rann­sóknir hafa sýnt. Trén veita bók­staf­lega skjól þegar hit­inn rís upp úr öllu valdi. Og þau verða enn mik­il­væg­ari í hinni heit­ari fram­tíð sem er í vændum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár