Á bláþræði

Danska rík­is­stjórn hefur átt í vök að verj­ast að und­an­förnu. Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn er í lyk­il­stöðu á hinu kvika póli­tíska sviði í Danmörku.

Lars Lökke Rasmussen
Lars Lökke Rasmus­sen Mynd: EPA

Líf dönsku rík­is­stjórn­ar­innar hefur dögum saman hangið á blá­þræði. Lars Lökke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra hefur róið líf­róður til að halda stjórn sinni áfram við völd. Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn, sem er utan stjórnar, hefur örlög rík­is­stjórn­ar­innar í hendi sér og gefur hvergi eftir.

Það væri fjarri öllu lagi að segja að rík­is­stjórn Venstre undir for­ystu Lars Lökke Rasmus­sen hafi átt náð­uga daga síðan hún tók við völdum eftir kosn­ing­arnar 18. júní 2015. Í þeim kosn­ingum tap­aði Venstre flokk­ur­inn miklu fylgi, stóð eftir með 34 þing­menn, hafði tapað 13. En það er und­ar­leg tík póli­tíkin og þrátt fyrir fylgis­tapið sett­ist Lars Lökke Rasmus­sen í for­sæt­is­ráðu­neytið. Það gat hann framar öllu þakkað Danska Þjóð­ar­flokknum (Dansk Fol­ke­parti) sem bætti við sig miklu fylgi í kosn­ing­unum og er næst fjöl­menn­asti flokk­ur­inn á danska þing­inu, Fol­ket­inget, með 37 full­trúa. Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn til­heyrir hinni svoköll­uðu bláu blokk á þing­inu en þar eru, auk áður­nefndra, Frjáls­ræð­is­banda­lagið (Liberal Alliance) og Íhalds­flokk­ur­inn (de Konservative). Samtals ráða flokkar bláu blokk­ar­innar yfir 91 þing­manni en rauða blokkin svo­nefnda, þar sem Sós­í­alde­mókratar eru langstærstir, telur 88 þing­menn. Samtals eru þing­menn­irnir 179.

Þungur róður

Frá upp­hafi var ljóst að róð­ur­inn yrði þungur fyrir Lars Lökke, en það hefur stundum verið sagt um hann að hann sé háll sem áll og sann­kall­aður refur í stjórn­málum. Hvað sem um það má segja hefur honum tek­ist að halda stjórn­inni við völd. Hann hefur þó orðið að færa ýmsar fórnir og 28. nóv­em­ber í fyrra, þegar rík­is­stjórn hans hafði setið í rúma 17 mán­uði kippti hann Frjáls­ræð­is­banda­lag­inu og Íhalds­flokknum um borð í rík­is­stjórn­ar­skút­una. Þá höfðu for­menn þeirra flokka, einkum þó Anders Samu­el­sen for­maður Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins , hótað að hætta stuðn­ingi við stjórn­ina en það hefði þýtt fall hennar. Helsta lof­orð Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins fyrir kosn­ing­arnar 2015 var lækkun hátekju­skatts, stjórn Venstre, sem líka hafði lækk­anir hátekju­skatts á stefnu­skránni aðhafð­ist hins­vegar ekk­ert í þeim efnum, kannski vegna þess að Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn var algjör­lega andsnú­inn slíku. Eftir að Frjáls­ræð­is­banda­lagið fékk aðild að rík­is­stjórn­inni hljóðn­aði yfir skattaum­ræð­unni. Sumir dönsku fjöl­miðl­anna töl­uðu um dúsu og Anders Samu­el­sen tal­aði út og suður þegar gengið var á hann í við­tölum. Eftir þessa ,,upp­færslu“ á rík­is­stjórn­inni var lygn­ara yfir vötn­unum. Um hríð.

Tímahrak

Þegar vinnan við fjár­laga­frum­varp næsta árs (2018) hófst varð strax ljóst að það yrði ekki hrist fram úr erminni. Frjáls­ræð­is­banda­lagið, sem hafði dalað mjög í skoð­ana­könn­unum, dró fram hug­mynd­irnar um lækkun hátekju­skatts­ins sem vitað var að Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn myndi ekki sam­þykkja óbreyttar. Fjár­laga­vinn­unni seink­aði mikið, höf­uð­á­stæð­urnar voru tvær: önnur var sú að reynt var að vinna að ein­hvers konar sátt milli stjórn­ar­flokk­anna og Danska Þjóð­ar­flokks­ins, hin var sú að Venstre stóð mjög illa í skoð­ana­könn­unum og þess vegna eyddu ráð­herrar og þing­menn flokks­ins miklum tíma í fram­boðs­fundi og ferða­lög um allt land í aðdrag­anda bæja- og sveita­stjórna­kosn­ing­anna sem fram fóru 21. nóv­em­ber sl. Ef vel á að vera þarf fjár­laga­frum­varpið að vera frá­gengið í byrjun des­em­ber, það tókst ekki að þessu sinni. Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar lýstu því yfir í byrjun mán­að­ar­ins að fyrir 10. des­em­ber yrði að hafa náðst sam­komu­lag um alla þætti frum­varps­ins.

Átök

Und­an­farna daga hafa verið stíf funda­höld í Krist­jáns­borg­ar­höll og það er til marks um hve illa flokk­unum gekk að ná saman að Lars Lökke Rasmus­sen tók sjálfur að sér að stjórna vinn­unni en slíkt er afar óvenju­legt. Undir venju­legum kring­um­stæðum er það fjár­mála­ráð­herr­ann sem er þar í fyr­ir­svari. Þrátt fyrir að for­sæt­is­ráð­herr­ann væri sjálfur sestur við borð­send­ann gekk hvorki né rak. Fimmtu­dags­kvöldið 7. des­em­ber hitt­ust þeir Lars Lökke Rasmus­sen og Kristian Thulesen Dahl for­maður Danska Þjóð­ar­flokks­ins til að reyna að ná ,,ein­hvers­konar lend­ingu“ eins og annar þeirra komst að orði, fyrir fund­inn.

Ágreiningsefnin

Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn krefst þess að fylgt verði mun strang­ari stefnu í málum flótta­fólks og hæl­is­leit­enda. Vill strangar reglur um aðbúnað þessa fólks og að því verði vísað til síns heima­lands um leið og aðstæður þar leyfi slíkt. Venstre geta sætt sig við sumar þess­ara krafna enda hefur flokk­ur­inn að ýmsu leyti svip­aða stefnu í þessum efnum. Frjáls­ræð­is­flokk­ur­inn, einn stjórn­ar­flokk­anna krefst þess að ákvarð­anir um skatta­lækk­anir, einkum hátekju­skatts, verði afgreiddar sam­tímis fjár­laga­frum­varp­inu. Það sam­þykkir Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn ekki en for­maður flokks­ins lagði til, fyrr í vik­unni, að fjár­laga­frum­varpið yrði afgreitt núna og eftir ára­mót yrði svo samið nánar um ágrein­ings­efnin. Það vildi Frjáls­ræð­is­banda­lagið ekki sam­þykkja. Formaður flokks­ins sagði að þar á bæ treystu menn ein­fald­lega ekki Danska Þjóð­ar­flokknum til að standa við gefin lof­orð.

Málið allt var í slíkum hnút að á göngum Krist­jáns­borg­ar­hallar voru menn farnir að tala um kosn­ingar. Til­hugs­unin um kosn­ingar fram­kallar gæsa­húð (orða­lag frétta­manns danska sjón­varps­ins) hjá for­sæt­is­ráð­herr­anum og for­manni Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins. Þeir vita sem er að ef kosið yrði á næst­unni eru lík­urnar á því að þeir sitji áfram við völd hverf­andi, miðað við fylgiskann­anir.

Einhverskonar samkomulag á elleftu stundu

Eftir löng funda­höld síð­ast­lið­inn föstu­dag (8.des.) kynnti Kristian Jensen fjár­mála­ráð­herra ásamt full­trúum hinna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna sam­komu­lag sem náðst hefði. Í stuttu máli gengur það út á að fjár­laga­frum­varpið verði lagt fyrir þingið fyrir jól, án þess að hátekju­skatts­lækk­unin sé hluti þess. Og í fylgi­skjölum með frum­varp­inu er aðeins nefnt að efla þurfi landamæra­gæsl­una, án nán­ari útfærslu. Þótt fjár­mála­ráð­herr­ann og full­trúar hinna stjórn­ar­flokk­anna væru boru­brattir, þegar þeir kynntu sam­komu­lagið, fór ekki á milli mála að sáttin ristir ekki djúpt. Og traustið er tak­markað.

Hótar að styðja ekki eigið fjárlagafrumvarp

Það vekur sér­staka athygli og er fáheyrt, ef ekki eins­dæmi, að einn stjórn­ar­flokk­anna, Frjáls­ræð­is­banda­lagið hefur hótað því að styðja ekki fjár­laga­frum­varpið við loka­af­greiðslu þess nema hátekju­skatts­lækk­unin verði þar með. Þetta gerir flokk­ur­inn vegna þess að hann treystir því ekki að sá sem hefur töglin og hald­irnar í þessu máli, Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn, standi við gefin lof­orð og styðji ákvarð­anir um skatta­lækkun. Færi svo að Frjáls­ræð­is­banda­lagið styddi ekki fjár­laga­frum­varpið við lokaf­greiðslu þess í þing­inu væri flokk­ur­inn jafn­framt búinn að fella rík­is­stjórn­ina sem hann á sjálfur sæti í. Danskir stjórn­mála­skýrendur telja fremur ólík­legt að þetta ger­ist, Frjáls­ræð­is­banda­lag­inu þyki of vænt um ráð­herra­stól­ana til þess að fórna þeim fyrir kosn­inga­lof­orð, og í öðru lagi muni Lars Lökke Rasmus­sen með ein­hverjum ráðum sjá til þess að stjórnin lifi áfram. Hangi á sama blá­þræð­inum og hingað til

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár