Alma Möller: Spár segja að faraldurinn nái hámarki um miðjan apríl

Land­læknir segir að það séu til fleiri önd­un­ar­vélar en þær sem til eru á spít­ölum og að unnið sé að því að fá fleiri. Spár sem settar voru fram í dag geri ráð fyrir að far­ald­ur­inn nái hámarki um miðjan næsta mánuð.

Alma Möller landlæknir.
Alma Möller land­læknir. Mynd: Skjáskot/RÚV

Sviðs­myndir sér­fræð­inga sem hafa unnið spá fyrir yfir­völd um hvernig veiru­far­ald­ur­inn sem nú geisar muni þró­ast segja að, sam­kvæmt bestu spá, verði hápunkt­ur­inn far­ald­urs­ins í kringum 10. apríl. Spáin gerir þó ráð fyrir að þessu geti skeikað um fimm daga í hvora átt­ina.

Þetta sagði Alma Möller land­læknir í sér­stökum þætti um COVID-19 sjúk­dóm­inn og veiruna sem veldur honum á RÚV í kvöld.

Þar sagði hún einnig að sjúk­lingar sem þurfi að liggja inni á sjúkra­húsi geti, þegar kúf­inum er náð, verið um 40 að jafn­aði á hverjum tíma en að fjöldi þeirra geti farið upp í 110 manns.

Nóg sé til af önd­un­ar­vélum, því fyrir utan þær 26 sem Land­spít­al­inn hefur yfir að ráða, og þær þrjár sem séu stað­settar á Akureyri, þá séu fleiri til í sjúkra­bílum og víðar. Auk þess sé unnið að því að fá fleiri vélar.

[adspot]

Í þætt­inum voru Alma og Viðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, spurð út í ummæli Frosta Sig­ur­jóns­sonar, fyrr­ver­andi þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem hefur farið mik­inn í gagn­rýni á við­brögð stjórn­valda við útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. Ummælin, sem féllu í útvarps­þætt­inum Harma­geddon á X-inu í morgun, voru þannig að Frosti sagði að hingað hefðu „útlend­ingum frá hættu­svæðum [verið] hleypt óskimuðum inn í landið til þess að koma smiti inn í sam­fé­lagið.“

Bæði Alma og Víðir höfn­uðu þessu alfarið. Víðir benti á að Íslend­ingar væru að gera mun meira en flestir í að rekja öll smit. Ástæða þess að ekki hafi verið gripið til þeirra ráða að loka land­inu fyrir ferða­mönnum væri sú að þeir væru mun ólík­legri til að smita hér­lendis.

Af þeim 250 smitum sem hafa greinst eru ein­ungis tveir ferða­menn og engin ann­ars stigs smit hafa verið rakin til ferða­manna. Víðir benti á að nú væri ferða­mönnum auk þess að fækka veru­lega, ein­fald­lega vegna þess að önnur lönd væru að loka sínum landa­mærum og ferða­lög að leggj­ast af. Því væri þetta ekki vanda­mál.

Flest smitin sem greinst hefðu verið hér­lendis komu frá Íslend­ingum sem smit­uð­ust í skíða­ferðum erlendis og báru veiruna með sér hingað heim. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár