Með stígvélin í Hæstarétt

Gúmmí­stíg­vél eru þarfa­þing en mál þeim tengd rata sjaldn­ast fyrir dóm­stóla. Eitt slíkt er þó á leið­inni fyrir Hæsta­rétt Dan­merkur. Það mál snýst um kín­verskar eft­ir­lík­ingar danskra tísku­stíg­véla.

RUB 1 stígvél Ilse Jacobsen Hornbæk
RUB 1 stíg­vél Ilse Jacobsen Hornbæk Mynd: Úr safni

Fyrir rúmum fimm­tíu árum bað íslenskt dag­blað fimm­tíu Íslend­inga fædda á fyrsta ára­tug síð­ustu aldar að nefna nokkur atriði sem þeir teldu til helstu fram­fara. Nær allir nefndu raf­magnið, renn­andi vatn, útvarpið og sím­ann. Margt fleira var nefnt, svo sem bættar sam­göngur og betri húsa­kostur. Eitt sem tíu úr þessum fimm­tíu manna hópi nefndu er ekki meðal þess sem nútíma­fólki dettur helst í hug í þessu sam­bandi. Nefni­lega gúmmí­stíg­vél og gúmmí­skó.

Nútíminn á kannski erfitt með að skilja hví­lík lífs­gæði fólust í því að vera ekki sífellt blautur í fæt­urna, og sár­fættur, en fólkið sem ólst upp við sauð­skinns­skó kunni vel að meta breyt­ing­una. Eins og margar kyn­slóðir Íslend­inga fór fólkið sem tók þátt í áður­nefndri könnun flestra sinna ferða fót­gang­andi, oft­ast með lélegan fóta­búnað.

Goodyear, Hutchinson og gúmmíið

Á árunum eftir 1920 varð gúmmí­skófatn­aður sífellt algeng­ari og vin­sælli. Upp­finn­ingin var þó eldri en í kringum 1840 fann Banda­ríkja­mað­ur­inn Charles Goodyear upp svo­nefnda gúmmí­s­uðu, aðferð til að forma og móta gúmmí og fékk einka­leyfi á aðferð­inni. Landi hans Hiram Hutchinson keypti leyfi til að nota aðferð­ina og setti árið 1853 á fót stíg­véla­verk­smiðj­una Aigle í Frakk­landi. Stíg­vélin „slógu í gegn“ ef svo mætti segja. Þau leystu af hólmi tré­kloss­ana sem franskur almenn­ingur hafði not­ast við. Bretar kalla stíg­vél Wellington boots eftir her­tog­anum sem barð­ist við Napoleon við Waterloo í Belgíu árið 1815. Stígvél Wellingtons voru hnéhá leð­ur­stíg­vél sem ekki var á allra færi að eign­ast, semsé allt annar hlutur en gúmmí­stíg­vélin.

CEBO, NOKIA og tútturnar

Á fyrstu ára­tugum síð­ustu aldar, þegar gúmmí­stíg­vélin og skórnir urðu algengur skófatn­aður, datt fæstum orðið „tísku­varn­ingur“ í hug. Nota­gildið var þá númer eitt. Íslend­ingar tóku þessum nýja fóta­bún­aði fagn­andi. Þeir sem komnir eru yfir miðjan aldur muna ugg­laust eftir CEBO gúmmí­skóm og stíg­vélum, tékk­nesk gæða­vara hét það í aug­lýs­ingum. Gúmmí­skórnir svartir með hvítum sóla og rönd, stíg­vélin oft­ast svört en einnig til mold­ar­brún með rjóma­gulum sóla. Þótt CEBO hafi verið algeng­asta vöru­merkið voru einnig nokkrar aðrar teg­undir fáan­legar.

Ekki var gúmmí­skófatn­að­ur­inn þó alltaf fáan­legur í versl­unum, enda alls kyns hömlur á inn­flutn­ingi, en Íslend­ingar dóu ekki ráða­lausir. Eftir að loft­fyllt bíldekk komu til sög­unnar upp­götv­uðu hug­vits­menn að slöng­urnar í dekkj­unum væru til fleiri hluta nyt­sam­legar. Til dæmis væri hægt að gera úr slöng­unum gúmmí­skó og stíg­vél. Margir spreyttu sig á skó­gerð­inni, með mis­jöfnum árangri, oft­ast var fram­leiðslan ein­göngu til heima­nota en vitað er um að minnsta kosti einn fram­leið­anda hér á landi, sem hafði skó­gerð­ina að aðal atvinnu um margra ára skeið. Slöngu­skórnir voru ein­litir, svartir og því auð­þekktir frá inn­fluttu skónum með hvítu botn­ana. Þeir heima­gerðu þóttu ekki jafn fínir og þeir inn­fluttu og voru kall­aðir túttur, eða gúmmí­túttur. Sú orða­notkun færð­ist reyndar síðar yfir á þessa með hvíta botn­inum, sem enn fást í búðum, nú fram­leiddir í Noregi, og líka græna gúmmí­skó sem fást víða.

Löngu eftir að tékk­neski skófatn­að­ur­inn varð vin­sæll á Íslandi kom hinn finnski NOKIA skófatn­aður á mark­að­inn. NOKIA stíg­vélin þóttu gæða­vara og nutu um langt ára­bil mik­illa vin­sælda meðal Íslend­inga (Finn­arnir setja þau saman í hönd­unum sagði Jón Múli í aug­lýs­ingum).

Þótt gúmmí­skór og stíg­vél njóti ekki sömu vin­sælda meðal Íslend­inga og áður fyrr er þessi skófatn­aður síður en svo úr sög­unni. Gúmmí­skór og stíg­vél fást víða enda nota­gildið ótví­rætt.

Stígvéladrottningin frá Hornbæk

Danir eru stíg­véla­þjóð. Einkum er það kven­fólkið sem notar þennan skófatnað í ríkum mæli. Sá sem gengur um götur Kaup­manna­hafnar, og á annað borð veltir fyrir sér fóta­bún­aði þeirra sem á vegi hans verða, tekur strax eftir því að stíg­vél eru þar mjög áber­andi. Kannski ekki yfir hásum­arið en alla aðra tíma árs­ins. Lengst af voru svörtu stíg­vélin lang algeng­ust en það er ekki lengur svo. Nú er hægt að kaupa stíg­vél í öllum regn­bog­ans litum og reyndar mörgum fleiri. Þessi stíg­véla­bylt­ing, eins og sumir kalla það, er einkum verk einnar konu: Ilse Jacobsen. Múr­ara­dóttur frá Hornbæk á Norður- Sjálandi eins og hún kallar sjálfa sig.

Ilse Jacobsen fædd­ist í Hornbæk fyrir 59 árum, þar hefur hún búið allt sitt líf, þar var hún skírð, fermd og gift og þar hyggst hún búa til dauða­dags. Faðirinn var múr­ari, móð­irin heima­vinn­andi með þrjú börn. Efnin voru tak­mörkuð og aðeins sex ára gömul fór Ilse að bera út blöð til að afla vasa­pen­inga. Ellefu ára fékk hún vinnu á Hótel Horn­bæk­hus og þegar hún mætti á stað­inn og átti að vinna við að afgreiða á barnum náði hún ekki upp á afgreiðslu­borðið. Hót­el­stjór­inn upp­götv­aði að hún hafði logið til um ald­ur­inn en eftir að hafa rætt við hana ákvað hann að hún fengi vinn­una.

Seinna trú­lof­að­ist hún, og gift­ist syni hót­el­stjór­ans, þaðan kemur eft­ir­nafnið Jacobsen. Ilse lærði hag­fræði og stjórn­mála­fræði en eig­in­mað­ur­inn rak heild­sölu með skó og Ilse ferð­að­ist um Danmörku þvera og endi­langa og seldi mikið. Þessi kynni hennar af „skó­brans­anum“ vöktu áhuga hennar á skótaui og hún velti fyrir sér hvernig á því stæði að stíg­vél væru ein­ungis til í svörtum lit.

Árið 1993 opn­aði hún litla verslun (31 fer­metra) með sandala sem hún hafði sjálf hannað og tísku­fatnað frá lítt þekktum fram­leið­anda. En þótt versl­unin væri lítil gekk rekst­ur­inn vel en Ilse hafði ekki gleymt stíg­vél­unum. Árið 2000 hafði hún hannað kven­stíg­vél, sem hún lét fram­leiða í nokkrum litum. Þau voru úr gúmmí. „Mér þótti þessi PVC (plast) stíg­vél leið­in­leg og vildi gera stíg­vél að tísku­skófatn­aði. Reyndar voru það ekki Danir sem tóku stíg­vél­unum best í byrjun, það voru Svíar og Norðmenn. Svo komu Danirnir og allir hinir.“

Til að gera langa sögu stutta eru lit­skrúð­ugu stíg­vélin nú seld í hátt á þriðja þús­und versl­unum í fleiri en þrjá­tíu löndum. Stíg­vélin eru tísku­vara og undir merki Ilse Jacobsen Hornbæk er nú jafn­framt fram­leiddur margs konar tísku­varn­ingur. Í dag eru í boði lit­skrúðug stíg­vél frá mörgum fram­leið­endum.

Kínversku stígvélin og Hæstiréttur

Danska vöru­húsið Bilka og fleiri danskar versl­anir hafa um nokk­urt skeið haft til sölu stíg­vél, undir vöru­merk­inu VRS. Þessi stíg­vél eru í útliti nákvæm­lega eins og RUB 1 stíg­vél Ilse Jacobsen Hornbæk. VRS stíg­vélin eru fram­leidd í Kína, RUB1 í Evrópu. Ilse Jacobsen vildi ekki sætta sig við að kín­verski fram­leið­and­inn hermdi svo nákvæm­lega eftir hennar hönnun að hún stefndi Morsø skoimport, fyr­ir­tæk­inu sem flytur inn kín­versku stíg­vélin.

Ilse Jacobsen tap­aði mál­inu í Sjó- og versl­un­ar­rétt­inum danska og sömu­leiðis á næsta dóm­stigi, Lands­rétt­inum. Nið­ur­staða dóm­stól­anna var að hönnun RUB 1 stíg­vél­anna væri ekki svo afger­andi sér­stök að hægt væri að tala um höf­und­ar­rétt. Þetta vildi Ilse Jacobsen ekki sætta sig við og sótti um að fá málið tekið fyrir í Hæsta­rétti Dan­merkur Sú beiðni var sam­þykkt, fyrir nokkrum dögum, á þeim for­sendum að um prinsip mál væri að ræða. Kröfu Ilse Jacobsen um að Bilku og öðrum versl­unum sem selja VRS stíg­vélin yrði gert að hætta sölu á þeim og eyði­leggja lag­er­inn var hafnað á lægra dóm­stigi. Ekki er vitað hvenær málið verður tekið fyrir í Hæsta­rétti Dan­merkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár