Eggert Þór Kristófersson, fyrrverandi forstjóri Festar, var rekinn en hætti ekki af sjálfsdáðum hjá almenningshlutafélaginu, segir Viðskiptablaðið. Fjallað er um starfslok Eggerts í blaðinu í dag og eru þau sett í samhengi við Vitalíumálið svokallaða. Í blaðinu er fjallað um það að tveir af stærstu einkafjárfestunum í hluthafahópi Festar, Þórður Már Jóhannesson, og Hreggviður Jóhannsson, hafi tengst því máli. Þórður Már var meðal annars stjórnarformaður Festar þar til í janúar. Aðrir sem höfðu aðkomu að Vitalíumálinu voru Arnar Grant og Ari Edwald.
Vítalía Lazareva steig fram í þætti Eddu Falak, Eigin Konum, í upphafi þessa árs. Þar lýsti hún atburðum sem áttu sér stað í sumarbústaðarferð með fjórmennningum Þórði Má, Arnari, Hreggviði og Ara. „Fólk er held ég ekki að átta sig á því hversu stórt þetta var. Margir til dæmis halda að þetta hafi „bara“ verið eitthvert þukl. Þetta fór alveg yfir öll mörk,“ sagði Vitalía meðal annars í þættinum. Opinberarnir Vitaliu leiddu til þess að þeir aðilar sem hún sakaði um að hafa brotið gegn sér drógu sig í hlé í ýmsum hlutverkum sínum í viðskiptalífinu. Þórður Már hætti meðal annars sem stjórnarformaður Festar.
Eggert talaði opinberlega um hita
En áður en Vitalía steig fram í viðtalinu í ársbyrjun 2022 höfðu sögur um það grasserað eftir að hún birti frásögn um atburðarásina á Instragram í lok október 2021. Eggert sagði meðal annars í viðtali við Stundina að „hiti“ hefði verið á fyrirtækinu vegna þess. „Ég hef fengið símtöl frá ýmsum aðilum varðandi málið en ekkert formlegt erindi hefur verið sent á mig eða félagið vegna málsins.“
Eggert steig því opinberlega fram og ræddi um málið, jafnvel þó það hafi snert stjórnarformann þess og tvo hluthafa, áður en málið varð opinbert í raun.
Stundin gerði ítrekaðir tilraunir til að ná tali af Eggerti í gær og dag vegna málsins en án árangurs.
Stundin gerði sömuleiðis tilraunir til að hringja í stjórnarmenn Festar en án árangurs.
Þórður og Hreggviður tengdir við frásögnina
Athygli vekur að í frétt Viðskiptablaðsins er ekki rætt við Eggert sjálfan en samt eru ítarlegar lýsingar á því hvernig honum var sagt upp störfum. Þá er heldur enginn af stjórnarmönnum Festar tekinn í viðtal um málið. Í raun er enginn viðmælandi í viðtali um málavöxtu.
Þá er einnig athyglivert í fréttinni hvernig Hreggviður Jónsson og Þórður Már Jóhannesson eru tengdir við frásögnina, tveir menn sem lentu í kasljósi fjölmiðla vegna Vítalíumálsins, án þess að þessi tenging þeirra við umfjöllunina eigi sér sýnilegar skýringar í því sem sagt er.
Þetta bendir til að ýmislegt sé ósagt um starfslok Eggerts Þórs Kristóferssonar hjá Festi, eins og Viðskiptablaðið raunar veltir upp.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir