„Algjör gæfa að þessi stefna hafi verið tekin hérna“

Skimun­ar­tíðni á COVID-19 er hæst á Íslandi og í Færeyjum. Þrátt fyrir þennan fjölda grein­ing­ar­prófa þá er hlut­falls­leg aukn­ing COVID-19 til­fella á síð­ustu vikum einna lægst hér í sam­an­burði við aðrar Evr­ópu­þjóðir.

Thor Aspelund og Þórólfur Guðnason á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Thor Aspelund og Þórólfur Guðnason á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Mynd: EPA

„Aðgerð­irnar eru að skila árangri. Gögnin sýna heftan vöxt – ekki veld­is­vöxt. Ald­urs­sam­setn­ing þeirra sem eru með greind smit er okkur hag­stæð núna. Minnsta breyt­ing yfir í smit hjá eldra fólki leiðir til meira álags á heil­brigð­is­kerfið. Við getum saman hægt á þróun far­ald­urs­ins og frestað hliðrun í ald­urs­dreif­ingu með því að taka þátt í aðgerðum.“

Þetta sagði Thor Aspelund, pró­fessor í líf­töl­fræði við Háskóla Íslands, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag, þar sem hann ræddi reikni­líkanið sem töl­fræð­ingar og vís­inda­menn við HÍ hafa þróað vegna far­ald­urs COVID-19 hér á landi. „Við trúum því að það verði við­snún­ingur auð­vitað og að lífið fari í gang eftir páska,“ sagði Thor og að von­ast væri til að mest allt verði um garð gengið í júlí.

Líkön sem þessi eru við­ur­kennd aðferð í smit­sjúk­dóma­fræðum til að leggja mat á far­aldra sem þessa.

[adspot]

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á fund­inum að spálíkanið væri mjög mik­il­vægt tæki til að meta þróun far­ald­urs­ins og árangur þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til. „Þetta er eina tækið sem við höfum til að meta þró­un­ina á vís­inda­legan hátt og losna þannig við hug­lægt og til­finn­inga­legt mat,“ sagði Þórólfur.

Hann bað fólk að hafa það í huga að um stærð­fræði­líkan væri að ræða og minnti á að „þetta er ekki raun­veru­leik­inn“.

Hollt að horfa jákvæðum augum á framtíðina

„Ég held að við höfum verið að gera rétt hér. Við höfum verið að taka ákvarð­anir sem fræðin hafa sagt okkur að gera, við höfum reynt að taka það besta úr þeim og verið fljót til. Og ég held að það sé að skila okkur árangri. Ég held líka að það sé hollt fyrir alla á þessum tíma­punkti að horfa á það og horfa jákvæðum augum á fram­tíð­ina. Þetta mun taka sinn tíma, þetta mun verða ákveðið álag en við munum kom­ast vel út úr þessu ef við höldum áfram að feta þá leið sem við höfum gert fram að þessu.“

Viðbrögð þjóða við far­aldr­inum hafa verið mjög mis­mun­andi, allt frá algjöru útgöngu­banni og lokun landamæra til nokk­urs and­vara­leysis í upp­hafi, en þó hafa flestar þeirra þurft að grípa til umfangs­mik­illa aðgerða þegar á hólm­inn er komið, segir í sam­an­tekt vís­inda­mann­anna á vefnum covid.hi.is þar sem nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru nú birtar reglu­lega.

Að mati vís­inda­mann­anna hafa við­brögð íslenskra yfir­valda frá upp­hafi ein­kennst af yfir­vegun og fag­mennsku, en þar hafa sótt­varna­læknir, land­læknir og almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra ráðið för með reynslu sinni og fræði­legri þekk­ingu.

Frá fyrsta þekkta smiti á Íslandi hefur verið reynt að hefta útbreiðslu veirunnar með því að taka sýni úr ein­stak­lingum með þekkta smitá­hættu og ein­kenni önd­un­ar­færa­sýk­ingar, ein­angra stað­fest til­felli, rekja sam­skipti smit­aðra og beita sótt­kví meðal vensla­að­ila smit­aðra og þeirra sem koma frá skil­greindum áhættu­svæðum.

Sveigt af braut veldisvaxtar

Nú er svo komið að meiri­hluti nýrra stað­festra smita er meðal fólks í sótt­kví sem minnkar lík­urnar á áfram­hald­andi smiti. Jafn­framt hefur verið lögð mikil áhersla á að vernda eldri borg­ara og fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma fyrir smiti með öllum til­tækum ráðum – en það mun lík­lega verða ein mik­il­væg­asta aðgerðin í að stemma stigu við alvar­legum afleið­ingum far­ald­urs­ins. Þá hefur sam­komu­bann verið sett á frá 16. mars til 13. apríl með enn frek­ari tak­mörk­unum frá 24. mars.

[links]Thor sagði að tek­ist hefði að sveigja út af braut veld­is­vaxtar og til betri vegar. „Ísland er raun­veru­lega að standa sig mjög vel. Með­al­aukn­ing [smita] er með því lægsta sem þekk­ist í Evrópu. Þessar aðgerðir eru greini­lega að skipta máli. Þær skipta máli því við vitum lang­mest miðað við aðrar þjóðir hvað er að ger­ast. Það er ekki eins og við séum með lokuð augun og höldum að það sé ekki sjúk­dómur hérna.“

Í sam­an­tekt vís­inda­mann­anna kemur fram að þetta séu „vissu­lega for­dæma­lausar aðstæður og vís­inda­leg þekk­ing á þessum nýtil­komna vágesti þar að leið­andi tak­mörkuð“.

Sótt­varna­læknir kall­aði því núverið til liðs vís­inda­menn frá Háskóla Íslands, Embætti Land­læknis og Land­spít­ala til að gera spálíkan um lík­lega þróun COVID-19 far­ald­urs­ins á Íslandi á næstu vikum sem gæti nýst við ákvarð­ana­töku um sam­fé­lags­leg við­brögð og skipu­lag heil­brigð­is­þjón­ustu.

Hópurinn kynnti fyrstu nið­ur­stöður vinnu sinnar á upp­lýs­inga­fundi með almanna­vörnum 18. mars og á fundi með for­sæt­is­ráð­herra, heil­brigð­is­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra degi síðar. Spálíkanið hefur síðan verið upp­fært tví­vegis og helstu nið­ur­stöður eru eft­ir­far­andi (mið­ast við gögn birt í gær):

  • Gert er ráð fyrir því að á meðan far­ald­ur­inn gengur yfir muni rúm­lega 1.500 manns á Íslandi verið greindir með COVID-19, en talan gæti náð nær 2.300 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.
  • Gert er ráð fyrir að fjöldi greindra ein­stak­linga með virkan sjúk­dóm nái hámarki í fyrstu viku apríl og verði senni­lega um 1.200 manns, en gæti náð 1.700 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.
  • Gert er ráð fyrir að á meðan að far­ald­ur­inn gengur yfir muni rúm­lega 100 manns þarfn­ast inn­lagnar á sjúkra­húsi, en gæti náð yfir 160 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.
  • Mesta álag á heil­brigð­is­þjón­ustu vegna sjúkra­húsinn­lagna verður um eða eftir miðjan apríl en þá er gert ráð fyrir að tæp­lega 60 ein­stak­lingar geti verið inniliggj­andi á sama tíma. Svart­sýn­asta spá er nær 90 ein­stak­lingar.
  • Gert er ráð fyrir því að á tíma far­ald­urs­ins muni um 13 ein­stak­lingar veikj­ast alvar­lega, þ.e. þurfa inn­lögn á gjör­gæslu, á tíma­bil­inu en svart­sýn­asta spá er 23 ein­stak­lingar.
  • Mesta álag á gjör­gæslu­deildir gæti orðið í annarri viku apríl, en þá er búist við því að fimm manns liggi þar inni á sama tíma, en sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá gætu það verið 11 manns.

Þessi faraldur mun ganga yfir

„Við erum að tala um að virk smit nái toppi og byrji að fara niður aftur,“ sagði Thor. „Er það raun­hæft? Já, við teljum það miðað við sögu svona far­aldra.[..] Til­fellin munu ná toppi og þessi far­aldur ganga yfir.“

Hann sagði að í Kína væru sífellt fleiri að útskrif­ast af sjúkra­húsum. „Þannig að fólk er að ná sér og það er við­snún­ingur.“

Spáin um fjölda ein­stak­linga sem veikj­ast alvar­lega mið­ast við ald­urs­dreif­ingu meðal stað­festra til­fella COVID-19 á Íslandi. Rann­sóknir á til­fellum COVID-19 í Kína benda til þess að alvar­leiki sjúk­dóms­ins sé veru­lega ald­urstengdur en há tíðni smita meðal aldr­aðra á Ítalíu er ein lík­leg skýr­ing á hárri tíðni alvar­legra veik­inda og dauðs­falla þar­lendis. Þeir sem smit­ast hafa hér á landi eru til­tölu­lega ungir miðað við það sem hefur gerst í mörgum öðrum löndum.

„Ald­urs­dreif­ing á Íslandi er ennþá mjög hag­stæð, flestir hinna smit­uðu er á miðjum aldri og fá smit hafa hlut­falls­lega greinst hjá eldra fólki. „Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að halda í þessa dreif­ingu sem lengst því áhættan á að leggj­ast inn á spít­ala eykst snar­lega með hækk­andi aldri,“ sagði Thor. „Það er mjög mik­il­vægt að hefta sem mest smit yfir í eldri hópa.“

Veruleg breyt­ing á ald­urs­sam­setn­ingu smit­aðra hér á landi, t.d. aukin útbreiðsla meðal aldr­aðra, gæti á stuttum tíma fært nið­ur­stöður lík­ans­ins upp í efri mörk þess, þ.e.a.s. að svart­sýn­ustu spá. „Því má segja að þó ráð­staf­anir sótt­varna­læknis og yfir­valda til að vernda þennan hóp reyn­ast mörgum erf­iðar, þá séu þær afar mik­il­vægar,“ segir í sam­an­tekt vís­inda­manna Háskóla Íslands.

Óvissa næstu mánuði

Þróun COVID-19 far­ald­urs­ins meðal þeirra þjóða sem hafa gengið í gegnum hann á undan okkur (t.d. Kína, Suður-Kórea og Ítalía) bendir til þess að með umfangs­miklum sam­fé­lags­í­hlut­unum sé unnt að hemja veld­is­vöxt far­ald­urs­ins. Það er mik­il­væg vís­bend­ing þrátt fyrir að óvissa ríki enn um hvað ger­ist þegar losað er um þessi miklu sam­fé­lags­höft. „Við þessa óvissu þurfum við vænt­an­lega að búa næstu mán­uði.“

Ítrekað hefur verið bent á nauð­syn þess að þjóðir heims setji í for­gang grein­ingu sjúk­dóms­ins en alþjóð­legur sam­an­burður á skimun­ar­tíðni á COVID-19 sýnir að hún er hæst á Íslandi og Færeyjum. Þrátt fyrir þennan fjölda grein­ing­ar­prófa þá er hlut­falls­leg aukn­ing COVID-19 til­fella á síð­ustu vikum einna lægst hér­lendis í sam­an­burði við aðrar Evr­ópu­þjóðir. „Það er algjör gæfa að þessi stefna hafi verið tekin hérna,“ sagði Thor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár