Smit komin upp á Landakoti og á barnaspítala

Smit af nýju kór­ónu­veirunni hefur komið upp bæði á Landa­koti og á barna­spít­al­anum. Land­læknir brýnir fyrir heil­brigð­is­starfs­mönnum að fara var­lega, einnig utan vinnu­tíma.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Lögreglan

Alma Möller land­læknir greindir frá því á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að smit hefði komið upp bæði á Landa­koti og á barna­spít­al­anum. Af þeim sökum væri ekki hægt að leggja fólk inn á Landa­koti og þá hefur Rjóðrinu verið lokað.

Rjóðrið er hjúkr­unar-, hvíldar- og end­ur­hæf­ing­ar­heim­ili fyrir lang­veik börn. Vegna smits­ins sem upp kom á barna­spít­al­anum hefur þurft að færa til starfs­fólk. Rjóðrinu er þó ekki síður lokað til þess að vernda við­kvæma skjól­stæð­inga þess.

Alma brýndi fyrir heil­brigð­is­starfs­fólki að fara sér­stak­lega var­lega, líka utan vinnu­tíma. Smit sem hafa greinst eru meðal starfs­fólks.

[adspot]

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á fund­inum að sautján sjúk­lingar lægju nú á sjúkra­húsi hér á landi vegna COVID-19. Þrír eru á gjör­gæslu­deild og allir eru þeir í önd­un­ar­vél.

Hann vakti líka athygli á því að ekki væri lengur yfir­vof­andi skortur á sýna­tökupinnum eftir að um 6.000 pinnar fund­ust „á óvæntum stað“ eins og hann orðar það. „Það er því allt útlit fyrir að hægt verði að taka sýni eins og þarf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár