Vaxandi sýnilegur ágreiningur milli ríkisstjórnarflokka

Stað­setn­ing Land­spít­ala og fæð­ing­ar­or­lofs­mál hafa bæst á list­ann yfir stór mál þar sem Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur ganga alls ekki í takt. Kjarninn tók saman stærstu ágrein­in­ings­mál rík­is­stjórn­ar­innar um þessar mundir.

Ósætti stjórnarliða hefur komið meira og meira upp á yfirborðið undanfarið.
Ósætti stjórn­ar­liða hefur komið meira og meira upp á yfir­borðið und­an­farið. Mynd: Birgir Þór

Nú þegar aðeins er rúmt ár í næstu alþing­is­kosn­ingar, að óbreyttu, fer þeim málum fjölg­andi sem rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir tveir virð­ast algjör­lega ósam­mála um hvernig skuli standa að. Opin­ber­lega deila þing­menn og ráð­herrar um ýmis mál, og átaka­lín­urnar á milli flokk­anna eru farnar að skýr­ast. Kjarninn tók saman nokkur helstu ágrein­ings­málin um þessar mundir.

1. Landspítalinn

Í annað skiptið á einu ári hefur Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hleypt upp umræð­unni um upp­bygg­ingu Land­spít­al­ans. Hann gerði það fyrst í byrjun apríl í fyrra, þegar hann stakk upp á því að kannað yrði hvort skyn­sam­legt væri að reisa nýjan Land­spít­ala á lóð Rík­is­út­varps­ins í Efsta­leiti. For­sendur fyrir nýbygg­ingum við Hring­braut hefðu breyst mikið frá því að ákvörðun hefði verið tekin um að byggja við Hring­braut. Hann sagði það þess virði að reikna hvort það borg­aði sig að selja fast­eign­irnar og bygg­inga­rétt­inn við Hring­braut.

Í kjöl­farið kom Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra fram og sagði ljóst að áfram yrði unnið að því að nýr Land­spít­ali rísi við Hring­braut. „Ég vinn að þessu verk­efni sam­kvæmt þeim lögum sem um þetta mál gilda og sömu­leiðis eftir þeirri sam­þykkt sem Alþingi gerði með fjár­lögum árs­ins 2015 og sömu­leiðis þeirri þings­á­lyktun sem liggur fyrir. En ekki síður þeirri yfir­lýs­ingu sem rík­is­stjórnin gaf í tengslum við verk­föll lækna,“ sagði hann þá.

Spólum svo fram í mars 2016, þegar Sig­mundur Davíð lagði til að skoðað verði „hvort ekki sé best, í ljósi allra aðstæðna að ráð­ast í bygg­ingu nýs Land­spít­ala við Víf­ils­staði.“ Fleiri fram­sókn­ar­menn komu í kjöl­farið og sögð­ust sam­mála Sigmundi. Elsa Lára Arn­ar­dóttir, fyrsti vara­for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, sagði rétt að taka umræðu um stað­setn­ingu Land­spít­ala. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn standi sam­ein­aður í þessu máli.

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra kom þá fram með nokkuð harða gagn­rýni á for­sæt­is­ráð­herr­ann, enda honum algjör­lega ósam­mála. „Það er ekki boð­legt í mínum huga þegar við erum með svona stórt mál undir með mjög við­kvæma stöðu uppi í þessum til­tekna mála­flokki sem að heil­brigð­is­málin eru,“ sagði hann um til­lögu for­sæt­is­ráð­herra. Bæði hann og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafi fyrst heyrt um hug­mynd­irnar í fjöl­miðlum.

Það er alveg öruggt að Land­spít­al­inn verði við Hring­braut, eins og Alþingi ákvað árið 2010 og aftur 2013, segir Kristján Þór. „Síðan gerir Alþingi sér­staka ályktun 2014. Við höfum séð þessu verk­efni stað sem betur fer í fjár­lögum árið 2014, 2015 og 2016 og þetta verk­efni er inn í rík­is­fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2015 til 2019. Þannig að við erum byrjuð, fram­kvæmdir eru hafnar.“

2. Breytingar á fæðingarorlofi

Eygló Harð­ar­dóttir félags­mála­ráð­herra tók í síð­ustu viku á móti til­lögum starfs­hóps um fram­tíð­ar­stefnu í fæð­ing­ar­or­lofs­málum, en hóp­inn skip­aði hún sjálf árið 2014. Hópurinn leggur til að fæð­ing­ar­or­lofið verðu lengt í 12 mán­uði, hámarks­greiðslur verði hækk­aðar í 600 þús­und krónur á mán­uði og að leik­skóla­dvöl verði tryggð í fram­haldi af fæð­ing­ar­or­lofi. Eygló hefur sagt að hún ætli sér að vinna frum­varp upp úr til­lög­unum, þær end­ur­spegli skýra sýn og almenna sam­stöðu um grund­vall­ar­mark­mið fæð­ing­ar­or­lofs­ins. Breyt­ing­arnar munu kosta átta millj­arða króna.

Það leið ekki á löngu þar til vara­for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, kom fram og gagn­rýndi lof­orð Eyglóar harð­lega. Hann sagði það algengt vanda­mál að stjórn­völd lofi fjár­munum sem ekki séu til. Loforð Eyglóar væru inni­stæðu­laus enda hafi hún ekki sparað þá millj­arða sem til þurfi. „Það er eðli­legt að ræða hugs­an­legar breyt­ingar í sam­hengi við aðra þætti rík­is­fjár­mála áður en við gefum vil­yrði um átta þús­und millj­ónir króna í útgjalda­auka.“

3. Breytingar á húsnæðiskerfinu

Allt frá því að þessi rík­is­stjórn tók við völdum lof­aði hún breyt­ingum til hins betra í hús­næð­is­málum. Síðasta þing má eig­in­lega segja að frum­varpa frá Eyglóu Harð­ar­dóttur félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra hafi verið beðið með eft­ir­vænt­ingu. Þau voru hins vegar lengi í vinnslu og voru sömu­leiðis lengi í kostn­að­ar­mati hjá fjár­mála­ráðu­neyt­inu, sem varð meðal ann­ars til þess að Eygló hvatti starfs­fólk fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins til að klára málin með því að senda þeim orkust­angir og orð­send­ingu, sem hún birti opin­ber­lega. Á end­anum kom fram hörð gagn­rýni á stærstu frum­vörpin frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Það breytti þó ekki því að rík­is­stjórnin hafði hús­næð­is­málin sem eitt sinna trompa til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga síð­ast­liðið vor. Frum­vörpin náðu þó ekki fram að ganga á því þingi, jafn­vel þótt það starf­aði vel inn í sum­arið. 

Strax síð­ast­liðið sumar kom fram í fjöl­miðlum að ekki væri víð­tækur stuðn­ingur við stóru frum­vörpin, um hús­næð­is­bætur og það sem nú kall­ast frum­varp um almennar íbúðir, hjá þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Morg­un­blaðið hafði eftir þing­mönnum að þau yrðu að taka veru­legum breyt­ingum til þess að sjálf­stæð­is­menn gætu stutt þau.

Í jan­úar á þessu ári kom svo fram gagn­rýni frá Ragn­heiði Rík­harðs­dóttur þing­flokks­for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem sagði þing­hóp­inn hafa margt að athuga við frum­vörpin, það hafi alltaf verið vitað að stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé sér­eigna­stefna. Í febr­úar tók Kjarninn alla þing­menn í vel­ferð­ar­nefnd tali og spurði út í frum­vörpin, sem þá voru komin til með­ferðar nefnd­ar­innar. Þar kom enn á ný fram að ekki er sátt um frum­vörpin óbreytt. Hús­næð­is­frum­vörpin eru enn öll hjá vel­ferð­ar­nefnd, sem gæti gert breyt­ingar sem mynda meiri sátt um málin, enda búið að lofa vinnu­mark­aðnum úrlausnum.

4. Sala bankanna

Fjárlög árs­ins í ár gera ráð fyrir því að tæp­lega 30 pró­senta hlutur rík­is­ins í Lands­bank­anum verði seldur á þessu ári fyrir 71,3 millarða króna. Banka­sýsla rík­is­ins hefur hafið und­ir­bún­ing söl­unnar. Nú hefur reyndar Borg­un­ar­málið sett strik í reikn­ing­inn og flestir vilja passa að það hafi ekki áhrif á fyr­ir­hug­aða sölu. En jafn­vel áður en það mál komst aftur í hámæli var komið í ljós að stjórn­ar­flokk­arnir tveir hafa afar ólíkar hug­myndir um hlut­verk Lands­bank­ans. 

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ályktaði á flokks­þingi í fyrra að Lands­bank­inn verði áfram í rík­i­s­eigu og eigi að starfa sem sam­fé­lags­banki. Það er hug­mynd sem hefur síðan verið haldið mjög á lofti, ekki síst af Frosta Sig­ur­jóns­syni, for­manni efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis. Bjarni Bene­dikts­son seg­ist hins vegar ekki vita hvað sam­fé­lags­bankar eigi að vera, hann vill ekki að ríkið eigi allan hlut sinn í Lands­bank­anum áfram en hefur sagt að ríkið verði samt stór eig­andi þar áfram um eitt­hvert skeið.

Þá hefur Ásmundur Einar Daðason þing­flokks­for­maður flokks­ins komið fram með þá hug­mynd að allir Íslend­ingar geti beint og milli­liða­laust eign­ast hlut í Íslands­banka eða Lands­bank­anum. Þannig verði annar hvor bank­anna gerður að sam­fé­lags­banka, enda sé „mik­il­vægt að annar þess­ara banka verði að stórum hluta í eigu almenn­ings í land­inu.“

Flokk­arnir eru því langt frá því að vera sam­mála um það hvert skuli stefna á fjár­mála­mark­aði, þar sem ríkið er veru­lega stór eig­andi. Þótt nú sé orðið ljóst að ekk­ert verður selt alveg í bráð er ljóst að um fram­haldið ríkir ekki sátt.

5. Búvörusamningarnir

Það mátti kannski frá byrjun vera ljóst að ekki yrði víð­tæk sam­staða um und­ir­ritun nýrra búvöru­samn­inga. Kostn­aður rík­is­ins eykst um 900 millj­ónir á ári, samn­ing­arnir eru til 10 ára og þeir eru tvö­falt verð­tryggðir.

Um leið og búið var að til­kynna um und­ir­ritun samn­ing­anna í síð­asta mán­uði var komin fram hörð gagn­rýni á þá úr ranni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þing­flokks­for­mað­ur­inn Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir fór þar fremst í flokki og sagð­ist alfarið á móti samn­ing­unum. „Eru menn ekki að grín­ast, aldrei með mínu sam­þykki,“ sagði hún. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari flokks­ins, tók undir með Ragn­heiði og sagð­ist lít­ast mjög illa á samn­ing­ana. „Það er gjör­sam­lega ótækt að ætla að bæta svona í rík­is­styrki til land­bún­að­ar­ins.“ Vil­hjálmur Bjarna­son þing­maður flokks­ins hefur einnig gagn­rýnt samn­ing­ana harð­lega og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son hefur sagt leið­ina gam­al­dags og úrelta.

Það gleymd­ist hins vegar kannski að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks þeirra, var einn þeirra sem und­ir­rit­uðu samn­ing­ana, þrátt fyrir að óum­deilt sé að þeir séu verk Fram­sókn­ar­flokks­ins. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son hafa báðir varið samn­ing­inn grimmt. Sig­mundur Davíð sagði gagn­rýni á hann vera stórfurðu­legar árásir „fáeinna tals­manna stór­versl­ana á íslenska bændur.“

Þá er fólk ekk­ert sam­mála um það með hvaða hætti búvöru­samn­ingar koma til kasta þings­ins. Bjarni Bene­dikts­son hefur sagt að þeir komi þangað inn til sam­þykktar. Það mun þó vera þannig að samn­ing­arnir sjálfir verða fylgi­skjal með laga­breyt­ingum sem gera þarf til að hann nái fram að ganga. Hvernig sem það er er ljóst að mál tengd búvöru­samn­ingum fara ekki þegj­andi og hljóða­laust í gegnum þingið.

6. Verðtryggingin

Þótt fátt sé reyndar að ger­ast í málum verð­trygg­ing­ar­innar er það sann­ar­lega eitt þeirra mála sem rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir eru gjör­sam­lega ósam­mála um. Á meðan Bjarni Bene­dikts­son hefur sagt að rík­is­stjórnin ætli ekki að afnema verð­trygg­ingu vill Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sann­ar­lega gera það, og lof­aði því í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga. Í stefnu­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar var þessi stefna einnig tíunduð. Þar sagði að flokk­ur­inn ætl­aði sér að afnema verð­trygg­ingu á neyt­enda­lánum. Undir þeim lið sem fjall­aði um þá aðgerð sagði m.a.: „Fyrsta skrefið verði að setja þak á hækkun verð­trygg­ingar neyt­enda­lána". Slíkt þak hefur ekki verið sett það sem af er kjör­tíma­bil­inu. Bjarni Bene­dikts­son hefur sagt að æski­legt sé að draga úr vægi verð­trygg­ing­ar­innar, og eitt sinn stóð til að þrengja að 40 ára jafn­greiðslu­lánum, sem eru þó ein­hver vin­sæl­ustu hús­næð­is­lánin hjá Íslend­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár