Bjarna líst ekkert á að gera Landsbankann að samfélagsbanka

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að honum lít­ist alls ekki vel á hug­mynd um að gera Lands­bank­ann að sam­fé­lags­banka. Hug­myndin hafi ekki verið rædd við hann af hálfu Fram­sókn­ar­flokks­ins né lögð fram í rík­is­stjórn. Bjarni seg­ist ekki vita almenni­lega hvað sam­fé­lags­banki eigi að vera, nema um sé að ræða hug­mynd um banka sm sé ekki rek­inn með arð­semi að sjón­ar­miði. „Mér finnst að bankar eiga að vera bankar," sagði Bjarni í Kast­ljósi kvölds­ins.

Á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins í fyrra­vor var sam­þykkt til­laga um að Lands­bank­inn yrði áfram í rík­i­s­eigu og myndi starfa sem sam­fé­lags­banki sem hefði ekki það mark­mið að hámarka arð­semi. Í við­tali við RÚV vegna þessa sagði Frosti Sig­ur­jóns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins sem lagði til­lög­una fram, að til­gangur sam­fé­lags­banka yrði að reyna „að efla sam­keppni á banka­mark­aði með því að bjóða góða þjón­ustu og á góðu verði“.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra ræddi sam­fé­lags­banka­hug­mynd­ina við Við­skipta­blaðið í byrjun nóv­em­ber. Þar sagð­ist hann hafa „orðið þess var að menn virð­ast leggja ólíkan skiln­ing í hvað sé átt við með sam­fé­lags­banka[...]Nú þegar fjár­mála­kerfið losnar úr viðjum slita­búa og hafta er eðli­legt að eig­enda­stefna rík­is­ins gagn­vart bönk­unum taki mið af því mik­il­væga hlut­verki sem bankar gegna í sam­fé­lag­inu þannig að bankar í eigu rík­is­ins leggi sitt af mörkum við að bæta þjón­ustu við við­skipta­vini og bjóða þeim sam­keppn­is­hæf kjör“.

Í fjár­lögum árs­ins 2016 er gert ráð fyrir að rúm­lega 28 pró­sent hlutur í Lands­bank­anum verði seldur fyrir 71 millj­arð króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár