„Kæfandi þrengsli“ á verksmiðjubúum

Í fleiri ár slógu yfir­völd í Norður-Karólínu skjald­borg um meng­andi land­búnað og aðhöfð­ust ekk­ert þrátt fyrir kvart­anir nágranna. Það var ekki fyrr en þeir höfðu fengið upp í kok á lykt­inni af rotn­andi hræjum og skít og höfð­uðu mál að farið var að hlusta.

Á hverju ári framleiðir Smithfield yfir þrjár milljónir tonna af svínakjöti. Enginn annar í heiminum framleiðir svo mikið magn.
Á hverju ári fram­leiðir Smit­hfi­eld yfir þrjár millj­ónir tonna af svína­kjöti. Enginn annar í heim­inum fram­leiðir svo mikið magn. Mynd: EPA

Svína­rækt var á árum áður aðeins auka­bú­grein í Norður-Karólínu í Banda­ríkj­unum. Í rík­inu var það tóbaks- og bómull­ar­rækt sem gaf mest í aðra hönd. En á níunda og tíunda ára­tug síð­ustu aldar varð spreng­ing í ræktun svína og risa­vaxin eld­is­hús, þar sem um 60 þús­und dýr voru haldin í hverju og einu, spruttu upp á slétt­unum við strönd­ina. Frá öllum þessum svínum fellur til gríð­ar­legt magn af skít og þvagi og á upp­hafs­ár­unum var úrgang­inum skolað niður úr rimla­gólfum svína­stí­anna og út í opnar tjarnir eða lón. Þegar lónin fyllt­ust var skítnum dælt upp og honum dreift á akra sem áburði.

Þannig var það þegar hið umfangs­mikla þaul­eldi hófst og þannig er það enn í dag. Skít­ur­inn á það líka til að flæða yfir bakka lón­anna, sér­stak­lega í felli­byljum sem eru nokkuð tíðir á þessum slóðum.

[adspot]

Yfirvöld í Norður-Karólínu stóðu vörð um svína­rækt­ina og voru treg til að krefja eig­endur búanna um úrbætur. Að því kom þó í lok síð­ustu aldar að ákveðið var að banna nýjum búum að beita sömu aðferðum við að losa sig við úrgang sem varð svo aftur til þess að svína­bú­unum hætti loks að fjölga en þau eru í dag um 2.300.

Eldri bú, bú sem fengu starfs­leyfi fyrir árið 1997, er hins vegar enn frjálst að moka skítnum ofan í lón og dreifa honum svo á akra þegar lónin fyll­ast. Fnyk­ur­inn sem angrað hefur nágranna búanna í ára­vís liggur því enn í loft­inu. Veldur því að fólk getur ekki hengt út þvott eða notið þess að dvelja utandyra við heim­ili sín. „Lyktin er eins og af líki sem hefur fengið að rotna í mánuð,“ segir Rene Miller, vöru­bíl­stjóri á eft­ir­launum, sem býr í Duplin-sýslu – í hjarta svína­rækt­un­ar­innar. Í sam­tali við The Guardian á síð­asta ári sagði hún frá því að áður hafi fjöl­skyldan notið þess að koma saman eftir messu, grilla í garð­inum, tefla og dansa. „Þannig var líf mitt þá,“ sagði hún. Í dag lokar hún sig inni og setur loft­kæl­ing­una á fullt því óþef­ur­inn af svína­skítnum, sem dreift er um allar koppa­grundir, er svo stækur.

[links]Árið 2018 var birt vís­inda­grein í lækna­blað­inu North Carolina Medical Journal þar sem fram kom að ung­barna­dauði væri hærri í fjöl­skyldum sem byggju í námunda við svína­búin en ann­arra. Einnig var nið­ur­staðan sú að nágrönnum búanna, sem flestir eru svart fólk, væri hætt­ara við ýmsum sjúk­dómum á borð við nýrna­bilun.

Samtök fyr­ir­tækja í svína­rækt gagn­rýndu rann­sókn­ar­nið­ur­stöð­urnar og beindu sjónum að því að Duke-háskóli, sem fram­kvæmdi hana, fengi styrki frá aðilum sem eru mót­fallnir verk­smiðju­bú­skap.

Yfirvöld í Norður-Karólínu hafa mark­visst haldið kvört­unum frá íbúum vegna meng­unar frá svína­bú­unum fyrir sig og ekki komið þeim í ferli innan við­eig­andi stofn­anna. Árið 2014 voru sett lög í rík­inu sem heim­il­uðu að merkja kvart­anir til umhverf­is­stofn­unar rík­is­ins sem „trún­að­ar­mál“ nema að hún mæti það sem svo að um meint lög­brot af hálfu þess sem kvartað var undan væri að ræða. Talsmenn stofn­un­ar­innar sögðu þetta gert til að koma í veg fyrir að „menn úti í bæ“ gætu komið fram með órök­studdar kvart­anir.

Á tíu ára tíma­bili, 2008-20018, skráði umhverf­is­stofn­unin í Norður-Karólínu aðeins hjá sér 33 kvart­anir frá almenn­ingi vegna svína­bú­anna. Á sama tíma­bili skiptu kvart­anir vegna slíkra búa þús­undum í öðrum ríkjum Banda­ríkj­anna þar sem svína­rækt er umfangs­mikil.

Málaferli hefjast

Yfir 500 íbúar í Norður-Karólínu höfð­uðu fjölda skaða­bóta­mála árið 2014. Margir þeirra búa í næsta nágrenni búa sem rækta svín fyrir fyr­ir­tækj­aris­ann Smit­hfi­eld eða í nálægð við bú sem fyr­ir­tækið á sjálft.

Á hverju ári fram­leiðir Smit­hfi­eld yfir þrjár millj­ónir tonna af svína­kjöti. Enginn annar í heim­inum fram­leiðir svo mikið magn. Þó að fyr­ir­tækið sé „banda­rískt“ – stofnað af banda­rískum feðgum á fjórða ára­tug síð­ustu aldar og með höf­uð­stöðvar í Virginíu-ríki – er það í dag í meiri­hluta eigu kín­verskra félaga. Stærstur hluti starf­sem­innar fer fram í Banda­ríkj­unum en hún teygir einnig anga sína til Evrópu og Suður-Ameríku.

Smit­hfi­eld rekur einnig um 500 svínabú, m.a. í gegnum dótt­ur­fé­lög sín. Árið 2006 voru á þessum búum aldar um 15 millj­ónir svína til slátr­unar en í heild var um 26 millj­ónum svína slátrað hjá fyr­ir­tæk­inu það ár. Stærsta slát­ur­húsið, Tar Heel, er í Norður-Karólínu og þar er slátrað um 32 þús­und svínum á dag. Hags­mun­irnir eru því miklir. Svína­rækt er ekki lengur auka­bú­grein í rík­inu.

Dóms­málin gegn Smit­hfi­eld og dótt­ur­fé­lögum eru mörg og hefur fyr­ir­tækið þegar tapað fyrstu fimm sem nið­ur­staða er komin í. En að vendi­punkti var komið fyrir nokkrum dögum. Þá var end­ur­upp­töku­krafa Smit­hfi­eld í einu mál­anna tekin fyrir við umdæm­is­dóm­stól í Virginíu. Mál sner­ist um eitt bú í eigu dótt­ur­fé­lags Smit­fi­eld: Kinlaw Farms. Nágrann­arnir sem kærðu sögðu ólíft utandyra við heim­ili sín vegna ólyktar, flugna og stöðugrar umferðar flutn­inga­bíla – allan sól­ar­hring­inn. Þrátt fyrir að vita af þessu neit­uðu eig­endur bús­ins að breyta háttum sínum.

Dómurinn stað­festi nið­ur­stöðu sem feng­ist hafði á lægra dóm­stigi og var nágrönnum svína­bús, sem málið sner­ist um, í vil. Íbúarnir hefðu sann­ar­lega orðið fyrir óþæg­indum vegna starf­semi svína­bú­anna. Hún var einnig sú að upp­hæð skaða­bóta sem dótt­ur­fé­lögum Smit­hfi­eld hefði verið gert að greiða kærendum, sem hljóp á millj­ónum Banda­ríkja­dala, væri of íþyngj­andi og að hana yrði að end­ur­skoða.

Samkomulag um skaðabætur

Aðeins nokkrum klukku­stundum eftir að nið­ur­staðan lá fyrir til­kynnti Smit­hfi­eld að fyr­ir­tækið hefði kom­ist að sam­komu­lagi um skaða­bætur við kærendur í mál­inu sem og öðrum sam­bæri­legum málum í Norður-Karólínu. Keira Lombardo, einn af fram­kvæmda­stjórum Smit­hfi­eld, sagði við það til­efni að máls­höfð­an­irnar hefðu verið „skipu­lagðar aðgerðir“ lög­manna kærenda og settar fram í þeim til­gangi að rífa niður „okkar öruggu, traustu og nútíma­legu mat­væla­fram­leiðslu“. Í miðjum heims­far­aldri, þar sem mat­væla­ör­yggi væri ógnað, væri betra fyrir alla að ein­beita sér að því að „fram­leiða góð mat­væli“ í stað þess að eyða tíma í „trufl­andi“ mála­ferli.

Einn af dóm­urum umdæm­is­dóm­stóls­ins í Virginíu, Steph­anie Thacker, sagði í sér­á­liti sínu að kvið­dóm­endur á lægra dóm­stigi hefðu haft næg sönn­un­ar­gögn til að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að dótt­ur­fyr­ir­tæki Smit­hfi­eld hefði haldið starf­sem­inni til streitu þrátt fyrir að vita af þeim skaða sem hún væri að valda nágrönnum Kinlaw Farms. Hún nefndi sér­stak­lega hauga af svína­hræjum í gámum við búið og umfangs­mikla skíta­dreif­ingu á tún og akra yfir sum­ar­tím­ann.

Smánarlegur aðbúnaður

Annar dóm­ari gagn­rýndi verk­smiðju­bú­skap­inn harð­lega í sér­á­liti sínu og sagði aðbúnað á Kinlaw Farms „smán­ar­legan“ og engin ástæða væri til að halda að hann væri ekki sam­bæri­legur í öðrum búum.

„Hvernig varð þetta svona?“ spurði J. Harvie Wilkinson III í áliti sínu. Wilkinson hefur ára­tuga reynslu sem dóm­ari. Það var Ronald Reagan sem skip­aði hann dóm­ara við umdæm­is­dóm­stól­inn árið 1984. „Það sem vant­aði hjá Kinlaw Farms – og frá Murphy Brown [dótt­ur­fé­lagi Smit­hfi­eld] – var að átta sig á því að það að koma vel fram við dýr gagn­ast mann­fólki.“ Að vel­ferð dýra og manna færi saman. Sagði hann verk­smiðju­bú­skap afhjúpa skort á þessum tengslum og að dýrin þyrftu að búa við „kæf­andi þrengsli“. Iðn­að­ur­inn hefði svo einnig áhrif á starfs­fólk búanna og loks nær­sam­fé­lagið.

Smit­hfi­eld er eitt þeirra fyr­ir­tækja í Banda­ríkj­unum sem flokkuð voru sem þjóð­hags­lega mik­il­væg í upp­hafi far­ald­urs kór­ónu­veirunnar. Fram­leiðslan mátti ekki detta niður enda þurfti að passa upp á að keðjan milli svína­búa og loks neyt­enda rofn­aði ekki. Þegar í apríl voru hins vegar komin upp smit af kór­ónu­veirunni meðal starfs­manna í slát­ur­hús­unum, m.a. einu af þeim stærstu í Suður-Dakóta. Starfs­menn­irnir eru flestir inn­flytj­endur og þó að veik­indi hefðu gert var við sig var þeim sagt að halda áfram að vinna. Tæplega þús­und starfs­menn í slát­ur­húsi Smit­hfi­eld í Sioux Falls veikt­ust og smit­uðu svo hund­ruð ann­arra í fjöl­skyldum sínum. Yfirvöld sem rann­sök­uðu atburð­inn segja fyr­ir­tæk­inu hafa „mis­tek­ist að vernda starfs­menn sína fyrir kór­ónu­veirunni“ og því var gert að greiða sekt, um 13 þús­und dali.

Fyr­ir­tækið hefur nú tekið sig á í sótt­vörnum og smit­sjúk­dóma­stofnun Banda­ríkj­anna, sem seg­ist fylgj­ast reglu­lega með, segir ekk­ert hópsmit hafa komið upp síð­ustu vikur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár