Alma: Trúið okkur – þetta er gert með ykkar hagsmuni í huga

Alma Möller land­læknir hrós­aði fólki og þakk­aði fyrir jákvæðni og sam­stöðu nú á tímum kór­ónu­veirunnar. Hún sagði bestu brand­ara dags­ins af net­inu rata inn á stöðu­fundi almanna­varna „og létta okkur lund“.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Lögreglan

„Ég ætla að byrja að tala til ykkar allra sem eruð á sjúkra­húsum, hjúkr­un­ar­heim­ilum eða öðrum stofn­unum þar sem heim­sóknir eru tak­mark­aðar,“ sagði Alma Möller land­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

„Við gerum okkur auð­vitað öll grein fyrir því hvað það hlýtur að vera erfitt, fyrir bæði ykkur og ást­vini. En trúið okkur, þetta er gert auð­vitað fyrst og fremst með ykkar hags­muni í huga. Þarna vegur þyngra að verja ykkur fyrir veirunni, þannig að við erum að taka meiri hags­muni fyrir minni. Ég veit að starfs­fólk hlúir vel að ykkur og við sendum hlýjar kveðjur.“

[adspot]

Frá og með deg­inum í dag verður allri val­kvæðri þjón­ustu innan heil­brigð­is­kerf­is­ins hætt. „Við þurfum að end­ur­skipu­leggja heil­brigð­is­þjón­ust­una til að ráða við hvoru tveggja; að sinna öllum því sem teng­ist COVID-19 og því að geta veitt nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu,“ sagði Alma á fund­inum.

Öllu brýnu verður sinnt

Engar val­kvæðar skurð­að­gerðir verða því fram­kvæmdar á næst­unni og ekki heldur rann­sóknir eins og [links]spegl­anir. Þá verður tann­lækn­ingum hætt, „nema að það sem er brýnt. Og þetta á við hvort heldur er innan eða utan opin­bera kerf­is­ins.“

Alma sagði ástæð­una fyrir þess­ari ákvörðun þrí­þætta. „Heil­brigð­is­starfs­menn geta smit­ast, sjúk­lingar geta smit­ast og þetta getur kallað á auka álag eins og komur á bráða­mót­tökur og legur á sjúkra­húsum ef upp koma fylgi­kvillar.“

Ítrekaði hún þó að allar brýnar aðgerðir og rann­sóknir verði gerðar, „öllu brýnu verður sinnt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár