Funduðu með fulltrúum kröfuhafa í London, órói eftir ræðu Sigmundar

Glenn Kim, sem er for­maður fram­kvæmda­hóps íslenskra stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta, og aðrir erlendir ráð­gjafar íslenskra stjórn­valda hafa und­an­farið fundað nokkrum sinnum með helstu full­trúum stærstu kröfu­hafa slita­búa föllnu bank­anna. Frá þessu var greint í DV í dag.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er ekki um að ræða beina fundi með kröfu­höf­unum heldur með helstu ráð­gjöfum þeirra, meðal ann­ars Barry Russell (lög­maður hjá Akin Gump) og Matt Hinds (frá ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu Talbot Hughes&McKillop), sem starfað hafa fyrir stærstu kröfu­hafa hér­lendis árum saman. Um var að ræða upp­lýs­inga­fundi, ekki samn­inga­fundi. Ráð­gjaf­arnir voru þó ekki upp­lýstir að neinu leyti um áætl­anir stjórn­valda um losun hafta, sem kynntar verða á næstu vikum og mun meðal ann­ars inni­halda útfærslu á svoköll­uðum stöð­ug­leika­skatti sem mun hið minnsta leggj­ast á eignir slita­búa gömlu bank­anna og snjó­hengj­una svoköll­uðu.

Og, eins sér­kenni­lega og það kann að hljóma, þá mega ráð­gjaf­arnir ekki upp­lýsa atvinnu­rek­endur sína, kröfu­hafa föllnu bank­anna, um það sem fram fór á við­kom­andi fundum. Kröfur á föllnu bank­anna ganga nefni­lega kaupum og sölum á skipu­legum mark­aði. Verð á þeim sveifl­ast til og frá og upp­lýs­ingar á borð við þær sem gætu komið fram á fundum með íslenska fram­kvæmd­ar­hópnum gætu talist verð­mynd­andi.

Órói á kröfumarkaði


Und­an­farin miss­eri hefur ekki verið mikil hreyf­ing á mark­aði með kröfur á íslensku bank­anna. Beðið hefur verið eftir útspili íslenskra stjórn­valda um skref í átt að losun hafta. Heim­ildir Kjarnans herma hins vegar að órói hafi skap­ast á meðal eig­enda sumra krafna eftir ræðu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins á föstu­dag þar sem í fyrsta sinn var minnst á stöð­ug­leika­skatt.

Hann hafi síðan lægt eftir að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, steig fram á þriðju­dag og greindi frá því að umræddur skattur er í fullu sam­ræmi við þær leiðir sem hann boð­aði í grein­ar­gerð sinni til Alþingis þann 18. mars síð­ast­lið­inn.

Ræða sem vakti mikla athygli


Það vakti athygli víðar en á Íslandi þegar Sig­mundur Davíð sagði í ræðu sinni fyrir viku að stöð­ug­leika­skattur ætti að skila hund­ruðum millj­arða króna. Margir túlk­uðu þau ummæli á þann veg að for­sæt­is­ráð­herr­ann væri að boða mikið inn­flæði fjár­mags í rík­is­sjóð. Það er í and­stöðu við það sem Lee Buccheit, ráð­gjafi stjórn­valda, og Glenn Kim sögðu á fundi með sam­ráðs­nefnd stjórn­mála­flokk­anna í byrjun des­em­ber síð­ast­liðnum, þegar þeir kynnt fyrir henni hug­myndir um útgöngu­skatt og löng skulda­bréf fyrir eig­endur snjó­hengj­unnar. Þar kom skýrt fram að mark­mið til­lag­anna væri ekki að afla tekna fyrir íslenska ríkið, heldur að afnema fjár­magns­höft.

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hefur talað á sömu nótum og það hefur Bjarni Bene­dikts­son líka gert. Hann sagði við fjöl­miðla í vik­unni, þegar hann tjáði sig við þá í fyrsta sinn eftir ræðu Sig­mundar, að efna­hags­legum stöð­ug­leika yrði ekki ógnað við losun hafta.

Mikilvæg yfirlýsing


Sig­mundur sagði síðan í við­tali við Morg­un­blaðið á mánu­dag að áætlun um losun hafta snú­ist að öllu leyti um að verja efna­hags­legan stöð­ug­leika og gengi krón­unnar. Fjármagn sem kæmi út úr áætl­un­inni, sem felur meðal ann­ars í sér álagn­ingu svo­kall­aðs stöðu­leika­skatts sem hefur ekki verið útskýrður að fullu, yrði ekki hugsað til þess að ráð­stafa í fram­kvæmdir eða verða hluti útgjalda rík­is­sjóðs.

Þessi yfir­lýs­ing Sig­mundar er talin mik­il­væg. Nauð­syn­legt sé að öll opin­ber ummæli þeirra sem komi að áætlun um losun hafta séu þannig að álagn­ing stöð­ug­leika­skatts snú­ist ein­vörð­ungu um að hægt verði að stíga skref við losun fjár­magns­hafta án þess að greiðslu­jöfn­uði þjóð­ar­bús­ins verði ógnað. Ef aðrar ástæður eru gefnar fyrir álagn­ingu skatts­ins, að hann sé til dæmis settur á til tekju­öfl­unar fyrir rík­is­sjóð, þá er það talið styrkja rök kröfu­hafa fyrir því að í honum felist eign­ar­upp­taka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár