Ekkert nýtt smit greindist á Íslandi í gær

Í fyrsta sinn síðan 29. febr­úar greind­ist ekk­ert nýtt COVID-19 smit á Íslandi í gær, hvorki á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala né hjá Íslenskri erfða­grein­ingu, en allt í allt voru tæp­lega 200 sýni tekin.

Ekkert nýtt COVID-19 smit greind­ist á Íslandi í gær, í fyrsta sinn frá 29. febr­úar. Fyrsta smitið hér­lendis greind­ist degi áður, eða 28. febr­úar. Alls voru tekin rétt innan við 200 sýni, 178 á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala og 15 hjá Íslenskri erfða­grein­ingu.

„Miðað við hvernig þetta hefur verið síð­ustu daga þá hafa verið fá til­felli suma dag­ana og þetta kemur svo sem ekk­ert á óvart að það komi einn dagur þar sem við greinum ekk­ert til­felli,“ sagði Karl G. Krist­ins­son yfir­læknir á sýkla- og veiru­fræði­deild­inni í sam­tali við Vísi um hádeg­is­bil, en þá stað­festi hann við mið­il­inn að ekk­ert sýni hefði greinst jákvætt þar í gær.

Nú er ljóst, sam­kvæmt tölum á covid.is, að ekk­ert sýni var jákvætt hjá Íslenskri erfða­grein­ingu heldur, en þar voru sem áður segir ein­ungis 15 sýni tekin, sem er mun minna en und­an­farna daga. Í fyrra­dag voru þannig tekin yfir fjögur hund­ruð sýni og tvö þeirra reynd­ust jákvæð.

Þrettán manns eru nú á sjúkra­húsi vegna veiru­sýk­ing­ar­innar, þar af fimm á gjör­gæslu­deild. 237 manns eru nú með virkan sjúk­dóm á land­inu, en í heild­ina eru til­fellin orðin 1.789 tals­ins hér á landi. 1.542 hafa náð bata, en tíu manns hafa lát­ist eftir að hafa greinst með COVID-19.

Í heild­ina eru nú 726 manns í sótt­kví, en 18.691 manns hafa lokið sótt­kví nú þegar. Á Íslandi hafa verið tekin 45.286 sýni til þessa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár