Rúmlega 100 þúsund manns standa utan þjóðkirkjunnar

Flestir sem yfir­gáfu trú­fé­lag í fyrra fóru úr þjóð­kirkj­unni. Hún er þó enn langstærsta trú­fé­lag lands­ins þar sem 63,5 pró­sent íbúa þess eru enn skráðir í hana. Kaþ­ólikkum og þeim sem skráðum eru í Siðmennt fjölgar mest.

Í stjórn­­­ar­­skrá Íslands segir að hin evang­el­íska lút­­erska kirkja skuli vera þjóð­­kirkja á Íslandi og að rík­­is­­valdið eigi bæði að styðja hana og vernda. Guðni Th. Jóhannesson er forseti Íslands og Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands.
Í stjórn­­­ar­­skrá Íslands segir að hin evang­el­íska lút­­erska kirkja skuli vera þjóð­­kirkja á Íslandi og að rík­­is­­valdið eigi bæði að styðja hana og vernda. Guðni Th. Jóhann­es­son er for­seti Íslands og Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Miðað við nýjar tölur Þjóð­skrár voru lands­menn um 364 þús­und í upp­hafi árs 2020. Af þeim voru 231.145 skráðir í þjóð­kirkj­una, eða 63,5 pró­sent lands­manna. Það þýðir að tæp­lega 133 þús­und manns hafi ekki verið skráð í hana um síð­ustu ára­mót, eða 36,5 pró­sent lands­manna. Þeir íslensku rík­­­­­­is­­­­­­borg­­­­­­arar sem kusu að standa utan þjóð­­­­­­kirkj­unnar voru 30.700 um síð­­­­­­­­­­­ustu ald­­­­­­ar­­­­­­mót. Á tveimur ára­tugum hefur þeim því fjölgað um rúm­lega 102 þús­und.

Þetta má lesa út úr tölum um skrán­ingar í trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög sem Þjóðskrá birti í vik­unni.

[links]Þeim sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una fækk­aði um 1.501 á milli ára. Auk þess skil­aði fjölgun lands­manna um rúm­lega sjö þús­und frá upp­hafi árs 2019 sér ekki inn í þjóð­kirkj­una.

Árið 1992 voru 92,2 pró­­­­­­sent lands­­­­­­manna skráðir í þjóð­kirkj­una. Síð­ast­liðna ára­tugi hefur hlut­fall þeirra sem til­heyra henni dreg­ist saman og frá árinu 2009 hefur með­­­limum þjóð­­­kirkj­unnar fækkað á hverju ári.

Trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög hér á landi fá sókn­ar­gjöld greidd fyrir hvern skráðan ein­stak­ling, 16 ára og eldri. Á árinu 2018 greiddi ríkið 931 krónur á mán­uði á hvern ein­stak­ling í hverju félagi fyrir sig. 

Breytt skráning og meint siðrof

Þeim Íslend­ingum sem treysta þjóð­kirkj­unni hefur auk þess fækkað um helm­ing frá ald­ar­mótum, en í könnun sem var birt í lok októ­ber 2019 sögð­ust um þriðj­ungur lands­manna bera mikið traust til hennar. Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, sagði í við­tali við RÚV í kjöl­farið, þar sem hún ræddi orsakir tak­mark­aðs trausts á störfum hennar og kirkj­unnar. Þar sagði biskup að á Íslandi hefði orðið sið­rof þegar ákveðið var að hætta að kenna krist­in­fræði í grunn­skólum lands­ins. „Það hefur orðið sið­rof, held ég. Fólk áttar sig ekki á því hvaðan hlut­irnir koma sem við viljum gjarnan lifa eftir og starfa eft­ir. Það nátt­úru­lega segir sig sjálft að ef að börnin læra ekki heima hjá sér til dæmis bibl­íu­sög­urnar eða í skól­anum þá verður fram­tíðin þannig að þau vita ekki að þetta er til. Ef maður veit ekki að eitt­hvað er til þá skiptir það mann engu máli, -fyrr en kannski allt í einu að eitt­hvað kemur upp á.“

[adspot]Önnur ástæða fyrir fækkun í þjóð­kirkj­unni sem blasir við er sú að ára­tugum saman var skipu­lag mála hér­lendis þannig að nýfædd börn voru ætið skráð í trú­­­­­­fé­lag móð­­­­­­ur. Það þurfti því sér­­­­­­stak­­­­­­lega að skrá sig úr trú­­­­­­fé­lagi í stað þess að skrá sig inn í það.

Þessu var breytt árið 2013 og nú þurfa báðir for­eldrar að til­­­­heyra sama trú- og lífs­­­­skoð­un­­­­ar­­­­fé­lagi til að barnið sé skráð í félag, ann­­­­ars skrá­ist barnið utan­ ­trú­­­­fé­laga. Á sama tíma var ramm­inn utan um hvers kyns félög mættu skrá sig sem trú- og líf­­skoð­un­­ar­­fé­lög og þiggja sókn­­ar­­gjöld rýmk­að­­ur.

Stór hluti utan félaga eða óskilgreindur

Alls voru 26.116 manns skráðir utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga í upp­hafi árs og fjölg­aði þeim um 1.245 á einu ári. Fjöldi þeirra var 10.336 í byrjun árs 2010. Þeim sem velja slíka stöðu hefur því fjölgað um 153 pró­sent á ára­tug. Þeir sem velja að standa utan­trú­fé­laga eru því næst stærsti hópur þeirra sem taka afstöðu til trú­mála með skrán­ingu á Íslandi. Auk þess eru 52.091 manns með ótil­greinda stöðu, en ætla má að uppi­staða þess hóps séu erlendir rík­is­borg­arar sem flutt hafa til lands­ins á und­an­förnum árum.

[adspot]Næst stærsti eig­in­legi söfn­uður lands­ins er hins vegar Kaþólska kirkjan. Þann 1. jan­úar 2020 voru 14.634 manns skráðir í hana. Kjarninn fjall­aði ítar­lega um vöxt þess safn­aðar í frétta­skýr­ingu sem birt­ist í októ­ber í fyrra, þar sem kom fram að skrán­ingar í hann hafi fjór­fald­ast á síð­ustu 20 árum. Aukn­ing­una má rekja beint til gríð­ar­legrar fjölg­unar erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi, en stærstu hóp­arnir sem hingað flytja – Pól­verjar og rík­is­borg­arar Eystra­salts­landa – koma frá löndum þar sem kaþ­ólska kirkjan er sterk.

Í umfjöll­un­inni sagði Séra Jakob Rolland, prestur innan kaþ­ólsku kirkj­unnar, að hann teldi kaþ­ólikka hér­lendis þó vera miklu fleiri, eða hátt í 30 þús­und manns.

Mest var þó fjölg­unin síð­ast­liðna rúma árið hjá þeim sem skráðu sig í Siðmennt, félags sið­rænna húman­ista á Íslandi. Sið­mennt hefur verið skráð lífs­­skoð­un­­ar­­fé­lag frá árinu 2013. Félagið er það eina sem berst bein­línis gegn sókn­­ar­­gjöldum og fyrir algjöru trú­frelsi. Meðlimir í Siðmennt eru nú 3.509 tals­ins og fjölg­aði um 655 frá því í des­em­ber 2018.

Þeim sem skráðir eru í trú­­fé­lög múslima á Íslandi hefur einnig fjölgað mjög á und­an­­förnum árum. Árið 1998 voru 78 manns skráðir í Félag múslima á Íslandi. Nú eru 623 skráðir í það félag en auk þess eru tvö önnur trú­fé­lög múslima skráð. Félagar í Menn­ing­ar­setri múslima á Íslandi eru 378 tals­ins og félagar í Stofnun múslima á Íslandi alls 281 tals­ins. Sam­an­lagt eru því 1.282 skráðir í múslimsk trú­fé­lög hér­lendis. Inga Auðbjörg K. Straum­land, for­maður Sið­menntar, skrif­aði grein sem birt­ist í Kjarn­anum í lok októ­ber í fyrra þar sem hún brást við full­yrð­ingu bisk­ups Íslands um sið­rof þjóð­ar­innar.

Undið ofan af Zuism

Næst mest fækkun, bæði í raun­tölum og hlut­falls­lega, hefur orðið í trú­fé­lag­inu Zuism. Zuistar voru skráðir tveir árið 2014 en fjöldi þeirra rauk upp í rúm­­lega þrjú þús­und í byrjun árs 2016, eftir að hópur manna taldi sig hafa tekið yfir félagið og ætl­­aði að end­­ur­greiða fólki þau sókn­­ar­­gjöld sem inn­­heimt yrði vegna þeirra. Síðan stóð yfir ára­löng bar­átta milli þess hóps og þeirra aðila sem áður höfðu farið með yfir­­ráð í félags­­­skapn­­um. Sú bar­átta end­aði með sigri hinna síð­­­ar­­nefndu. Zúistar fengu 32 millj­­ónir króna greiddar úr rík­­is­­sjóð vega sókn­­ar­gjalda á árinu 2016.

Lyk­il­menn í þeim hópi eru tveir bræð­ur, Einar og Ágúst Arnar Ágústs­syn­ir. Sá fyrr­nefndi hefur hlotið dóm vegna fjársvika.

[adspot]Zuism, undir for­ystu Ágústs Arn­ars, hefur staðið í mála­rekstri við ríkið vegna sókn­ar­gjalda sem hann telur félagið eiga að fá greidd. Í nóv­em­ber síð­ast­liðnum var ríkið sýknað af kröfum Zuism um að fá drátt­ar­vexti af 50 millj­óna sókn­ar­gjöldum sem var haldið eft­ir. Íslenska ríkið var sýknað af þeim kröfum í nóv­em­ber.

Íslenska ríkið hefur reynt að koma í veg fyrir að Zuism fái greidd sókn­ar­gjöld þar sem óvissa sé uppi um að Zuism upp­fylli skil­yrði laga um trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög. For­svars­menn Zuism hafa stefnt rík­inu vegna þessa. Í vik­unni fór fram aðal­með­ferð í einum anga þess máls þar sem rík­is­lög­maður sagði að félagið væri mála­mynda­fé­lags­skapur og að til­gangur þess væri að kom­ast yfir fjár­muni skatt­greið­enda.

Í byrjun des­em­ber 2019 var svo greint frá því að fjár­reiður Zuism væru til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og að rann­sóknin væri vel á veg komin.

Félags­mönnum í Zuism hefur fækkað hratt á und­an­förnum árum, eftir að óvissa kom upp um hvort bræð­urnir ætl­uðu sér nokkru sinni að end­ur­greiða sókn­ar­gjöldin, eða halda þeim fyrir sig sjálfa. Í upp­hafi árs í fyrra voru þeir orðnir um 1.600 og hefur því fækkað um tæpan helm­ing frá árinu 2016. Um síð­ustu ára­mót voru þeir orðnir 1.212 og hafði þá fækkað um 375 á 13 mán­uðum. Zuism er samt sem áður níunda fjöl­menn­asta trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lag lands­ins í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár