Aðeins eitt jákvætt sýni hjá Íslenskri erfðagreiningu

Í dag er 1.021 ein­stak­lingur með virkt COVID-19 smit en í gær voru þeir 1.096. Alls hafa 559 náð bata.

Staðfest smit af kór­ónu­veirunni eru orðin 1.586 hér á landi. Í gær voru þau 1.562 og hefur þeim því fjölgað um 24 á einum sól­ar­hring. Í dag eru 4.407 manns í sótt­kví og hefur þeim fækkað veru­lega síðan í gær. Alls hefur 13.531 ein­stak­lingur lokið sótt­kví.

Í dag er 1.021 ein­stak­lingur með virkt COVID-19 smit en í gær var fjöld­inn 1.096. Alls hafa 559 náð bata.

23 ný smit greindust í þeim 235 sýnum sem tekin voru á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala í gær. Af 877 sýnum sem tekin voru hjá Íslenskri erfða­grein­ingu fannst eitt nýtt smit. Alls hefur 28.991 sýni verið tekið hér á landi frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Enn er yfir helm­ingur þeirra sem grein­ast með sýk­ingu í sótt­kví sem sótt­varna­læknir hefur sagt sýna mik­il­vægi þeirrar aðgerðar við að hefta úbreiðslu veirunnar.

[adspot]

Á sjúkra­húsi liggja 39 sjúk­lingar vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins, þar af þrettán á gjör­gæslu, sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is.

Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru sex látin.

Spá því að 140 þurfi að leggjast inn á sjúkrahús

Nú er gert ráð fyrir því að rúm­lega 2.100 manns muni grein­ast með COVID-19 hér á landi í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins, en talan gæti náð 2.600 sam­kvæmt svart­sýnni spá. Þetta kemur fram í upp­færðri for­spá vís­inda­manna Háskóla Íslands, Land­spít­ala og land­lækn­is­emb­ætt­is­ins, sem mið­ast við gögn til og með 5. apríl.

[links]Gert er ráð fyrir því að fjöldi þeirra sem eru með virkan sjúk­dóm nái hámarki í þess­ari viku og að þeir verði um 1.400 tals­ins. Samkvæmt svart­sýnni spá gæti þó farið svo að toppnum verði ekki náð fyrr en í næstu viku og að 1.700 ein­stak­lingar hafi þá virkan sjúk­dóm á sama tíma.

Samkvæmt nýj­ustu gögnum er gert ráð fyrir því að á meðan þessi bylgja far­ald­urs­ins fer yfir þurfi 140 manns að leggj­ast inn á sjúkra­hús, en fjöld­inn gæti náð hátt í 170 manns. Mest álag á heil­brg­iðis­þjón­ustu verður fyrir miðjan apríl, en þá er gert ráð fyrir að um það bil 70 ein­stak­lingar geti verið inniliggj­andi á sama tíma, en svart­sýnni spá er 90 ein­stak­lingar.

Uppfærð for­spá gerir ráð fyrir því að á tíma far­ald­urs­ins muni 28 ein­stak­lingar veikj­ast alvar­lega og þurfa gjör­gæslu­inn­lögn, en svart­sýnni spá gerir ráð fyrir því að þessir sjúk­lingar verði allt að 41 tals­ins.

Mestu álagi á gjör­gæslu­deildir er spáð í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 11 sjúk­lingar liggi á gjör­gæslu á sama tíma, en sam­kvæmt svart­sýnni spá gætu það verið 19 manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár