Katrín Jakobsdóttir í einangrun þar til niðurstöður úr sýnatöku liggja fyrir

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra er komin í ein­angrun heima hjá sér þar til nið­ur­stöður úr sýna­töku vegna kór­ónu­veirunnar verða ljósar. Sonur hennar er í Mela­skóla en nokkrir bekkir skól­ans voru sendir í sótt­kví í gær.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra er komin í ein­angrun heima hjá sér þar til nið­ur­stöður úr sýna­töku vegna kór­ónu­veirunnar verða ljósar. Sonur hennar er í Mela­skóla en nokkrir bekkir skól­ans voru sendir í sótt­kví í gær.

Katrín greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni og segir að í kjöl­far þess að nem­endur í nokkrum bekkjum Mela­skóla hefðu verið sendir í sótt­kví hafi eig­in­maður hennar og yngsti son­ur­inn ákveðið að flytja út af heim­il­inu.

[adspot]

„Í kjöl­farið var ákveðið að ég færi í sýna­töku vegna kór­ónu­veiru. Þar var ég beðin um að halda mig heima þar til nið­ur­staða kæmi úr þeirri sýna­töku. Þar sem ég hef verið dug­leg að segja öllum að fylgja leið­bein­ingum heil­brigð­is­yf­ir­valda þá geri ég það að sjálf­sögðu líka – en það er ástæðan fyrir því að ég mætti ekki í óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir í morgun (en ein­hverjir fjöl­miðlar hafa sent mér fyr­ir­spurnir um það). Við erum nefni­lega öll almanna­varnir og getum öll lagt okkar af mörkum til að hemja útbreiðslu veirunnar.“

Umhverfisráðherra í sóttkví og þingmaður greindur með COVID-19

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra er einnig kom­inn í sótt­kví eftir að sam­starfs­kona hans í ráðu­neyt­inu greind­ist með kór­ónu­veiruna. Smitrakn­ing­arteymið hafði sam­band við Guðmund Inga í gær. „Ég hef ekki fundið fyrir neinum ein­kennum og líður vel,“ skrifar hann á Facebook-síðu sína.

Þá hefur Smári McCarthy, þing­maður Pírata greinst með COVID-19. Hann greinir frá því á Facebook að hann hafi farið í sjálf­skip­aða sótt­kví fyrir viku eftir að hafa farið að hósta. Á föstu­dag hafi hann svo farið í sýna­töku og hún reynd­ist jákvæð. Smári seg­ist „þokka­lega hress“ og að hann finni fyrir vægum ein­kennum.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, greindi frá því í morg­un­út­varpi RÚV í morgun að það væru dæmi um að ráð­herrar í rík­is­stjórn hefðu látið prófa sig til að kanna hvort að þeir væru með COVID-19. Öll rík­is­stjórnin væri hins vegar ekki búin að því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár